Skessuhorn - 23.11.2022, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 20222
Læknaskortur
tekur á
ÓLAFSVÍK: Enginn læknir
hefur verið tiltækur í Ólafs
vík í að verða þriðju viku.
Íbúar í Ólafsvík eru ósáttir
við stöðuna en umræða um
málið hefur vaknað á samfé
lagsmiðlum. Engin tilkynn
ing hefur verið gefin út frá
Heilbrigðisstofnun Vestur
lands. Ekki náðist í forstjóra
HVE við vinnslu fréttar
innar en bæjarstjóri Snæfells
bæjar hafði þetta um málið
að segja: „Ég hef sjálfur litlar
upplýsingar um málið en í
haust talaði HVE um að fjórar
vikur fram að áramótum yrðu
ómannaðar. Síðan þá hef ég
ekki heyrt í þeim en það var
það sem vantaði upp á þá. Það
er læknir væntanlegur hingað
um áramótin ásamt hjúkrunar
fræðingi en sá samningur
gildir til júní eða júlí minnir
mig. Neyðarþjónusta er á
svæðinu, sjúkrabíll og slíkt.
Ef það er læknir í Grundar
firði eða í Stykkishólmi getur
neyðarþjónustan farið þangað
en þangað er langt að sækja
neyðarþjónustu. Almenn
læknisþjónusta verður að vera
sótt annars staðar, en þetta er
ekki gott ástand,“ segir Krist
inn Jónasson bæjarstjóri Snæ
fellsbæjar. -sþ
Ný gata
DALIR: Vinna hófst í síð
ustu viku við gerð nýrrar
götu í Búðardal. Gatan er inn
af Lækjarhvammi og kemur
niður á milli tveggja húsa
innar lega í þeim botnlanga.
Við nýju götuna er gert ráð
fyrir þremur íbúðarhúsum.
-gbþ
Borgarverk
átti lægsta boð
í gatnafram
kvæmdir
AKRANES: Á fundi
skipulags og umhverfis
ráðs Akraneskaupstaðar 14.
nóvem ber sl. voru opnuð til
boð í verkið „Skógarhverfi
3C og 5 – Gatnagerð og
lagnir.“ Fjögur tilboð bárust
í verkið og var það lægsta frá
Borgarverki ehf. og hljóðaði
upp á 1.052.350.000 krónur.
Íslenskir aðalverktakar ehf.
buðu 1.088.156.873 kr en
þriðja lægsta tilboð barst frá
Þrótti ehf. 1.106.331.850
kr. Stéttafélagið ehf. átti
hæsta tilboð, en fyrirtækið
bauð 1.590.743.500 krónur.
Skipulags og umhverfis
ráð lagði til að gengið yrði til
samninga við lægstbjóðenda,
þ.e. Borgarverk ehf. -vaks
Til minnis
23. nóvember árið 2001 var
íslenska kvikmyndin Gæsa
partí frumsýnd og var henni leik
stýrt af Böðvari Bjarka Péturssyni.
Myndin var tekin á aðeins sex
dögum, spunnin og leikin aðal
lega af konum úr Borgarnesi og
nágrenni. Myndin gerist á einum
sólarhring á Mótel Venusi í grennd
við Borgarnes þar sem nokkrar
vinkonur aðalsöguhetjunnar hafa
tekið staðinn á leigu og slá upp
gæsapartíi. Vinkonurnar sýna
henni rækilega fram á hvers konar
lífi hún er að fórna fyrir hnapp
helduna og hvað bíði hennar.
Gaman er að rifja þetta upp.
Veðurhorfur
Á fimmtudag eru líkur á austan
815 m/s með rigningu, einkum
austanlands, en þurrt að kalla á
Vesturlandi. Hlýnar heldur, hiti
3 til 8 stig síðdegis. Á föstudag
verður austan og norðaustan
815. Yfirleitt þurrt um landið
suðvestanvert, en rigning með
köflum í öðrum landshlutum og
talsverð rigning á Austfjörðum.
Hiti breytist lítið. Á laugardag má
búast við suðaustan og austan
813 og rigningu eða súld, en
hægari vindur og þurrt að kalla
norðanlands. Hiti 3 til 8 stig.
Á sunnudag má gera ráð fyrir
austlægri átt með rigningu, en
úrkomulítið á Vesturlandi. Hiti
svipaður.
Vestlendingur
vikunnar
Anastasiia Krasnoselska kom sem
flóttamaður til Íslands frá Úkra
ínu í byrjun apríl síðastliðinn
ásamt níu ára dóttur sinni, Önnu.
Anastasiia er frá Kiev og segist hún
svo sannarlega muna daginn sem
innrásin hófst í lok febrúar á þessu
ári. Þeim degi gleymi hún aldrei.
Hún er í viðtali í Skessuhorni vik
unnar og er Vestlendingur vik
unnar að þessu sinni.
Á fundi byggðarráðs Borgar
byggðar síðastliðinn fimmtudag var
lagður fram dómur Landsréttar í
máli Gunnlaugs A Júlíussonar fyrr
verandi sveitarstjóra gegn Borgar
byggð. „Nú hefur verið stað
fest á tveimur dómsstigum að rétt
var staðið að uppsögn fyrrverandi
sveitarstjóra. Landsréttur komst
hins vegar að þeirri niðurstöðu
að þriggja mánaða uppsagnar
frestur teldist ekki til umsamins sex
mánaða biðlaunatíma, heldur teld
ist biðlaunatími fyrst byrja að líða
að loknum uppsagnarfresti, og því
ætti fyrrum sveitarstjóri rétt á orlofi
í uppsagnarfresti,“ segir í bókun
byggðarráðs. Þá segir: „Dómur
inn staðfestir öll sjónarmið Borgar
byggðar að öðru leyti og kemur
því verulega á óvart að sveitar
félaginu sé gert að bera svo háan
málskostnað. Byggðarráð telur
rétt að leita eftir áfrýjunarleyfi til
Hæstaréttar þar sem niðurstaðan
hefur almennt fordæmisgildi um
hvernig túlka beri samningsákvæði
um biðlaunarétt,“ segir í bókun en
sveitarstjóra var falið að fylgja mál
inu eftir. mm
Framtakssjóðurinn Horn IV hefur
fjárfest í fyrirtækinu Eðalfangi
og verður með kaupunum stærsti
einstaki hluthafi í félaginu. Fyrir
tækið Eðalfang er í grunninn tvö
vestlensk matvælafyrirtæki með
áherslu á sjávarútveg; þ.e. Eðal
fiskur ehf. í Borgarnesi og Norðan
fiskur ehf. á Akranesi. Nú hefur
verið gefið út nýtt hlutafé en jafn
framt leggja núverandi hluthafar
félaginu til fjármagn en heildar
fjármögnun í þessu verkefni nú er
einn milljarður króna. Samkvæmt
tilkynningu frá félögunum verður
nýtt hlutafé nýtt til fjárfestinga í
tækjabúnaði og sjálfvirknivæðingu
sem mun nýtast félaginu við upp
byggingu á vinnslu til framleiðslu
á laxi til útflutnings og til að fylgja
eftir og efla sölu og markaðsstarf á
alþjóða mörkuðum.
Eðalfiskur og Norðanfiskur
framleiða hágæða sjávarfang, hvort
á sínu sviði. Eðalfiskur sérhæfir
sig í framleiðslu, sölu og dreifingu
á ferskum, frystum, reyktum og
gröfnum laxaafurðum þar sem stór
hluti afurða fyrirtækisins er seldur
á erlendum mörkuðum. Norðan
fiskur ehf. sérhæfir sig í fram
leiðslu, sölu og dreifingu á sjávar
fangi til veitinga og stóreldhúsa
á innanlandsmarkaði ásamt sölu
neytendapakkninga í verslunum
um land allt. Fyrirtækin eru alls
með 62 starfsmenn og viðskiptavini
í níu löndum.
Horn IV er framtakssjóður í
rekstri Landsbréfa sem hóf starf
semi á síðasta ári og fjárfestir í
óskráðum íslenskum fyrirtækjum.
Sjóðurinn er 15 milljarðar króna
að stærð og eru kaupin þriðja fjár
festing sjóðsins.
„Kaup Horns IV á kjölfestu
hlut í Eðalfangi eru afar ánægjuleg
og gefur okkur tækifæri til frekari
vaxtar á komandi árum. Við erum
stolt af þeim árangri sem við höfum
náð með söluaukningu undan
farið ár í Eðalfiski og Norðan
fiski. Með því fjármagni sem kemur
inn í félagið verður okkur kleift að
verða öflugir þátttakendur í næstu
bylgju í sjávarútvegi á Íslandi sem
er þegar hafin. Mikil tækifæri eru
í verðmætasköpun með fullvinnslu
á Íslandi til útflutnings í samvinnu
við eldisfyrirtækin. Á sama tíma að
halda áfram að starfa sem stærsti
dreifingaraðili fiskmetis á innan
landsmarkaði fremstu sjávarútvegs
þjóðar í heimi“, segir Engilbert
Hafsteinsson, stjórnarformaður
Eðalfangs.
mm
Björgunarsveitin Klakkur í
Grundarfirði hélt kynningarkvöld
fyrir áhugasama í húsnæði sveitar
innar síðastliðið mánudagskvöld.
Þar gafst fólki tækifæri til að skoða
tæki og tól sem sveitin hefur til
umráða ásamt því að hægt var að
skrá sig í björgunarsveitina og taka
þátt í æfingum og verkefnum í
framtíðinni. Mikil þörf hefur verið
á nýliðun í sveitinni en töluverð
fækkun hefur verið á útkallsfærum
mannskap undanfarin misseri.
tfk
Framtakssjóður fjárfestir í Eðalfangi
Fyrirtækin sérhæfa sig í vinnslu sjávarfangs.
Á myndinni eru f.v: Berglind Halldórsdóttir, Steinar Helgason og Hermann M.
Þórisson frá Horni IV, en frá Eðalfangi þau Engilbert Hafsteinsson, Kristján
Baldvinsson og Gestur B. Gestsson. Ljósm. aðsend.
Áfrýja dómi vegna sveitarstjóra
Klakkur með kynningarkvöld
Andri Ottó Kristinsson formaður Klakks segir frá helstu
verkefnum sveitarinnar. Óli Kristinn Skarphéðinsson og
Ólöf Ingibjörg Sigurjónsdóttir hlýða áhugasöm á.
Svavar Áslaugsson og Símon Grétar Rúnarsson björgunar
sveitarmenn sýna hér sexhjólið sem hefur reynst mjög vel
við krefjandi aðstæður.