Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2022, Side 23

Skessuhorn - 23.11.2022, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2022 23 Skinkuhorn Sigrún Hanna Sigurðardóttir og Kristín Björk Jónsdóttir Sigrún Hanna Sigurðardóttir og Kristín Björk Jónsdóttir eru umsjónarmenn hlaðvarpsins Lífið á Laugum, sem fjallar um lífið í Laugaskóla í Sælingsdal. Þar var heimavistarskóli á 20. öld og ræða þáttastjórnendur við fyrrum nem­ endur og starfsfólk skólans um tím­ ann þeirra á Laugum, en skólinn þar var lagður niður um aldamótin síðustu. En af hverju Laugar? „Þetta er sérstakt samfélag sem myndast þegar fullt af krökkum og unglingum búa saman. Það var náttúrulega ýmislegt brallað og margt gerst. Og svo er líka bara forvitnilegt að vita hvernig skóla­ sagan þróast. Nú finnst manni ekkert langt síðan við vorum í skóla en það eru þó komin nokkur ár síðan,“ segir Sigrún og hlær. „Þarna náum við að spanna sögu Lauga frá u.þ.b. 1950 til 2000. Þannig þetta er menningarverð­ mæti, finnst mér. Vinskapur frá Laugum Sigrún og Kristín voru saman í Laugaskóla á níunda og tíunda áratugnum og hafa haldið vinskap síðan. Þegar þær litu við í Skinku­ hornið voru þær nýkomnar frá Tenerife með fjórum öðrum vin­ konum frá Laugum. Sigrún er bóndi á Lyngbrekku í Dölum þar sem hún er fædd og uppalin. Kristín er frá Þverfelli í Saurbæ en býr nú í Reykjavík þar sem hún starfar í banka, en hún er með háskóla­ próf í mannfræði og hagnýtri menningar miðlun. „Þegar Sigrún kom með þessa hugmynd til mín þá fannst mér hún mjög spennandi. Mér finnst þetta svolítið mann­ fræðilega forvitnilegt að skoða lífið á Laugum í gegnum tíðina og hvernig það breytist með hverjum hóp. Svo er ég með MA­próf í hag­ nýtri menningarmiðlun sem ég hef nýtt alltof lítið en finnst mjög gaman að gera eitthvað sem tengist því,“ segir Kristín. Langar að gera heimasíðu Í náminu hafði Kristín hugsað sér að gera meistaraverkefni sem tengdist Laugaskóla, þó ekki hlaðvarp, en annars konar mið­ lun. „Leiðbeinandanum mínum fannst það verkefni of stórt og mikið þannig að ég gerði það aldrei en þegar Sigrún kom til mín með þetta verkefni þá stökk ég strax á það, en það er aldrei að vita nema við gerum eitthvað svipað og mér datt í hug þarna fyrir löngu síðan, í framhaldinu,“ segir Kristín og Sigrún tekur undir það og nefnir að þær skuli nú allavega sækja um styrk fyrir því verkefni og sjá svo til. Hugmyndin sem þær langar að framkvæma er að gera gagnvirka heimasíðu um Lauga. „Við erum með fullt af hugmyndum sem gætu verið skemmtilegar en okkur vantar kannski einhvern svona tölvunar­ fræðing sem getur hjálpað okkur við þetta, til að vinna brellurnar,“ segir Sigrún. „Við höfum safnað saman alls konar upplýsingum og gögnum í gegnum tíðina frá Laugum og langar að setja það á þennan stað og setja þá þessa hlað­ varpsþætti þar inn líka og gömlu skólablöðin, ljósmyndir, stutt­ myndir o.þ.h.,“ segir Kristín. Styrkur úr Uppbyggingarsjóði Stelpurnar fengu styrk úr Upp­ byggingarsjóði Vesturlands fyrir verkefninu og gátu þær nýtt hann í að kaupa upptökubúnað og fjóra hljóðnema. Þær segja að það sé styrknum að þakka að þær hafi ráðist í verkefnið og klárað það því styrk­ urinn skikkaði þær til að standa skil á einhverju. Annars hefðu þær ábyggi­ lega dregið það lengur að klára þættina, en tvö ár eru síðan vinna við þá hófst. Vegna samkomutak­ markana í heimsfaraldrinum þurftu þær hins vegar að setja þessa vinnu á ís því þær gátu ekki hitt viðmæl­ endur en þær ferðast með upptöku­ búnaðinn og rigga honum upp þar sem þær hitta viðmælendur, oftar en ekki heima í stofu eða eldhúsi. „Þetta er voða heimilislegt,“ segir Sigrún. „Það heyrast stundum svona náttúru hljóð og glymur í kaffi­ bollum og svona.“ ­En hvernig veljið þið viðmæl­ endur í hlaðvarpið? „Við héldum hugarflugsfund saman. Það hefði verið gaman að gera þetta meira skipulagt og taka meira hvert tímabil fyrir sig. Byrja á elstu árgöngunum og fara svo upp í þá yngstu en við gerðum það ekki,“ segir Sigrún og Kristín tekur þá við: „Við töluðum okkur aðeins saman fyrst og þuldum upp allt sem okkur langaði að tala um og allt sem gerðist og við rifjuðum allt upp. Svo fórum við að hugsa um hverja við gætum talað við, nemendur og starfsfólk, svo fannst okkur forvitnilegt að tala við systk­ ini sem voru í skólanum, og hjón og einhverja sem hafa átt barn í skól­ anum og verið þar líka sjálf. Svo reyndar var ég í fermingarveislu og þá pikkaði ég einn út þar til að tala við,“ segir Kristín og hlær. Draumurinn að gefa út tíu þætti Fjórir þættir eru komnir út og eru aðgengilegir á Spotify og Anchor. Draumurinn er að sögn Sigrúnar að ná að framleiða allavega tíu þætti en þær Kristín eru með nokkra við­ mælendur í sigtinu sem gaman væri að tala við. „Það eru nokkrir búnir að segja já og vilja tala við okkur en við eigum bara eftir að ná að hitta þá,“ segir Kristín. Hlusta má á viðtalið við Sig­ rúnu og Kristínu í heild sinni á vefsíðu Skessuhorns, Spotify og Soundcloud.com/skessuhorn gbþ Á nýliðnum Vökudögum á Akranesi var sýningin Stærðfræði og listir til sýnis í Tónlistarskólanum við Dalbraut. Borghildur Jósúadóttir kennari í Grundaskóla á Akranesi sá um að setja sýninguna upp en hún inniheldur verkefni frá nemendum í 5. og 6. bekk í Grundaskóla. Borghildur segir að formlega sé hún hætt að kenna en komi inn í for­ fallakennslu af og til og er þá yfir­ leitt að kenna stærðfræði og listir þar sem nemendur eru að teikna mynstur með hringfara og reglu­ stiku. „Ég lauk meistaranámi við Menntavísindasvið HÍ vorið 2020 og ritgerðin mín heitir Stærðfræði og listir. Það er starfendarannsókn þar sem ég rannsaka eigin feril og hvernig ég hef unnið með tengingu stærðfræði við list­ og verkgreinar og bóklegar greinar. Það er enginn sem ég veit um sem er að kenna stærðfræði á þennan hátt. Það er mikilvægt að kynna fegurð stærð­ fræðinnar fyrir nemendum. Þessi vinna með þeim gefur þeim aðra sýn á stærðfræðina sem er auðvitað meira en vinna með tölur og bók­ stafi.“ Sýningin var nýlega tekin niður en hluti hennar hefur nú verið sett upp í Grundaskóla þar sem öllum er velkomið að skoða hana og kynna sér undur stærðfræðinnar. vaks Sýningin Stærðfræði og listir færð í Grundaskóla Borghildur Jósúadóttir við eina myndina á sýningunni. Ljósm. vaks

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.