Skessuhorn - 23.11.2022, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 202224
Á fundi fræðslunefndar Borgar
byggðar nýverið var rætt um
brýna þörf fyrir fleiri leikskóla
pláss í Borgar nesi. Fræðslunefnd
taldi æskilegt að ráðist verði í upp
setningu sem fyrst á færanlegum
kennslustofum við leikskóla á
staðnum. Þá kallaði nefndin eftir
afstöðu bygggðarráðs, sem tók
málið til afgreiðslu síðastliðinn
fimmtudag: „Byggðarráð telur
mikilvægt að bregðast við skorti
á leikskólaplássi og samþykkir að
keyptar verði fimm gámaeiningar
og settar við leikskólann Uglu
klett. Með þeim hætti verður hægt
að taka inn leikskólabörn af biðlista
um áramótin,“ segir í bókuninni.
Þá áréttaði byggðarráð að í yfir
standandi vinnu við fjárhagsáætlun
sveitarfélagsins væri gert ráð fyrir
því að fara í hönnun á stækkun
leikskólans Uglukletts árið 2023
þannig að framkvæmdir gætu haf
ist árið 2024.
mm
Hið árlega jólabingó Kvenfélags
ins 19. júní fer fram í sal Land
búnaðarháskóla Íslands á Hvann
eyri föstudaginn 25. nóvember kl.
20:00. Þessi viðburður hefur verið
haldinn á hverju ári, nánast óslitið, í
um 50 ár en Kvenfélagið 19. júní er
nú fjölmennasta kvenfélag Borgar
fjarðar þar sem tæplega 60 konur á
öllum aldri eru félagar. Síðustu tvö
ár féll bingóið niður vegna Covid
19 svo það nú er mikil tilhlökkun
fyrir viðburðinum. Á síðasta ári var
bingóinu breytt í happdrætti og
rann ágóðinn til Ungmennafélags
ins Íslendings sem stóð í kostnaðar
sömum endurbótum við Hrepps
laug.
Í ár verður bingóið glæsilegt að
vanda en fjölmargir góðir vinn
ingar hafa borist kvenfélagskonum
og vilja þær færa öllum sem hönd
hafa lagt á plóg kærar þakkir fyrir.
Meðal vinninga verða t.d. hótel
gistingar, gjafabréf á ýmsa af
þreyingu, vöruúttektir, snyrtivörur,
leikföng, bækur, jólavörur og ýmis
legt fleira.
Stefnt er að því að ágóðinn
af jólabingóinu þetta árið renni
til tækjakaupa fyrir heilsugæsl
una í Borgarnesi eða í önnur góð
gerðar og/eða líknarmál innan
héraðs. Í gegnum árin hefur
ágóði jólabingósins verið nýttur
í hin ýmsu verkefni, m.a. í færan
lega stólalyftu fyrir hreyfihaml
aða í sundlaugina í Borgarnesi,
fyrir kaup á Nustep fjölþjálfum
fyrir hjúkrunar og dvalarheimilið
Brákar hlíð og sjúkraþjálfunarmið
stöð Halldóru í Borgarnesi og til
kaupa á nýjum sjúkrarúmum fyrir
Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
Í hléi verður hægt að kaupa
veitingar, kaffi, sælgæti og drykkjar
föng og hægt verður að greiða bæði
með greiðslukortum og peningum
fyrir veitingar og bingóspjöld.
Kvenfélagið hefur alla tíð notið
mikillar velvildar í héraðinu og
hlakka kvenfélagskonur til að taka
á móti gestum sem þannig leggja
sitt af mörkum til góðgerðarmála á
svæðinu.
-fréttatilkynning
Keilufélag Akraness (KFA) var
stofnað árið 1997 og keilusalur
inn var opnaður árið 2001. Mark
mið félagsins er að stuðla að iðkun
keilu og að glæða áhuga á þeirri
íþrótt. Í stjórn félagsins ásamt
Ársæli Rafni Erlingssyni formanni
eru þau Fríður Ósk Kristjánsdóttir,
Jónína Björg Magnúsdóttir, Garðar
Tómasson og Ellý Sandra Ingvars
dóttir. Aðalþjálfarar eru þau Jónína
Björg Magnúsdóttir og Sigurður
Þorsteinn Guðmundsson og þá
er Guðmundur Sigurðsson þjálf
ari á afrekssviði. Keilufélagið hefur
aðsetur í kjallara íþróttahússins
við Vesturgötu þar sem er keilu
salur með þremur brautum. Blaða
maður Skessuhorns settist niður
með Ársæli Rafni og forvitnaðist
um starfsemi félagsins. Ársæll Rafn
segir að iðkendur í keilufélaginu
séu nú um 35 og á öllum aldri,
frá sex ára upp í 85 ára og æfinga
gjaldið fyrir árið er kr. 40 þúsund.
Hvernig er skipt eftir aldri? „Það
eru æfingar fyrir börn frá sex til tólf
ára þrisvar í viku og svo erum við
með þau eldri sem ráða því meira
sjálf hvenær og hve oft þau æfa í
hverri viku. Við erum með fjögur
karlalið í deildarkeppnum í 1., 2.
og 3. deild og svo er eitt kvennalið
sem er í 2. deild.“ Ársæll Rafn segir
að helstu verkefnin yfir árið séu
að halda utan um æfingar og mót,
reyna að bæta aðstöðuna og halda
keilusalnum í góðu ástandi.
Hvað hentar hverjum
Hvernig er lagt upp með þjálfun
ina? „Það er lagt upp með hana
þannig í raun hvað hentar hverjum.
Það eru litlir hópar að æfa, það er
verið að reyna að laga einn hlut á
hverri æfingu og hver að finna sinn
farveg. Það kasta allir kúlunni mis
munandi og eru með sínar áherslur,
sumir vilja snúa kúlunni á ýmsan
máta yfir brautina á meðan aðrir
nota einhverja aðra aðferð. Þess
vegna er gott að vera með góða
og þolinmóða þjálfara því þetta
er alls konar. Hvað varðar keppni
þá er það bara val, það er örugg
lega rúmlega helmingur sem er að
æfa og keppa. Það er nokkuð stór
hópur sem er að keppa í deildum
og svo eru krakkarnir að keppa á
unglingamótum.“
Þið leigið út keilusalinn fyrir
afmæli og einkasamkvæmi.
Hvernig gengur það? „Það gengur
ótrúlega vel, það eru búin að vera
árgangsmót, barnaafmæli og ýmis
legt annað. Við erum búin að setja
upp skjávarpa til að horfa á leiki,
formúlu og pílu og þetta er búið að
fara rosa vel af stað í haust. Fólk er
mjög ánægt með aðstöðuna eins og
hún er í dag. Þetta er fjármögnun
fyrir félagið og fer til dæmis í styrki
fyrir þá sem eru búnir að æfa vel
og eru að fara erlendis að keppa.
Eftir þessa uppbyggingu sem er
búinn að vera í salnum þá virð
ist fólk taka vel í þetta allt saman.
Fyrir þá sem vilja prófa er opið í
keilusalnum frá miðvikudegi til
laugardags frá klukkan 1821. Þá
er gaman að segja frá því að þetta
er aðeins annar af tveimur keilu
sölum á landinu og Þór á Akur
eyri er með heimavöllinn sinn hér
á Akranesi.“
Fjölbreytni er
nauðsynleg
Hvað er skemmtilegast við keilu?
„Núna er það mest félagsskapur
inn ef ég tala fyrir mig, ég er
kannski ekki í þessu núna til að
vinna leiki. Fyrir mig sem ungling
að finna mig í keilunni, að vera í
íþrótt sem mig langaði virkilega
að vera í var algjörlega geggjað.
Ég prófaði fótbolta og fullt af
öðrum íþróttum sem ég fann mig
ekki í en hef alltaf fundið mig vel
í keilunni. Lífið er ekki bara fót
bolti og fimleikar, það verður að
vera fjölbreytni í þessu fyrir krakk
ana. Það geta allir spilað keilu.
Við vorum með strák í hjólastól
hérna um daginn, hann var með
tvær kúlur með sér og kastaði
þannig. Það geta allir gert þetta,
við fáum fólk reglulega úr Fjöliðj
unni hingað sem kemur og spilar
og svo kannski heilt fótboltalið
daginn eftir, þetta er mjög fjöl
breytt og skiptir ekki máli hver þú
ert eða hvaðan þú kemur, þú getur
alltaf spilað keilu.“
Eitthvað að lokum? „Það er
mjög mikilvægt að vera með fjöl
breyttar íþróttir, sérstaklega í
bæjar félagi sem er að stækka svona
mikið eins og Akranes. Að börn
og unglingar sem finna sig ekki í
ákveðinni íþrótt geta fundið sig í
einhverri annarri íþrótt. Ég hvet
alla til að koma og prófa að kíkja í
keilu, þetta er mjög skemmtilegur
félagsskapur.“
vaks
Fimm gáma leikskóli
eftir áramót
Jólabingó Kvenfélagsins
19. júní næstkomandi föstudag
„Það geta allir spilað keilu“
Rætt við Ársæl Rafn Erlingsson formann Keilufélags Akraness
Ársæll Rafn, formaður Keilufélags Akraness. Ljósm. vaks
Frá Keilusalnum við Vesturgötu. Ljósm aðsend