Leyfi til að elska - jan. 2023, Síða 3
„Að vera útilokuð frá mömmu hafði áhrif á alla
þætti lífs míns. Ég hef upplifað sorg og missi oft og
mörgum sinnum. Ég missti mömmu mína. Ég glataði
sambandi við fjölskylduna mömmu megin. Pabbi
f lutti með mig milli ríkja og úr landi og ég missti
tengsl við allt mér kunnuglegt. Mér fannst ég vera
stefnulaus. Ég gat ekki séð sjálfa mig í framtíðinni
og vissi ekki hvar ég passaði inn í þennan heim. Ég
fann fyrir stöðugum innri sársauka án þess að vita
hvaðan hann kom. [Seinna missti ég] mömmu mína,
hún stytti sér aldur, og seinna í lífinu var ég útilokuð
frá mínum eigin börnum. Erfiðast var að enginn í
kringum mig hafði skilning á því hvað ég upplifði.“
Þannig lýsir Amanda Sillars áhrifum
foreldraútilokunar á líf sitt. Ummælin birtust í
nýlegri vísindagrein sálfræðinganna Jennifer J.
Harman, Mandy L. Matthewson og Amy J.L. Baker
um áhrif foreldraútilokunar á börn. Í þessu fyrsta
tölublaði Leyfi til að elska birtum við íslenska
þýðingu á þessari grein. Greinin birtist fyrst á
frummálinu á vef ritrýnda vísindaritsins Current
Opinion in Psychology árið 2021.
Greinin fjallar um þann missi sem börn upplifa við
útilokun frá foreldri. Foreldraútilokunaratferli tengist
höfnun barns á foreldri af óréttmætum ástæðum.
Helstu niðurstöður rannsókna sálfræðinganna, sem
byggja á vísindalegum gögnum sem ná til meira
en þriggja áratuga, eru þær að börn sem hafa verið
útilokuð frá foreldri upplifa verulegan missi á mörgum
sviðum lífsins. Missir barnsins á sambandi við
útilokað foreldri felur iðulega í sér missi á mikilvægu
félagslegu stuðningsneti.
Foreldraútilokun á sér stað þegar barn skipar sér
í flokk með öðru foreldrinu og hafnar hinu án
gildrar ástæðu vegna foreldraútilokunaratferlis.
Grein fræðimannanna veitir yfirsýn yfir
núverandi rannsóknir og kenningar á þessu
sviði og innsýn í þann missi sem útilokuð
börn upplifa. „Foreldraútilokun hefur áhrif á
trúnaðartraust, upplifun og minningar barns
gagnvart útilokuðu foreldri og orsakar djúpstæðan
missi hjá barninu. Þessi missir felur í sér glötun
sjálfsmyndar, upplifana í æsku, stórfjölskyldunnar
og samfélagsins ásamt minni virkni og skorti á
nauðsynlegum samböndum sem eru grundvöllur
fyrir heilbrigðum þroska. Þar af leiðandi upplifa
útilokuð börn ósjaldan stöðugan og óljósan missi
og þjást því af ósamþykktri sorg í einrúmi,“ skrifa
sálfræðingarnir meðal annars.
Börn sem eru fórnarlömb útilokunar upplifa ekki
eingöngu missi foreldrasambands. Þau upplifa
veruleikafirringu sem skaðar sjálfsmynd, æsku og
sakleysi. Þar að auki samband við stórfjölskylduna
og önnur samfélög, segir m.a. í niðurstöðu
sálfræðinganna. Með þessu sé barnið svipt margs
konar stuðningsneti og verkfærum sem stuðla að
heilbrigðum þroska. Fræðimennirnir benda á að
heilmikil þekking sé nú þegar til staðar um það
hvernig foreldraútilokunaratferli skaði börn sem
fyrir því verða. Hægt sé að nýta þá vitneskju til
verndar komandi kynslóðum barna gegn þessari
skaðlegu tegund misnotkunar.
Ritstjórn
Börn sem eru útilokuð frá foreldrum
sínum upplifa umfangsmikinn missi
3
LEYFI TIL AÐ ELSKA FORELDRAJAFNRÉTTI