Skessuhorn - 23.11.2022, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 20228
Gæðaviðmið
innleidd
GRUNDARFJ: Í vor hófst
vinna í leikskólanum Sól
völlum í Grundarfirði við
að innleiða gæðaviðmið um
leikskólastarf en það er eins
konar uppskrift að góðu leik
skólastarfi sem hver skóli
gerir að sínum, segir í frétt
á vef Grundarfjarðarbæjar.
Kerfisbundið eru gæðavið
miðin innleidd með því að
þræða þau í gegnum allt
starfið. Notaðar eru m.a.
kannanir, rýni á fundum og
margt fleira til þess að finna
út hvort skólinn mæti þeim
viðmiðum sem lagt er upp
með í leikskólastarfi á Íslandi
og birtist í skólastefnu
Grundarfjarðarbæjar (frá
2014, verður endurskoðuð
2023) og í skólanámskrá
leikskólans. Leikskólinn fær
beinan stuðning frá skóla
þjónustu Ásgarðs við að
útfæra leikskólastarfið, áætl
anagerð, kennslu og stjórn
endaráðgjöf o.fl. Samhliða
þessum umbótum og rýni
á starfinu verður sett upp
áætlun um innra mat skólans
en með innra mati er átt við
sjálfsmat stofnunar og er það
unnið af starfsfólki hennar.
Markmið innra mats er
að tryggja að starfsemi skól
ans sé í samræmi við lög,
reglugerðir og aðalnámskrá.
Grundvallaratriði innra mats
er að það stuðli að umbótum
sem bæti skólastarfið og efli
skólaþróun. Stofnað verður
matsteymi, búin til langtíma
áætlun og ársáætlun, lagðar
fyrir kannanir meðal starfs
fólks og foreldra auk annarra
gagna sem munu nýtast skól
anum við að rýna í sitt starf
og sjá hvar hann stendur
gagnvart þeim viðmiðum
sem lagt er upp með. -gbþ
Aflatölur fyrir
Vesturland
12.–18. nóvember
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 3 bátar.
Heildarlöndun: 935.793 kg.
Mestur afli: Hákon EA:
930.910 kg í tveimur
löndunum.
Arnarstapi
Engin löndun á tímabilinu.
Grundarfjörður: 8 bátar.
Heildarlöndun: 434.930 kg.
Mestur afli: Breki VE:
139.187 kg í einum róðri.
Ólafsvík: 10 bátar.
Heildarlöndun: 164.357 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
41.200 kg í þremur róðrum.
Rif: 14 bátar.
Heildarlöndun: 421.512 kg.
Mestur afli: Örvar SH:
80.196 kg í einni löndun.
Stykkishólmur: 3 bátar.
Heildarlöndun: 13.650 kg.
Mestur afli: Bára SH: 7.556
kg í fjórum löndunum.
1. Hákon EA – AKR:
663.340 kg. 12. nóvember.
2. Hákon EA – AKR:
267.570 kg. 17. nóvember.
3. Breki VE – GRU:
139.187 kg. 15. nóvember.
4. Örvar SH – RIF: 80.196
kg. 15. nóvember.
5. Tjaldur SH – RIF: 79.630
kg. 14. nóvember.
-sþ
Í vikunni sem leið færðu ellefu
kvenfélagskonur frá Kvenfélagi
Borgarness, Öldunni gjafir og áttu
góða stund með starfsfólki. Aldan
vinnustofa í Borgarnesi er vernd
aður vinnustaður fyrir fólk með
skerta starfsgetu. Konurnar færðu
stofnuninni þyngingarsæng og sér
stök slökunargleraugu að gjöf, en
þessi búnaður mun meðal annars
koma að góðum notum við slökun
og til að draga úr streitu og kvíða.
Fram kemur á heimasíðu Borgar
byggðar að gjafirnar munu koma
sér vel þar sem Aldan er nýbúin að
fjárfesta í nuddstól og sett hefur
verið upp sérstakt skynörvunar
og slökunarherbergi í nýja hús
næði Öldunnar á Sólbakka. „Starfs
fólk Öldunnar þakkar kvenfélaginu
kærlega fyrir gjafirnar og fyrir að
gefa sér góðan tíma til að stoppa og
spjalla við starfsfólk,“ segir í frétt á
vef Borgarbyggðar. vaks
Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðv
anna fyrir 202223 er nú komin á
vefinn og er sömuleiðis væntanleg
á prenti í vikunni. Jafnan er víða
til sveita beðið með eftirvæntingu
eftir að Hrútaskráin komi út. Þá
setjast menn yfir þetta merka rit,
spá og spekúlera og velja í fram
haldinu hvaða sæði verður pantað
í uppáhalds ærnar til kynbóta á
stofninum.
Á vef LMR kemur fram að skráin
er 56 síður að stærð, litprentuð í
A4broti og inniheldur upplýsingar
um 47 hrúta sem notaðir verða
til sæðinga í vetur. „Hrútakostur
inn er að venju gríðarlega öflugur,
blanda af reynsluboltum sæðinga
stöðvanna og yngri kappa sem hafa
nú hafið sinn fyrsta vetur á sæðinga
stöðvunum. Þá eru aðrir valkostir
í boði, svo sem ferhyrndur hrútur
og feld og forystufjárhrútar.“ Rit
stjóri skráar innar er Guðmundur
Jóhannes son en efni hennar er að
mestu tekið saman og skrifað af Árna
B. Bragasyni, Eyþóri Einarssyni
og Fanneyju Ólöfu Lárusdóttur.
Flestar ljósmyndir eru teknar af
Höllu Eygló Sveinsdóttur en auk
hennar tóku Eyþór Einarsson og
Torfi Bergsson myndir af hrútum.
Rósa Björk Jónsdóttir sá um upp
setningu og umbrot en prentun var
í höndum Fjölritunar og útgáfu
þjónustunnar í Borgarnesi. mm
Útvarp Akraness er í hugum
margra Skagamanna órjúfanlegur
hluti af jólaundirbúningnum en
útvarpað er ætíð fyrstu helgina í
aðventu. „Í ár verður útvarpað dag
ana 25.–27. nóvember. Þetta er
í 35. skipti sem Útvarp Akraness
fer í loftið. Dagskráin verður fjöl
breytt, fræðandi og skemmtileg og
ættu allir að finna eitthvað við sitt
hæfi. Gamlir þættir í bland við nýja.
Við verðum í loftinu á FM 95,0 og
á www.iasund.is alla helgina,“ segir
í tilkynningu.
mm
Hrútaskráin komin út
Aldan fékk góðar gjafir
Frá afhendingu gjafarinnar. Ljósm. borgarbyggd.is
Útvarp Akraness verður í loftinu um helgina
Stefnt er að því að malbika Borg
arbraut í Borgarnesi, frá Egils
götu og upp fyrir Borgarbraut 15,
í þessari viku ef veður leyfir. Náist
það hefst vinna við yfirborðsfrá
gang, eins og hellulögn og kant
steina. Vonir standa til að ná að
klára þessa vinnu sem fyrst en
ljóst er að það þurfti að endurnýja
meira af gangstéttum en gert var
ráð fyrir í upphafi.
Fram kemur á heimasíðu
Borgar byggðar að í beinu fram
haldi hefjist vinna við að endur
nýja lagnir og götu frá Borgar
braut 15 upp að gatnamótum
Skallagrímsgötu. Er um að ræða
áfanga sem átti að fara í á næsta
ári miðað við upphaflega áætlun
en ákveðið var að fara í þennan
hluta núna strax til að hægt sé
að fjarlægja hjáleiðina í gegnum
Kveldúlfsvöll.
„Þegar búið verður að malbika
fyrsta hlutann verður gatan opnuð
fyrir umferð en þó þarf að aka
varlega um svæðið þar sem áfram
verður unnið að því að merkja
svæðið og huga að frágangi,“ segir
í tilkynningu á borgar byggd.is.
vaks
Gatnaframkvæmdir í gangi á Borgarbraut
Séð yfir Borgarnes. Ljósm. mm
Andrea Björnsdóttir í viðtali hjá Hlédísi Sveinsdóttur.