Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2022, Qupperneq 27

Skessuhorn - 23.11.2022, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2022 27 Á undanförnum árum hefur verið rekin ákveðin niðurrifsstefna hjá bæjaryfirvöldum á Akranesi. Á lok­ uðum nefndarfundum skipulags­ og umhverfisráðs bæjarins eru nær árlega samþykkt niðurrif ein­ hverra eigna Akraness. Umræðan í kringum þessi niðurrif er oft­ ast af skornum skammti. Skaga­ menn ranka við sér þegar vélarnar eru ræstar og skyndilega er búið að jafna Fóló við jörðu. Margir spyrja: Af hverju gerið þið þetta? Og bæjar­ yfir völd svara þá: Gamli sorrí Gráni er feyskinn og fúinn og farinn og lúinn og brotinn og búinn að vera. Það sem bæjaryfirvöld ættu þó að huga að er að Gamli sorrí Gráni er gagnslaus og smáður, gisinn og snjáður meðferð illri af. Það þarf að hlúa að eldri húsum bæjarins ef þau eiga ekki að grotna niður svo yfir­ völd geti loks úrskurðað þau látin með góðri samvisku. Það er þó ekki aðeins meðferð bæjaryfirvalda á húsunum sem er ámælisverð. Bænum ætti að bera skylda til þess að kynna bæjarbúum áform sín vel og vandlega áður en múrbrjóturinn fer af stað. Í vikunni setti skipulags­ og umhverfisráð fimm ný hús á svarta listann. Ef ekki væri fyrir óháða fjölmiðla vissu bæjarbúar sennilega ekki af þessum áformum því ekki virðast bæjaryfirvöld vilja fara hátt með þau. Hægt er að hafa ýmsar skoð­ anir á þeirri vegferð sem bæjar­ yfirvöld eru á. Tvö hús sem eru nú á svarta listanum standa við Suðurgötu. Nú á að jafna húsin við Suðurgötu 108 og 124 við jörðu og margir velta fyrir sér hvort Suður­ gata 120 (Bakkabúð), 122 (Vindás) og 114 (Leirdalur) séu næst á dag­ skrá. Fari svo er gamla götumynd Suðurgötu horfin og réttast væri að finna nýtt nafn á nýja götu. En það er ekki Suðurgatan sem veldur mestu hugarangri í því niðurrifi sem menn horfa nú til. Í fundar­ gerð skipulags­ og umhverfisráðs segir: „Ennfremur samþykkir ráðið rif á Vesturgötu 62, svo framarlega að samkomulag náist við ríkið um rif á því húsi.“ Eitt sögufrægasta hús Akraness Vesturgata 62 er ekki hvaða hús sem er á Akranesi. Það hefur sjaldnast verið kennt við þetta heimilisfang. Húsið við Vesturgötu 62 var byggt sem íþróttahús og var því áður fyrr kallað leikfimishúsið við Vestur­ götu. Húsið er stórmerkilegt í sögu bæjarins, sennilega eitt það merki­ legasta, því það var fyrsta íþrótta­ mannvirkið sem Akurnesingar reistu og höfðu mikið fyrir því. Sögu hússins má rekja til baka um ein 100 ár. Íþróttafélagið Hörður Hólmverji starfaði á Akranesi á árunum 1919­1926. Félagið hafði metnað til þess að auðga íþróttalíf bæjarins og auka fjölbreytni þeirra íþróttagreina sem ungu fólki stóð til boða að æfa. Um tíma fóru fram fimleikaæfingar á vegum félags­ ins. Aðstaða fyrir slíkar æfingar voru afar frumstæðar og æft var í Báruhúsinu sem var samkomu­ hús bæjar ins. Hörður Hólmverji hafði áform um að kaupa áhöld fyrir leikfimiæfingar árið 1922 og koma upp í Báruhúsinu. Mönnum varð þó ljóst að ætluðu Skagamenn sér að taka einhverjum framförum á íþróttasviðinu þyrfti bæjarfélagið að eignast íþróttahús, því Báru­ húsið myndi duga skammt. Hörður Hólmverji og Ungmennafélag Akraness tóku því höndum saman og stofnuðu sjóð þar sem safna átti fyrir íþróttahúsi. Félögin stóðu fyrir fjáröflun með hlutaveltu, skemmtunum og öðru slíku til að safna fyrir húsinu. Eftir að Hörður Hólmverji lagðist af árið 1926 hélt Ungmennafélag Akraness áfram að safna fyrir húsinu. Sögu hússins væri hægt að rekja í löngu máli hér því hún er bæði fróðleg og skemmtileg. Jónas Jóns­ son frá Hriflu blandaði sér meðal annars í umræðuna um húsið en sú saga getur beðið betri tíma. Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins, teiknaði húsið og skilaði uppdrætti til Akurnesinga í október 1933. Hreppsnefnd Ytri­Akraneshrepps setti saman leikfimishúsnefnd árið 1934 til að hafa yfir umsjón með verkinu og var Svafa Þorleifsdóttir, skólastjóri Barnaskóla Akraness, formaður nefndarinnar. Það var eðlilegt þar sem húsið var fyrst og fremst hugsað fyrir leikfimikennslu skólabarna. Skagamenn unnu mikla sjálfboðavinnu til að koma hús­ inu upp og tók þar þátt m.a. fólk úr knattspyrnufélögunum Kára og KA, Iðnaðarmannafélagi Akraness og fleiri. Hafist var handa við bygginguna árið 1936. Gekk sú vinna hægt um tíma vegna féleysis en húsið var loks tekið í notkun 1942. Það gjörbreytti öllu íþróttalífi bæjar­ ins og var ein stærsta byltingin í íþróttasögu Akraness. Það varð fljótt fullsetið og hvatti það menn til að byggja annað íþróttahús. Knattspyrnufélögin Kári og KA hófust handa tveimur árum síðar við að koma upp íþróttahúsinu við Laugarbraut sem tekið var í notkun 1945. Það var að mestu byggt í sjálfboðavinnu, var lengi notað sem samkomuhús og undir dansleiki en var loks rifið árið 1996. Húsið var víst orðið fúið, lúið og ljótt. Hvað vilja íbúar? Í þeirri vegferð sem bæjaryfir­ völd hafa verið á, er varðar niður­ rif á húsum, hafa bæjarbúar sjálfir lítið komið að málum. Í flestum tilfellum er þó verið að sýsla með sögu og ásýnd bæjarins. Þessi mál eru ekki rædd í aðdraganda kosn­ inga. Þau virðast ekki vera póli­ tísk deilumál, né virðist vera nein áþreifanleg stefna í málaflokknum. Aldrei heyrist múkk í nokkrum bæjarfulltrúa þegar niðurrif á húsum eru rædd. Róa allir í sömu átt í þessu? Er eðlilegt að þessi mál séu ekki rædd? Skipta þau engu máli? Er niðurrif á leikfimishúsinu við Vesturgötu aðeins skipulags­ mál en ekki hluti af stærra sam­ hengi? Er ekki kominn sá tíma­ punktur að Skagamenn fari að ræða þessi mál af alvöru. Hvað viljum við? Er okkur sama um söguna? Er hægt að afgreiða öll mál gamalla og sögufrægra húsa með því að segja að Gamli sorrí Gráni sé feyskinn og fúinn? Akraneskaupstaður hefur gjarnan hampað sér fyrir að vera íþrótta­ bær. Þessi sami bær ætlar nú samt sem áður að sjá til þess að elsti minnis varði um samtakamátt íþróttahreyfingarinnar, bæjarbúa og bæjar félagsins í heild sé nú jafn­ aður við jörðu. Og fyrir hvað? Er saga bæjarfélagsins einskis virði? Ólafur Páll Gunnarsson Bjarnheiður Hallsdóttir Anna Guðrún Ahlbrecht Guðni Hannesson Höf. eru stjórnarfólk í Miðbæjar- samtökunum Akratorgi. Smiðjuloftið á Akranesi hefur verið starfandi í á fimmta ár eða frá því hjónin Þórður Sævarsson og Val­ gerður Jónsdóttir opnuðu aðstöðu að Smiðjuvöllum 17 árið 2018. Í færslu á FB síðu Smiðjuloftsins í síðustu viku kom fram að starf­ seminni að Smiðjuvöllum mun verða hætta fljótlega eftir áramót. „Smiðjuloftið var opnað með margþætta starfsemi í huga þar sem markmiðið var að sameina undir einum hatti þau fjölmörgu verk­ efni og hugmyndir sem við hjónin höfðum, ýmist í framkvæmd eða á framkvæmdastigi. Stór hluti þess að Smiðjuloftið var opnað var að tryggja Klifurfélagi ÍA aðstöðu til æfinga en félagið var á þessum tíma­ punkti á hrakhólum, með fjölmarga iðkendur og ekkert land í augsýn varðandi húsnæði fyrir félagið. Því var að duga eða að drepast. Við hjónin lögðum mikla vinnu og fjármuni í að standsetja húsnæðið, og nutum aðstoðar góðra vina og vandamanna, og á vordögum 2018 opnaði Smiðjuloftið – Afþreyingar­ setur á Akranesi. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og ótrú­ lega margt skemmtilegt gerst á Smiðjuloftinu á þessum tíma. Nú er komið að tímamótum hjá okkur á Smiðjuloftinu og hugur okkar hjóna leitar annað og við höfum ákveðið að þróa starfsem­ ina í aðra átt. Fljótlega eftir áramót mun starfsemi Smiðjuloftsins því hætta að Smiðjuvöllum 17. Smiðju­ loftið og Klifurfélag ÍA hafa átt í farsælu samstarfi við Akraneskaup­ stað til að tryggja iðkendum ÍA aðstöðu til æfinga. Félögin hafa verið í viðræðum við Akraneskaup­ stað undanfarið ár til að tryggja klifurfélaginu æfingaaðstöðu til lengri tíma, og er það von okkar að það mál leysist áður en húsaleigu­ samningur að núverandi aðstöðu að Smiðjuvöllum 17 rennur út í byrjun næsta árs.“ Á fundi bæjarráðs Akraneskaup­ staðar 10. nóvember síðastliðinn mættu fulltrúar úr stjórn Klifur­ félags ÍA, þjálfari félagsins og Guðmunda Ólafsdóttir fram­ kvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness og voru með erindi um aðstöðumál félagsins og hvernig hægt væri að bæta aðstöðuna. Bæjar ráð var sammála því að brýnt væri að leysa úr þörf klifurfélagsins og fól bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins í samvinnu við stjórn klifurfélagsins. vaks Pennagrein Hvers virði er saga bæjarins? „Börn fjallkonunnar“, talkór í Bíóhöllinni á hátíðarsamkomu 18. júní í tilefni af stofnun lýðveldisins 17. júní. ­ Myndin var tekin síðar í gamla leikfimishúsinu við Vesturgötu. Á myndinni eru f.v.: Bragi Þórðarson, Brynjar Leifsson, Ólafur Ingi Jónsson, Bára Daníelsdóttir, Rannveig Edda Hálfdánardóttir, Elín Þorvaldsdóttir, Guðjónína Sigurðardóttir, Elín Ragnarsdóttir fánaberi, Valgerður Jóhannsdóttir fjallkona, Anna Daníelsdóttir fánaberi, Ingibjörg Ágústsdóttir, Bjarney Ingólfs­ dóttir, Emilía Jónsdóttir, Hulda Óskarsdóttir, Erla Ingólfsdóttir, Benedikt Sigurðs­ son og Valdemar Oddsson. Merkjakerfið á gólfinu mun tengjast æfingakerfi Axels Andréssonar, Axelskerfinu. Upp úr 1940 ­ Næst t.v. er gamli barnaskólinn á stríðsári og t.h. „íþróttahúsið/smíðahúsið“ sem formlega var tekið í notkun sem íþróttahús árið 1942 (Sjá Árbók Akurnesinga 2002 og grein Stefáns Hjálmarssonar þar). Þar var rekið mötuneyti hermanna. Barnaskólinn var byggður 1879 en brann 4. desember 1946, þ.e.a.s. vesturgafl hans, báðar hæðir, þak og innan­ stokksmunir. Norðurgafl og báðar langhliðar voru úr „steini“ og stóðu uppi um hríð. Til hægri sést í Krókalón við útfiri og upp af því t.v. í Grenjar og skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts. Starfsemi Smiðjuloftsins hætt á Smiðjuvöllum Valgerður Jónsdóttir ásamt börnum að leik. Ljósm. af FB síðu Smiðjuloftsins

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.