Skessuhorn - 23.11.2022, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 202210
Líkt og mörg undanfarin ár verður
Lionsklúbbur Akraness með útleigu
á ljósakrossum í kirkjugarðinum í
Görðum nú í byrjun aðventunnar.
„Við verðum í garðinum á eftir
töldum dögum: Laugardaginn 26.
nóvember kl. 11.00. 15.30, sunnu
daginn 27. nóvember kl. 13.00.
15.30 og laugardaginn 3. desember
kl. 13.00. 15.30,“ segir í tilkynn
ingu frá klúbbnum.
„Við höfum lengi styrkt Heil
brigðisstofnun Vesturlands á Akra
nesi með tækjagjöfum og munum
við að sjálfsögðu halda því áfram.
Í fyrra afhentum við tæki að verð
mæti 3,7 milljónir króna. Nú í ár
afhentum við Heilbrigðisstofnun
Vesturlands að gjöf færanlegt
ómskoðunartæki að verðmæti sjö
milljónir króna.“
Leiguverðið fyrir ljósakrossana
í kirkjugarðinum verður það sama
og á síðasta ári eða 8.000 krónur.
„Að venju munum við endurnýja
krossana og í ár fáum við 250 nýja
krossa. Upplýsingar um útleigu
krossanna gefa Valdimar Þorvalds
son í síma 8999755 og Ólafur
Grétar Ólafsson í síma 8442362.
Einnig má panta krossa á netföngin
oligretar@aknet.is og valdith@
aknet.is Greiða má inn á reikning
018626017754 kt: 5305861469.
Ykkar stuðningur hefur gert okkur
kleift að styðja myndarlega við
bakið á Heilbrigðisstofnun Vestur
lands á Akranesi og við Lionsmenn
þökkum kærlega fyrir myndar
legan stuðning undanfarinna ára
og vonumst til að sá stuðningur
haldi áfram,“ segir í tilkynningu frá
Lionsklúbbi Akraness.
mm
Þriðjudaginn 15. nóvember sl. var
haldinn súpufundur fyrir atvinnu
rekendur í Borgarbyggð. Um sjö
tíu manns mættu til að hlýða á
örfyrirlestra og taka þátt í sam
talinu. Tilgangur fundarins var
að auka samtal milli atvinnu
lífs og stjórnsýslunnar. Á örfyrir
lestrum gátu gestir fengið kynn
ingu á tilgangi og markmiði Upp
byggingarsjóðs Vesturlands, kynn
ingu á nýju deiliskipulagi í Vallar
ási ásamt fræðslu um rammasamn
inga Ríkiskaupa. Þá fór Guðveig
L. Eyglóardóttir forseti sveitar
stjórnar yfir framtíðarsýn sveitar
stjórnar í atvinnumálum. Umræð
urnar í lokin voru einnig afar líf
legar en þá gafst fundargestum
tækifæri til að spyrja viðmælendur
og kjörna fulltrúa spjörunum úr.
Á heimasíðu Borgarbyggðar
segir að ljóst sé að fundur sem þessi
sé mjög mikilvægur fyrir atvinnu
lífið og er fyrirhugað að halda
annan slíkan á vormánuðum. vaks
Síðastliðinn fimmtudag voru hin
árlegu umhverfisverðlaun Borg
arbyggðar afhent við hátíðlega
athöfn í Ráðhúsi Borgarbyggðar.
Að venju var það umhverfis og
landbúnaðar nefnd sveitarfélags
ins sem veitti verðlaunin og stýrðu
samkomunni þær Sigrún Ólafs
dóttir formaður nefndarinnar og
Hrafnhildur Tryggvadóttir deildar
stjóri umhverfis og framkvæmda
mála. Auglýst var eftir tilnefningum
frá almenningi um hvaða garðar,
býli eða fyrirtæki verðskulduðu
að hljóta verðlaun fyrir árið 2022.
Nefndin safnaði saman þeim til
nefningum sem bárust og fór í vett
vangsferðir til að meta aðstæður.
Einnig var samfélagsviðurkenning
afhent. Verðlaunahöfum var afhent
birkiplanta frá Páli og Ritu í Greni
gerði auk viðurkenningarskjals og
handverks úr Ljómalind.
Snyrtilegasta
bændabýlið
Gunnlaugsstaðir í Stafholtstungum
hlutu verðlaun fyrir snyrtilegasta
bændabýlið í sveitarfélaginu. Þar
eru bændur þau Þórður Einars
son, Jórunn Guðsteinsdóttir og
Guðmundur Eggert Þórðarson.
Við verðlaununum fyrir þeirra
hönd tók Caroline Langhein. „Á
Gunnlaugsstöðum hefur mikil
uppbygging átt sér stað á liðnum
árum. Þar er nýlegt, stórglæsilegt
fjós og mikil og stöðug þróun í
uppbyggingu. Gömul hús í bland
við ný, en öllu vel við haldið. Þá
er mikil ræktun í gangi á jörðinni.
Gunnlaugsstaðir eru dæmi um
góða samvinnu milli kynslóða.
Virkilega ánægjulegt er að sjá svona
þróun í sveitum Borgarbyggðar,“
sagði í umsögn dómnefndar.
Falleg lóð við
íbúðarhúsnæði
Kjartansgata 20 í Borgarnesi hlaut
verðlaun fyrir snyrtilegasta hús og
lóð í þéttbýli. Í tilnefningu segir:
„Virkilega snyrtileg lóð sem dútlað
er við af kostgæfni. Hús og lóð eru
mjög snyrtileg, gróður vel snyrtur
og augljóst að mikil vinna er lögð í
umhirðu.“ Þar búa þau Hilmar Þór
Hákonarson og Dóróthea Elísdóttir.
Snyrtileg lóð við
atvinnuhúsnæði
Hótel Varmaland í Stafholtstungum
hlaut verðlaun sem snyrtilegasta
lóð og atvinnuhúsnæði. Í umsögn
segir m.a. að aðgengi að húsinu sé
aðlaðandi og skemmtilegt samspil
þess gamla og nýja. Einstaklega vel
heppnuð viðbygging er við húsið.
Í eldri hluta hússins var um ára
tuga skeið rekinn húsmæðraskóli
og síðar gistiheimili og grunn
skóli um tíma. Eftir að húsið var
selt nýjum eigendum var byggt við
það og breytt miklu innan dyra.
Loks var opnað hótel sem rekið
er allt árið. Það var Herborg Svala
Hjelm hótel stjóri sem tók við verð
laununum.
Steinunn hlaut sam
félagsviðurkenninguna
Samfélagsviðurkenning umhverfis
og landbúnaðarnefndar vegna
umhverfis og landbúnaðar
mála hlaut Steinunn Árnadóttir
í Borgar nesi. Í umsögn nefndar
innar segir: „Dýravelferð þarf alltaf
að vera í hávegum höfð ekki síst í
stóru og öflugu landbúnaðarhéraði
eins og Borgarbyggð. Mikilvægt er
að fólk láti sig hag dýranna varða
og leggi þeirra málstað lið þegar
þurfa þykir. Það þarf kjark, þor
og þrautsegju til að standa upp og
taka afstöðu með erfiðum málum
með vindinn í fangið. Það hefur
Steinunn svo sannarlega gert þegar
um er að ræða erfið dýravelferða
mál. Af einstakri elju hefur hún
fylgt málum eftir af eldmóði sem
eftir er tekið.“
Aðspurð sagðist Steinunn Árna
dóttir þakklát Borgarbyggð fyrir
þann stuðning sem sveitarfélagið
hafi sýnt í því dýravelferðarmáli
sem um ræðir, jafnvel þótt bein
aðkoma sveitarfélaga sé lítil eins
og núverandi lagarammi sýni. „Það
skiptir miklu máli að við förum
að sjá breytingar þegar kemur að
viðbrögðum við því þegar grunur
leikur á um að dýravelferð sé í
ólagi. Ég lít svo á að lög um dýra
velferð séu góð, en við þurfum ein
faldlega að vera betri í að fylgja
þeim eftir. Hlutaðeigandi stofnanir
þurfa þar að taka sig á. Nú er nýlát
inn Stefán Skarphéðinsson fyrrum
sýslumaður Borgfirðinga. Hann
átti drjúgan þátt í að semja þau lög
sem nú eru í gildi um dýravelferð
og finnst mér vel við hæfi að minn
ast hans nú fyrir hans góða þátt í
því,“ sagði Steinunn í samtali við
Skessuhorn.
mm
Súpufundur í
Borgarbyggð vel sóttur
Frá súpufundinum í Borgarnesi. Ljósm. borgarbyggd.is
Ljósakrossar í kirkjugarðinn
helsta fjáröflun Lionsklúbbsins
Valdimar Þorvaldsson forseti Lionsklúbbs Akraness afhenti í síðustu viku gjafa
bréf fyrir nýtt færanlegt ómskoðunartæki. Björn Gunnarsson svæfingalæknir á
HVE veitti gjöfinni viðtöku. Ljósm. mm
Umhverfisverðlaun Borgarbyggðar afhent
Fulltrúar verðlaunahafa. Sitjandi eru Herborg Svala Hjelm frá Hótel Varmalandi, Caroline Langhein frá Gunnlaugsstöðum
og Steinunn Árnadóttir. Á myndina vantar Hilmar og Dórótheu, eigendur Kjartansgötu 20. Fyrir aftan eru nefndarmenn og
starfsmaður hennar. F.v: Hrafnhildur Tryggvadóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Þórður Brynjarsson, Þorsteinn Eyþórsson og Kristján
Á. Magnússon.
Gunnlaugsstaðir í Stafholtstungum. Ljósm. jþg. Hótel Varmaland. Kjartansgata 20 í Borgarnesi.