Víkurfréttir - 08.03.2023, Blaðsíða 10
AÐALSKIPULAG
SUÐURNESJABÆJAR 2022-2034
Auglýsing um afgreiðslu og umsögn Suðurnesjabæjar
um athugasemdir við auglýsta tillögu.
Á fundi bæjarstjórnar 1. febrúar 2023 var tillaga að Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar
2022-2023 samþykkt. Jafnframt var samþykkt að senda, þeim aðilum sem gerðu
athugasemdir, afgreiðslu og umsögn bæjarstjórnar um athugasemdir og auglýsa
niðurstöðu bæjarstjórnar.
Samþykkt bæjarstjórnar ásamt afgreiðslu og umsögn um athugasemdir
er hægt að nálgast á vef Suðurnesjabæjar www.sudurnesjabaer.is
SUÐURNESJABÆR
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Sumarið 1972 var kvikmyndin Brekkukotsannáll gerð. Myndin er eftir samnefndri bók Halldórs Lax-
ness. Brekkukoti var valinn staður í landi Miðhúsa og varð Krókssíkið látið tákna Tjörnina í Reykjavík.
Vatnagarður, sem stóð við Útskálasíkið varð að Hringjarabænum. Þetta sumar var mikið um að vera í
Miðhúsum, stundum tugir manna við gerð leikmyndar og myndatökur.
Þá var stórbú í Miðhúsum, 30 kýr í fjósi, mikið verk
að sinna þeim og heyöflun í gangi samhliða mynda-
tökum.
Björn G. Björnsson leikmyndagerðarmaður
stjórnaði gerð leikmyndar og tengslum við Miðhúsa-
menn. Björn kemur á sagnastundina á Garðskaga og
rifjar þetta ævintýri upp í máli og myndum. Sam-
koman er í veitingahúsinu Röstinni á Garðskaga kl.15.
Byggðasafnið verður opið og veitingasala opin.
Áhugamenn um sagnastund á Garðskaga.
Miðhús í Garðinum og Brekkukot í
Reykjavík í sagnastund á Garðskaga
Suðurnesjabær býður Reykjanesklasann velkominn í Suðurnesja-
bæ, þar sem byggingar klasans eru staðsettar á iðnaðarsvæði innan
sveitarfélagamarka Suðurnesjabæjar sem í skipulagi hefur fengið
nafnið Bergvík.
„Undirbúningur verkefnisins
hefur verið í fullu samstarfi við
Suðurnesjabæ undanfarnar vikur
og það er mjög ánægjulegt að
þessum áfanga sé náð. Þau mann-
virki sem byggð voru upp fyrir
álbræðslu hafa staðið ókláruð og
ónotuð árum saman. Nú er unnið
að því að í stað álbræðslu verði þar
starfræktur Grænn iðngarður, sem
samkvæmt markmiðum Reykja-
nesklasans verður stórt og mikið
nýsköpunar- og frumkvöðlasetur.
Fyrirmyndin er Sjávarklasinn á
Granda í Reykjavík og sú hug-
myndafræði um klasastarfsemi
sem þar hefur verið þróuð og starf-
semin þar hefur skilað eftirtektar-
verðum árangri,“ segir á heimasíðu
Suðurnesjabæjar.
Þá segir einnig: „Það eru sannar-
lega spennandi tímar framundan.
Um er að ræða mjög metnaðar-
fullt verkefni sem byggir á hug-
myndafræði um klasastarfsemi,
sem hefur sannað sig hjá Sjávar-
klasanum. Það verður áhugavert
að fylgjast með framgangi málsins
og Suðurnesjabær óskar Reykja-
nesklasanum og þeirri starfsemi
sem þar mun verða velgengni í
komandi framtíð.“
Fjórða sagnastundin á Garðskaga laugardaginn 11. mars.
Frá sagnastund sem haldin var á Garðskaga í febrúarmánuði. Þá var húsfyllir eins og á öllum fyrri sagnastundum.
Reykjanesklasinn verður í þessu húsnæði við Bergvík í landi Suðurnesjabæjar.
Sviðsmyndin við Krókssíkið í Garði sumarið 1972. Myndina tók Björn G. Björnsson.
Fagna grænum iðnaði í Bergvík
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst
störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn
Sumarstörf hjá
Vinnuskóla Reykjanesbæjar
• Yfirflokkstjórar
• Flokkstjórar
• Flokkstjórar (ungmenni með sértækar stuðningsþarfir)
• Skrifstofa
Sumarstörf hjá Umhverfis-
og framkvæmdasviði
• Garðyrkjudeild - Flokkstjóri
• Garðyrkjudeild – Sumarstörf
Sumarstörf hjá
Ævintýrasmiðjunni
• Umsjónarmenn
• Leiðbeinendur
Störf hjá Reykjanesbæ
• Akurskóli - Sérfræðingur í námsúrræði, Lindin
• Leikskólinn Holt - Sérkennari
• Velferðarsvið - Starfsfólk á heimili fatlaðra barna
• Hefur þú áhuga á að starfa við liðveislu?
• Viltu starfa hjá Reykjanesbæ? Almenn umsókn
10 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM