Skessuhorn - 23.11.2022, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 202230
Spurning
vikunnar
Hver er
uppáhalds árstíðin?
Spurt í Stykkishólmi og á Akranesi
Vignir Sveinsson
„Vorið. Þá er
golfvertíðin framundan.“
Arnar Hreiðarsson
„Haustið. Þá byrjar stangveiðin
og skotveiðin.“
Sóley Bergmann
„Haustið. Þá kemst allt aftur
í rútínu og félagsstarf byrjar
aftur. Svo elska ég kuldann.“
Unnur Haraldsdóttir
„Sumarið.“
Hrefna Ásgeirsdóttir
„Vorið.“
Í þessum lið leggjum við fyrir tíu
spurningar til íþróttamanna úr
alls konar íþróttum á öllum aldri
á Vesturlandi. Íþróttamaður vik
unnar að þessu sinni er Alexandra
Agla frá Búðardal sem stundar
glímu og fimleika.
Nafn: Alexandra Agla Jónsdóttir
Fjölskylduhagir? Pabbi minn
heitir Jón Egill og mamma mín
Stefanía Björg. Svo á ég líka lítinn
sjö ára bróður sem heitir Sigurjón
Egill og á hund sem heitir Frosti.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Glíma, fimleikar og körfubolti.
Hvernig er venjulegur dagur
hjá þér um þessar mundir? Sem
dæmi á þriðjudögum vakna ég og
fer í skólann. Beint eftir skóla fer
ég á glímuæfingu og svo fer ég
beint eftir það annað hvort í skát
ana eða í björgunarsveitina. Svo
fer ég í kvöldmat og svo út að
hitta vini mína.
Hverjir eru þínir helstu kostir
og gallar? Kostirnir mínir eru að
ég er sjálfstæð, jákvæð, ákveðin,
hjálpsöm og fyndin en gallarnir
eru að ég get verið skapstór, fljót
fær og ég er mjög óþolinmóð.
Hversu oft æfir þú í viku? Ein
glímuæfing í viku, ein fimleika
æfing í viku og fer svona einu
sinni til tvisvar í viku í ræktina.
Hver er þín fyrirmynd í
íþróttum? Guðbjört Lóa glímu
þjálfarinn minn og Guðmundur
Kári, fimleikaþjálfari og fyrver
andi landsliðsmaður í fimleikum.
Af hverju valdir þú glímu? Fyrst
þegar ég var í 2. bekk fór ég á
fyrstu æfinguna mína. Svo hætti
ég vegna þess að ég var að æfa svo
mikið að ég þurfti að hætta í ein
hverju. Svo þegar ég fór í 8. bekk
þá voru krakkar að hvetja mig að
koma aftur í glímu og því ákvað
ég að mæta á eina æfingu. Það var
svo skemmtilegt að ég ákvað að
halda áfram og núna er ég orðin
Íslandsmeistari í flokki 12 til 13
ára stúlkna.
Hver er fyndnastur af þeim sem
þú þekkir? Pabbi minn og Steini
frændi.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast við þína íþrótt?
Skemmtilegasta sem ég geri er að
keppa og kynnast nýjum krökkum
en það leiðinlegasta er að teygja
og hita upp, stundum getur það
verið leiðinlegt en líka skemmti
legt.
Er mjög óþolinmóð
Íþróttamaður vikunnar
Nú í haust var byrjað að bjóða
börnum og unglingum í Snæ
fellsbæ að æfa og stunda handbolta
og fara æfingar fram í í íþróttahús
inu í Ólafsvík. Tinna Ýr Gunnars
dóttir tók við sem formaður UMF
Víkings/Reynis í ágúst á þessu ári.
Hún segir í samtali við Skessuhorn
að það sé alltaf verið að leita leiða
til að bjóða upp á meiri fjölbreytni
í íþróttastarfinu í Snæfellsbæ og
þetta sé ein leið til þess. Tinna Ýr
æfði sjálf handbolta með ÍR í alls
tólf ár og sér um að þjálfa krakkana.
Vantar stelpur á æfingar
Hvernig hafa viðtökurnar verið?
„Þær hafa verið góðar, þetta eru um
og yfir 20 krakkar sem hafa verið að
æfa og þá mest strákar. Stelpurnar
hafa ekki verið nógu duglegar að
koma og prófa. Hver hópur æfir
einu sinni í viku klukkustund í senn
og við skiptum þessu í tvo hópa eftir
aldri, 1.4. bekkur æfir saman og
síðan 5.7. bekkur. Í yngri hópnum
eru innan við tíu krakkar og í þeim
eldri hafa verið upp í 15 krakkar.
Það er erfitt að byrja með nýja
íþrótt fyrir alla flokka í svona litlu
bæjarfélagi og því var ákveðið að
hafa þetta svona í tveimur hópum.
Langflestir sem eru að æfa eru
einnig að æfa fótbolta og hentar vel
enda svipaðar hreyfingar í báðum
þessum íþróttum. Þau sem eru að
æfa eru mjög áhugasöm en það er
pláss fyrir fleiri og við vonumst til
þess að það bætist í hópinn.“
Í lok september kom Jón Gunn
laugur Viggósson frá Hand
knattleikssambandi Íslands á
æfingu hjá krökkunum sem gesta
þjálfari, var með ýmsar þrautir og
leiki og kenndi þeim ýmislegt. Í
Snæfellsbæ er boðið upp á æfingar í
knattspyrnu, sundi og nú handbolta
fyrir börn og unglinga en hjóla
brettaæfingar sem voru á Hellis
sandi standa ekki lengur til boða.
Tinna Ýr segir að lokum að ætlunin
sé að hafa handboltaæfingarnar
fram á næsta vor og vonandi lengur
ef vel tekst til. „Við stefnum á að
fara á einhver mót eftir áramót og
leyfa krökkunum að prófa „turner
ingu“ sem er æfingamót eina helgi
til að sjá hvar þau standa gagnvart
öðrum iðkendum á þeirra aldri.
Handbolti er skemmtileg íþrótt og
ég hvet alla krakka á þessum aldri
að koma til okkar og prófa hand
bolta, við tökum vel á móti þeim.“
vaks
Ný verðlaun, Íþróttaeldhugi ársins,
verða veitt samhliða lýsingu á kjöri
Íþróttamanns ársins 2022. ÍSÍ í sam
vinnu við Lottó standa að nýju verð
laununum til að heiðra sjálfboða
liða innan íþróttahreyfingarinnar og
vekja meiri athygli á starfi þeirra.
Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, segir
íþróttahreyfinguna standa í mikilli
þakkarskuld við þá einstaklinga sem
gefa af tíma sínum til að sinna sjálf
boðastarfi fyrir íþróttahreyfinguna.
„Með þessari nýju viðurkenningu
viljum við lyfta upp starfi sjálfboða
liðans og þakka fyrir hið óeigin
gjarna starf sem unnið er af fjölda
fólks um land allt,“ segir Lárus.
Stefán Konráðsson, fram
kvæmdastjóri Íslenskrar getspár,
segir starf sjálfboðaliðanna ómetan
legt og árangursríkt og skipta alla
þjóðina máli. „Við viljum því virkja
alla þjóðina með okkur í að heiðra
þetta fólk sem gefur svona mikið af
sér. Þess vegna höfum við opnað fyrir
ábendingar frá almenningi á lotto.is
og hvetjum fólk til að nota tækifærið
og benda á kraftmikla sjálfboðaliða,
hvaðanæva af landinu.“
Opið er fyrir ábendingar á vef
slóðinni Íþróttaeldhuginn (lotto.
is) til 5. desember en leitað er eftir
framúrskarandi sjálfboðaliðum
sem hafa í gegnum árin nýtt eigin
hæfileika, frítíma og sérþekkingu til
að efla íþróttastarf, t.d. með því að
vinna að framkvæmd móta/leikja,
safna fjármunum, bæta aðstöðu
eða auka þátttöku hvar á landinu
sem er. Rétt er þó að geta þess að
launað starfsfólk íþróttahreyfingar
innar kemur ekki til greina.
Sérstök nefnd skipuð valinkunnu
íþróttafólki fer yfir þær ábendingar
sem berast, tilnefnir þrjá sjálfboða
liða sem þykja skara fram úr og
ákveður hver hlýtur nafnbótina
Íþróttaeldhugi ársins 2022 og
glæsilegan verðlaunagrip frá Lottó.
Formaður nefndarinnar er Þórey
Edda Elísdóttir en auk hennar eiga
Bjarni Friðriksson, Dagur Sigurðs
son, Kristín Rós Hákonardóttir og
Margrét Lára Viðarsdóttir sæti í
nefndinni.
vaks
Handboltaæfingar hafnar í Snæfellsbæ
Tinna Ýr Gunnarsdóttir. Ljósm. aðsend
Íþróttaeldhugi ársins valinn í fyrsta sinn