Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2022, Side 10
10 | | 26. júlí 2022
Jonathan Glenn er þjálfari
kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu
en hann tók við liðinu fyrir
þetta tímabil. Skemmtileg
orka og mikil jákvæðni hefur
einkennt liðið í sumar og
hann var kosinn besti þjálfar-
inn á fyrri helmingi mótsins í
uppgjöri Stöðvar 2 Sport. ÍBV
er nú í 4. sæti Bestu deildar-
innar, en löng pása er nú á
milli leikja í deildinni vegna
EM.
Glenn kom til Íslands árið 2014
og spilaði þá með ÍBV, síðan lék
hann með Breiðabliki og Fylki
áður en hann sneri aftur til ÍBV
þar sem hann spilaði til ársins
2020 þegar hann lét skóna á
hilluna.
Við spurðum Glenn hver væri
lykillinn að góðu gengi liðsins í
fyrri hluta mótsins?
„Ég er mjög ánægður með hvern-
ig okkur hefur gengið hingað
til. Aðalástæðan er líklega sú að
leikmenn hafa sýnt mikla tryggð
og allir eru að leggja sig hart
fram. Ég er mjög ánægður hvað
þær hafa tekið vel í öll fyrirmæli
frá okkur þjálfurunum og hvernig
þær gefa sig allar í verkefnið. Við
þurfum áfram þennan fókus hjá
leikmönnum í seinni helmingi
mótsins,“ segir Glenn.
Hvetur fólk til að mæta á
völlinn
„Hver einasti leikur í Bestu
deildinni er áskorun og það
er mikilvægt að við séum vel
undirbúin og tilbúin að leggja
allt í sölurnar í hvern leik. Ég
held að ef við gerum það áfram
í seinni hluta deildarinnar, muni
þetta áfram falla með okkur. En
það hafa orðið þrjár breytingar á
leikmannahópnum, Ragna Sara er
á leiðinni til Boston í nám, þetta
er gott skref fyrir hana, við erum
spennt fyrir hennar hönd og við
vitum að hún mun standa sig vel.
Guðný handarbrotnaði og þurfti
að fara í skurðaðgerð. Hún æfir
núna eingöngu án bolta og von-
andi heldur endurhæfingin áfram
að ganga vel og að hún geti byrjað
að æfa með okkur aftur.
Sydney þurfti að hætta vegna
krossbandameiðsla og hún er farin
heim.“
„Að þessu sögðu vil ég hvetja
alla Vestmannaeyinga til að koma
á völlinn og styðja stelpurnar á
næsta heimaleik gegn KR, þann
9. ágúst kl. 17:30. Það skiptir
máli að hafa dyggan stuðning úr
stúkunni, það gefur leikmönnum
mikið.“
Jonathan Glenn og kvennalið ÍBV í góðum málum
Allir leikmenn eru að leggja sig fram
Þórhildur Ólafsdóttir er eig-
inkona Jonathan Glenn, hún
tók fram skóna aftur á þessu
tímabili eftir nokkurt hlé í
boltanum og spilar með liðinu
sem Glenn þjálfar.
Hvað telurðu stærsta liðinn í góðu
gengi liðsins það sem af er móti?
„Ég tel það fyrst og fremst
vera undirbúningur liðsins fyrir
tímabilið. Þjálfarateymið lagði
mikla vinnu í það á undirbúnings-
tímabilinu að móta og skipuleggja
bæði varnar- og sóknarleik liðsins,
þannig að allar væru klárar á sínu
hlutverki. Erlendu leikmennirnir
komu fyrr til landsins í ár miðað
við undanfarin ár og því gafst
meiri tími í að vinna með liðinu
í heild sinni og slípa það saman
fyrir mótið. Okkur hefur líka
tekist að skapa góða stemningu
í hópnum og hópurinn er að ná
mjög vel saman bæði innan vallar
sem og utan. En allt tel ég að
þetta skipti máli þegar kemur að
velgengni liðsins í sumar.“
Klókur þjálfari
Hvað fékk þig til að taka skóna
fram aftur?
„Það er góð spurning. Ég byrjaði
að mæta á æfingar í haust eftir að
Glenn var tekinn við en leik-
mannahópurinn var mjög þunnur
Gaman að vera partur af liðinu
Jonathan Glenn hefur náð góðum
árangri með kvennalið ÍBV það sem
af er sumri.
Þórhildur tók skóna óvænt
fram fyrir þetta tímabil og
sér ekki eftir því.