Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2022, Qupperneq 22

Skessuhorn - 23.11.2022, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 202222 Anna Þórhildur Gunnarsdóttir, píanóleikari frá Brekku í Norðurár­ dal, vann til alþjóðlegra verðlauna í Hollandi 21. október síðast­ liðinn. Anna hóf að læra á píanó sjö ára við Tónlistarskóla Borgar­ fjarðar þar sem hún kláraði fram­ haldspróf. Leiðin lá svo í Lista­ háskóla Íslands þar sem hún kláraði bakkalárgráðu sína en þá fór hún til Maastricht í Hollandi þar sem hún útskrifaðist sl. sumar með meistaragráðu í píanóleik. Hen­ riette Hustinx verðlaunin eru veitt einum útskriftarnemenda úr Tónlistar háskólanum í Maastricht og var Anna Þórhildur ein þriggja nemenda sem tilnefnd var til verð­ launanna, fær Anna 5.000 evrur, listaverk og viðurkenningarskjal að launum. „Ég er svo sátt, þetta er í fyrsta skipti sem ég vinn eitthvað á ævinni,“ segir Anna kímin en hún segir verðlaunin gera sér kleift að skapa sín eigin tækifæri í tónlistinni og koma sér betur á framfæri á Íslandi. Anna Þórhildur er einungis 24 ára gömul og kennir nú á píanó við Tónlistarskólann í Hafnarf­ irði. Hún stefnir þó á doktorsnám í tónlistar rannsóknum. „Ég hef mikinn áhuga á akademísku starfi, tónlistar greiningum og rann­ sóknum og stefni á doktorsnám í því í framtíðinni. Í bakkalárritgerðinni minni greindi ég þjóðleg einkenni í píanókonserti Jórunnar Viðar og í meistararitgerðinni minni greindi ég helstu stílísku einkenni klass­ ískrar píanótónlistar á Íslandi á seinni hluta 20. aldar. Mér finnst rannsóknir á íslenskri tónlist virki­ lega spennandi viðfangsefni sem mig langar að kanna meira í fram­ tíðinni og ég hef mikinn áhuga á að miðla slíkri þekkingu með tónleika­ haldi, því við erum svo rík af flottri tónlist hér á Íslandi,“ sagði Anna Þórhildur í samtali við Skessuhorn síðasta sumar. sþ Knattspyrnudeild Skallagríms sendir tvö lið til keppni í vetur í 5. flokki karla og kvenna í Faxaflóamótinu. Vegna aðstöðuleysis í Borgar­ nesi þurfa liðin að spila heimaleiki sína á útivelli og ferðast til dæmis á Selfoss, Akranes, Álftanes, og til Hafnarfjarðar, Ólafsvíkur og Kópa­ vogs til að spila leikina. Jón Theo­ dór Jónsson er yfirþjálfari og fram­ kvæmdastjóri Skallagríms og segir hann að vegna aðstöðuleysis sé þetta því miður raunin. Af hverju skiptast heimaleik­ irnir á svona marga staði? „Þetta er í raun þannig að við sendum alltaf á liðin: „Viljið þið ekki heimaleik­ inn bara?“ Og í raun græða allir á því, við sleppum við að leigja völl og þau losna við ferðalagið. Ef við eigum heimaleik til dæmis á móti Keflavík og förum ekki þangað þá þurfum við að leggja út fyrir velli með tilheyrandi kostnaði,“ segir Jón Theodór. Hvar eru krakkarnir að æfa yfir veturinn? „Þau æfa á sparkvellinum við grunnskólann sem er leikvöllur og við þurfum því alltaf að biðja krakka vinsamlegast að hypja sig af vellinum svo við getum byrjað æfingu! Völlurinn er í sæmilegu ástandi, nokkrar skemmdir eru á honum en við gerum náttúrulega það besta úr því. Það er nýlegt gras á honum en það voru unnin skemmdarverk á vellinum og það er hola í honum sem er tilfallandi en verður vonandi lagað fljótlega.“ Jón Theodór segir varðandi ferðakostnað að hann lendi allur á foreldrum, það sé enginn sem leggi út fyrir því. „Borgarbyggð er ekk­ ert okkur innan handar með það og það gerist alveg að foreldrar geta verið að fara á Selfoss á laugar­ degi og til Keflavíkur á sunnudegi. Þau þurfa að leggja út fyrir bensín­ kostnaði og öðru tilheyrandi. Við erum að hamra á því að foreldrarnir fylgi krökkunum sínum í leiki og við viljum sjá sem flesta styðja þau.“ Hlutirnir hafa breyst Hvað með aðstöðumálin? „Núna er pólitíkin þannig að við erum að berjast fyrir hálfu keppnishúsi og vonandi stefnir í þá átt að það gæti gerst. Knattspyrnuhús í hálfri stærð eru til að mynda á Selfossi og í Eyjum og þá gætum við haldið úti æfingum fyrir alla flokka og alveg upp í meistaraflokk. Nú er í raun engin aðstaða til að æfa yfir vetur­ inn og með stærð vallarins í huga að þá er það ekki ásættanlegt fyrir tólf ára krakka og upp úr að sprikla á einhverjum sparkvelli. Það er grátlegt miðað við alla þessa ástríðu í þessu og þessa miklu fjölgun iðk­ enda, sérstaklega stelpumegin. Það er gríðarlegur áhugi hjá krökk­ unum og því miður lendum við svo á vegg þegar kemur að aðstöðu­ málum. Staðan er bara þannig hjá þessum eldri að þau sem mestan áhuga hafa eru að æfa með ÍA á Akranesi en hin hafa flosnað upp úr fótboltanum og eru hætt. Hlutirnir hafa breyst, það er ekki ásættanlegt í dag að eina sem hægt er að gera er að fara út að hlaupa. Við viljum að einstaklingarnir séu að æfa á knattspyrnuvelli, í takkaskóm og með bolta límda við fæturna.“ Er einhver von á bættri aðstöðu á næstu árum? „Við erum vongóð og það er aðeins verið að halda okkur heitum. En maður veit alveg hvernig málin virka, það má lítið út af bregða til að þetta detti upp fyrir. Við höfum átt marga góði fundi með sveitarstjórn og sveitar­ stjóra og það virðist vera eins og það sé hugur í þeim að gera eitt­ hvað í þessum málum þannig að við vonum það besta,“ segir Jón Theo­ dór að lokum. vaks Hreppti Henriette Hustinx verðlaunin í Hollandi Anna Þórhildur var beðin um að gera kynningarmyndband fyrir keppnina sem hún tók upp með aðstoð vinkonu sinnar í Menntaskóla Borgarfjarðar. Hér er skjáskot úr myndbandinu sem leiddi til þess að Anna Þórhildur hreppti verðlaunin. Spila heimaleikina á útivelli Fimmti flokkur Skallagríms kvenna eftir heimaleik í Keflavík fyrir skemmstu. Ljósm. af FB síðu knattspyrnudeildar Skallagríms.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.