Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2022, Side 5

Skessuhorn - 23.11.2022, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2022 5 178 sundmenn frá 15 félögum tóku þátt á Íslandsmeistaramóti í 25 metra laug sem fór fram í Ásvalla­ laug í Hafnarfirði um helgina. Mótið var með nýju sniði í ár þar sem unglingameistaramót fór fram fyrir hádegi og Íslandsmeistara­ mótið seinnipartinn. Tíu sundmenn frá Sundfélagi Akraness tóku þátt í mótinu: Alex Benjamín Bjarnason, Ásdís Erlings­ dóttir, Einar Margeir Ágústsson, Enrique Snær Llorens Sigurðsson, Guðbjarni Sigþórsson, Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Ingibjörg Svava Magnúsardóttir, Íris Arna Ingvarsdóttir, Kristján Magnússon og Viktoria Emilia Orlita. Enrique Snær varð Íslandsmeist­ ari í 400 metra fjórsundi á tím­ anum 4.28.78 eftir mjög vel útfært sund þar sem hann var fyrstur allt sundið. Guðbjörg Bjartey varð unglingameistari í 50 metra skrið­ sundi á 26.51 og Einar Margeir varð unglingameistari í 100 metra fjórsundi á 58.94. Að sögn Kjell Wormdal, þjálf­ ara SA, var um að ræða frábæra frammistöðu hjá krökkunum, mikið var um bætingar og sundfólkið mjög áberandi á mótinu. Niður­ staðan var einn Íslandsmeistara­ titill, tveir unglingameistarar, alls fengu þau 15 verðlaun og settu að auki átta Akranesmet á mótinu, glæsilegur árangur hjá þessum ungu og efnilegu sundmönnum. vaks Valgeir Páll Björnsson frá Sorpu flutti erindi á ráðstefnu um úrgangsmál sem fram fór á Hótel Hamri í Borgarnesi í síðustu viku. Þá komu fulltrúar sveitarfélaganna á Vesturlandi saman til að kynna sér nýjar leiðir og áskoranir í sorp­ málum. Valgeir Páll segir fjármál er varða sorphirðu vera í óvissu en á landsvísu skortir betri yfirsýn og samræmt eftirlit og utanum­ hald yfir kostnað við úrgangsmeð­ höndlun. „Sveitarfélögin vinna með mis­ munandi kerfi en verkferlar eru einnig misjafnlega nákvæmir og umfangsmiklir, þeir byggja þó á sama grunni. Óvissuþættir í kostn­ aði eru sökum þessa mismunandi í utanumhaldi sveitarfélaga. Full­ mannaður sorphirðubíll kostar 340 þúsund í hverri ferð en í sveitar­ félögum safna sorpbílar misjafn­ lega miklum úrgangi á mismunandi víðfeðmu svæði. Kostnaðurinn við dreifbýlin er meiri vegna stórra áhrifaþátta, þ.e. lengdar milli tunna, fjölda þeirra og magns sem fellur til af sorpi. Kosta þarf til tunnur, söfnun, flutning, umhleðslu og ráðstöfunarleið. Á landsbyggðinni safnast að meðaltali 5 kg af pappa í hverri söfnun og 2 kg af plasti. Sem dæmi safnar Borgar byggð um 7 kg af pappa og 0,5 kg af plasti í hverri söfnun en þar er tunnufjöldi 830 í þéttbýli og 328 í dreifbýli,“ segir Valgeir. Kostnaður við úrgangs­ meðhöndlun er þess vegna mis­ jafn eftir sveitarfélögum en sam­ ræma þarf kostnaðarþætti og öðlast betri yfirsýn til að tryggja skilvirk­ ari leiðir í úrgangsmeðhöndlun. sþ Skortir samræmt eftirlit og utanumhald yfir kostnað við úrgang Frá ráðstefnunni. Ljósm. sþ. Sundmenn SA stóðu sig með prýði Hluti keppenda Sundfélags Akraness á mótinu um helgina. Ljósm. SA Vefnaðardagar Vinnustofan mín á neðri hæð í Grensáskirkju í Reykjavík verður opin á laugardaginn 26. nóvember frá 12–17. Nýja línan mín í vefnaði verður til sýnis ásamt treflum og sjölum úr silki. Allir hjartanlega velkomnir. Hlakka til að sjá ykkur. Salome Guðmundsdóttir Veflistakona s. 864 5503 Jóhanna Kristín Guðmundsdóttir heldur sýningu á jólahandverki sínu á Bókasafni Akraness. Til sýnis er jólaskraut, dúkar og púðar sem Jóhanna hefur unnið í gegnum árin. Formleg opnun verður fimmtudaginn 24. nóvember kl. 16.00. Sýningin stendur fram í miðjan desember. Bókasafn Akraness • Dalbraut 1 • s. 433 1200 bokasafn.akranes.is • bokasafn@akranes.is Allir velkomnir Jólasýning Jóhönnu SK ES SU H O R N 2 02 2 AUGLÝSING UM SKIPULAG Í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga og 1. mgr. 41. gr. sömu laga er hér með auglýst tillaga að breytingu Aðalskipulags Borgarbyggðar 2010-2022 og tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Borgarbyggð. Víðines í landi Hreðavatns – aðalskipulagsbreyting, Frístundabyggð (F5) breytt í íbúðabyggð (Í8) Íbúðasvæði Víðiness að Hreðavatni (áður Frístundabyggð að Hreðavatni) - deiliskipulagsbreyting Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 8. september 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á landnotkun í Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 og að breytingu deiliskipulags frístundabyggðar í Víðinesi í landi Hreðavatns frá árinu 2006 m.s.br. Ofangreindar tillögur eru aðgengilegar á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is frá 25. nóvember 2022 til og með 13. janúar 2023. Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við auglýstar skipulagstillögur og er frestur til að skila inn athugasemdum til 13. janúar 2023. Athugasemdum skal skila skriflega í Ráðhús Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borgarnesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is. Borgarbyggð, 23. nóvember 2022 Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.