Skessuhorn - 23.11.2022, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2022 11
Borgarbyggð og Landbúnaðar
háskóli Íslands hafa í haust átt í við
ræðum um leigu á húsnæði í eigu
skólans fyrir starfsemi Slökkviliðs
Borgarbyggðar á Hvanneyri. Fram
kemur á heimasíðu Borgarbyggðar
að samkomulag hafi náðst og er
búið að skrifa undir samning.
„Þetta eru mikil gleðitíð
indi enda er með þessu verið að
tryggja öryggi íbúa sveitarfélagsins
á Hvanneyri og nágrenni sem og í
Skorradal,“ segir í frétt á heimasíðu
Borgarbyggðar. Umrætt húsnæði
er um 200 fermetrar að grunn
fleti og nefnist iðulega Hjartarfjós,
kennt við Hjört Snorrason skóla
stjóra Búnaðarskólans á Hvanneyri
18941907 og kennara þar til 1911.
Hjörtur var bóndi á YtriSkelja
brekku í Andakíl 19071915 en í
Arnarholti í Stafholtstungum frá
1915 til æviloka. Hjartarfjós þykir
henta vel fyrir slökkviliðið en það
mun nú hýsa dælubílinn Skorra sem
fluttur var til geymslu á Bifröst fyrr
í haust. Bíllinn er í eigu Skorradals
hrepps en notaður af Slökkvi
liði Borgarbyggðar frá kaupum á
honum árið 2009. Auk þess verður
í húsinu annar nauðsynlegur bún
aður slökkviliðsins og aðstaða fyrir
slökkviliðsmenn.
„Slökkvilið Borgarbyggðar
fagnar því að fá húsnæði fyrir
slökkviliðsfólk, bíla og búnað á
Hvanneyri. Við finnum einnig
fyrir auknum áhuga sveitarfélags
ins, Landbúnaðarháskólans og frá
öðrum hagsmunaaðilum á fram
tíðar uppbyggingu á aðstöðu fyrir
slökkviliðið á Hvanneyri. Slökkvi
liðið fagnar einnig þeirri umræðu
og því samtali sem átt hefur sér stað
að undanförnu varðandi bruna
mál á Hvanneyri, bæði við LbhÍ,
Skorradalshrepp og einnig Íbúa
samtök Hvanneyrar og nágrennis
og vonum við svo sannarlega að það
góða samtal haldi áfram. Hér lögð
ust allir á eitt og leystu þann vanda
sem skapaðist í húsnæðismálum
slökkviliðsins í haust. Að geta boðið
fólkinu sem kemur til bjargar þegar
kallið kemur, hvenær sem er sólar
hringsins allan ársins hring, upp
á viðunandi starfsaðstöðu skiptir
mestu máli því án þeirra þurfum
við enga aðstöðu og án þeirra
ættum við ekkert slökkvilið,“ segir
Heiðar Örn Jónsson varaslökkviðs
stjóri í samtali við Skessuhorn.
mm
Hjartarfjós á Hvanneyri
verður slökkvistöð
Jólaljósin verða tendruð við hátíðlega athöfn á Akratorgi laugardaginn 26. nóvember kl 17:00.
Kátir jólasveinar mæta m.a. á svæðið og getur fjölskyldan átt notalega samverustund í hjarta Akraness.
Akranes.is
Akraneskaupstaður auglýsir eftir verslunar- og
þjónustu aðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að
taka á móti gjafabréfum sem er jólagjöf kaupstaðarins til
starfsmanna sveitarfélagsins.
Fyrirkomulaginu verður þannig háttað að starfsmenn fá
gjafabréf ásamt upptalningu á fyrirtækjum á Akranesi sem
skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða
upp í kaup á vöru og þjónustu hjá viðkomandi fyrirtæki.
Gert er ráð fyrir að hægt verði að nota gjafabréfin á
tímabilinu frá 15. desember 2022 – 28. febrúar 2023.
Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að
fyrirtækið sé skráð hjá hinu opinbera og sé starfandi á
Akranesi.
Um er að ræða ríflega 750 gjafabréf sem afhent verða
starfsmönnum um miðjan desember 2022.
Áhugasamir skrá sig til leiks með því að senda tölvupóst á
netfangið harpa@akranes.is
Skráningafrestur er til og með 30. nóvember n.k.
Nánari upplýsingar um verkefnið veitir Harpa Hallsdóttir,
mannauðsstjóri Akraneskaupstaðar, í síma 433 1000 eða
harpa@akranes.is
JÓLAGJÖF TIL
STARFSMANNA
AKRANESKAUPSTAÐAR
– GJAFABRÉF
Eftir undirskrift
samningsins framan við
Hjartarfjós á Hvanneyri.
F.v. Stefán Broddi
Guðjónsson sveitarstjóri,
Ragnheiður I Guðmunds
dóttir rektor LbhÍ, Kristín
Theodóra Ragnarsdóttir
rekstrarstjóri LbhÍ,
Heiðar Örn Jónsson
varaslökkviliðsstjóri og
Vigfús Ægir Vigfússon
slökkviliðsmaður.
Ljósm. borgarbyggd.is