Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2022, Page 8
8 | | 26. júlí 2022
Nafn: Hrannar Páll.
Aldur: 6 ára.
Hvað heita foreldrar þínir?
Arna Björk, Björn, Sindri og Diljá.
Hvað er þjóðhátíð? Það koma
sprengjur á þjóðhátíð, það kemur
brenna og eitthvað svona í
fjöllunum.
Hvað gerir maður á þjóðhátíð?
Kaupa eitthvað og sitja og horfa
á tónlist.
Hvað er skemmtilegast við
þjóðhátíð? Það er að vera í
aparólunni og kaupa dót.
Hvað hefur þú farið á margar
þjóðhátíðir? Uu, mjög margar.
Veistu hvað bekkjabíll er? Nei -
það er strætó.
Þrátt fyrir þrjú ár án þjóðhátíðar virðast fimm til sjö ára börn í
Vestmannaeyjum með það nokkuð á hreinu hvað þjóðhátíð er.
Þau vita nokk út á hvað þjóðhátíð gengur, þá á að vera fjör og
gaman, söngur og hvít tjöld. En bekkjabíllinn og hlutverk hans
þekkja þau fæst. Ekki nema von því á þjóðhátíðinni 2015 var
ákveðið að hætta notkun þeirra. Mörgum var eftirsjá að bekkja-
bílunum sem höfðu verið hluti af þjóðhátíðarhaldi Eyjamanna í
ein 85 ár. En gefum börnunum orðið:
Það sem börnin segja um þjóðhátíð:
Með Hvítu tjöldin, Brekkuna
og sönginn á hreinu
Nafn: Guðmundur Gísli
Sæþórsson.
Aldur: 7 ára.
Hvað heita foreldrar þínir?
Birna Dögg og Sæþór Freyr.
Hvað er þjóðhátíð? Hátíð.
Hvað gerir maður á þjóðhátíð?
Fer upp í brekku og hlustar á lög.
Kaupir sér túttubyssur.
Hvað er skemmtilegast
við þjóðhátíð? Mér finnst
skemmtilegast að vera í hvítu
tjöldunum og spreyja úr
ormaspreyi.
Hvað hefur þú farið á margar
þjóðhátíðir? Ég held 4.
Veistu hvað bekkjabíll er? Já.
Nafn: Dóra Kristín Elísdóttir
Aldur: 6 ára.
Hvað heita foreldrar þínir?
Mamma mín heitir Þóranna og
pabbi heitir Elís.
Hvað er þjóðhátíð? Ekki viss, jú
maður er að syngja og kaupa dót
og svoleiðis.
Hvað gerir maður á þjóðhátíð?
Skemmta sér og borða í tjaldinu.
Hvað er skemmtilegast við
þjóðhátíð? Syngja og fá sprey í
hárið.
Hvað hefur þú farið á margar
þjóðhátíðir? Eina sem ég man en
samt örugglega fullt sko.
Veistu hvað bekkjabíll er? Nei...
hvað er það?
Nafn: Teitur Atli Rúnason
Aldur: 5 ára.
Hvað heita foreldrar þínir?
Margrét og Rúni.
Hvað er þjóðhátíð? Ég veit ekki.
Hvað gerir maður á þjóðhátíð?
Skemmtir sér og kaupir rosa
skemmtilegt dót og þannig.
Hvað er skemmtilegast við
þjóðhátíð? Að leika sér við dótið.
Hvað hefur þú farið á margar
þjóðhátíðir? Hmm þrjár. Er það
ekki?
Veistu hvað bekkjabíll er?
Það er svona pallbíll sem
þjóðhátíðarstjórinn keyrir í.
Nafn: Bríet Björk Gísladóttir.
Aldur: 7 ára.
Hvað heita foreldrar þínir? Góa
& Gísli.
Hvað er þjóðhátíð? Skemmtun
í Dalnum þar sem kemur fullt af
fólki.
Hvað gerir maður á þjóðhátíð?
Sjá fólk syngja uppá sviði, horfir
á brennuna, skemmta sér í hvíta
tjaldinu og fara í sjoppuna.
Hvað er skemmtilegast við
þjóðhátíð? Öll þjóðhátíðin.
Hvað hefur þú farið á margar
þjóðhátíðir? Eina.
Veistu hvað bekkjabíll er? Já,
þeir voru í gamla daga.
Nafn: Sunna Karen Birkisdóttir
Aldur: 6 ára.
Hvað heita foreldrar þínir? Lísa
og Birkir.
Hvað er þjóðhátíð? Þá er verið
að syngja og maður hittir fullt af
fólki sem maður kannski þekkir.
Hvað gerir maður á þjóðhátíð?
Maður fer í brekkuna og hvíta
tjaldið til að fá sér að borða.
Hvað er skemmtilegast
við þjóðhátíð? Mér finnst
skemmtilegast að horfa á
sprengjurnar og fá blikkljós.
Hvað hefur þú farið á margar
þjóðhátíðir? Ég hef farið þrisvar
og er að fara í fjórða skiptið.
Veistu hvað bekkjabíll er?
Bíllinn sem er með flugeldunum í.