Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 45

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 45
þessa búnaðar á blýlausu bensíni, sem inniheldur bensen, eru þeir síst skárri en þeir sem aka á blýbensíni. Mörg önnur efni koma frá bílum þó þau séu ekki frá vélinni. Til dæmis má nefna ýmsa málma frá gírkassa og rafgeymi, asbest frá bremsuborðum o.s.frv. Dekkin eyðast og naglar rífa upp asfalt af götunum og ekki eru það allt holl efni. Það verður ekki fyrr en við Islendingar tökum upp svipaðar kröfur og vestrænar þjóðir - og fylgjum þeim eftir - og getum minnkað loftmengunina, sem ekki er aðeins okkar prívat'vandamál nokkra daga á ári heldur og alheims- vandamál, að við getum borið höfuðið sæmilega þegar talið berst að loftmengun vegna umferðarinnar. ÓBEIN ÁHRIF Þa sem ég hef kosið að nefna óbein áhrif umferðarinnar á umhverfið eru þau áhrif sem ekki sjást eða hægt er að mæla beint. Þar má annars vegar nefna þau áhrif sem beinu áhrifin hafa, svo sem áhrif slysa á einstaklingana, heilbrigðiskerfið og þjóðfélagið eða áhrif umferðarhávaða á geðheilsu fólks í þéttbýli. Það eru þó mun fleiri óbein áhrif sem fólk hefur e.t.v. ekki gefið gaum að. Fyrst og fremst má nefna að bílaeignin, eins almenn og hún er orðin, hefur haft áhrif á útþenslu þéttbýlisins þannig að nú er t.d. á hvem Reykvíking átta til tíu sinnum meira landssvæði innan þéttbýlisins en fyrir röskum fimmtíu árum. Með tilkomu bílsins og almannaeignar á honum hefur verið unnt að byggja næstum hrein svefnhverfi og jafnframt sérstök atvinnusvæði. Bílaeignin gerir borgarmyndun auðveldari þar sem ekki er nauðsynlegt að vinnustaðir séu í göngufæri frá heimilum manna. Iðnaðarborgir í lok nítjándu aldar voru sérstaklega ógeðfelldar vegna þess þéttbýlis sem iðnaðurinn krafðist á litlu svæði umhverfis verksmiðjurnar. Að vísu hefði mátt leysa málið með öflugum almenn- ingssamgöngum og var það víða gert en einkabíllinn bauð upp á marga aðra kosti og fólk féll fyrir þeim og má því telja að vandræði almenningssamgangna í þéttbýli á Vesturlöndum séu ein af óbeinum áhrifum einkabílsins á umhverfið. Umferðin og þá einkum og sér í lagi umferð einkabíla krefst umferðarmannvirkja. Fyrst og fremst eru það götur, nánar tiltekið götur í aðalgatnakerfinu. Götur þessar flytja mikla umferð og þær eru mikil uppspretta þess neikvæða við umferðina. Götumar skera byggðina sundur þannig að félagsleg tengsl milli hverfa sitt hvorum megin verða minni en ella. Það er nefnilega svo að öruggar gönguleiðir þvert á umferðarmiklar götur em gj aman af skomum skammti. Það er eins og undirgöng eða göngubrýr séu ekki með í dæminu þegar verið er að áætla götur í aðalgatnakerfinu. Þessi áhrif eru ekki uúkið rannsökuð, a.m.k. ekki hér á landi, en leiða má viss rök að því að aðalgatnakerfið reiti borgina niður og rjúfi félagsleg tengsl hvort sem það er til góðs eða ills. Enn eitt sem bílaumferð á 20. öld hefur fært okkur eru stormarkaðir. Stórmarkaðimir sækjast eftir aðstöðu sem næst stofnbrautum. Þá þykir það einna best að vera sem allra næst storum gatnamótum. Meira að segja er til í Evrópu keðja Öllu gamni fylgir nokkur alvara. Skopmyndin, sem er eftir Edward MacLachlan, sýnir hversu erfitt það getur verið að umgangast bílinn, sérstaklega ef maður er ekki sjálfur á bíl. Textinn á myndinni gæti útlagst: „Hlaupið eins og þið eigið lífið að leysa.“ stórmarkaða sem heitir Carrefour, en á frönsku merkir það gatnamót eða vegamót. Samhliða vexti stórmarkaðanna verður hnignun hverfaverslana. Kaupmaðurinn á horninu hefur minni umsvif en áður ef hann þá hættir ekki alveg starfsem- inni og verður mannlífið við það fátæklegra innan íbúðarhverfanna. Að síðustu má nefna að umferðin með hraða sínum, umfram það sem tíðkaðist áður, hefur haft áhrif á stærð ýmissa hluta. Til að vekja á sér athygli þurfa t.d. skilti og auglýsingar að vera risastór miðað við þau „gömlu góðu.“ Margir sem koma í gamlar borgir í Evrópu dást að nettlegum skiltum þar sem verslanir og veitingastaðir eru auglýst með látlausum skiltum sem á engan hátt skyggja á húsin eða spilla götumyndinni. Því miður verður annað upp á teningnum þar sem bílaumferð er en þar er tilgangur auglýsenda að ná athygli þeirra sem fara hratt yfir, þ.e. þeirra sem aka í bíl. Upp á síðkastið höfum við hér í Reykjavík orðið vitni að innrás svo nefndra veltiskilta og jafnvel enn tæknilegri ljósaskilta sem beint er að vegfarend- um í bílum. Einhverjar reglur munu vera til um slík skilti en óneitanlega er hér um að ræða veruleg áhrif á umhverfið sem rekja má til bílaumferðarinnar þó óbeint sé. LOKAORÐ I pistli þessum hefur rétt aðeins verið drepið á ýmis áhrif sem umferðin hefur á umhverfið en hvert um sig gæti verið tilefni til langs máls. Máski hefði verið betra að taka einn þátt út úr og greina betur og ræða, svo sem vistfræði götunnar eða hávaða sérstaklega eða jafnvel loftmengunina eina sér. Þá hefur alveg verið sleppt einu mikilsverðu atriði - af því að ég mundi ekki eftir því fyrr - en það eru áhrif fyrrverandi ökutækja á umhverfið. Það gæti orðið tilefni til sérstakrar greinar að kynna sér bílakirkjugarða og endurvinnslu bílhræja. Það og annað verður þó að bíða betri tíma. ■ 43

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.