Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2022, Síða 19
26. júlí 2022 | | 19
mér svo vel. Aldrei áður hafa
jafnmargar konur komið fram
á þjóðhátíð og ég veit að þetta
verður magnað hjá okkur.“
Nostalgían skilaði sér
inn í lagið
„Það skipti mig mjög miklu máli
að heimafólk yrði ánægt með
lagið. Það væri engin Þjóðhátíð
ef það væri ekki fyrir gestrisni og
hlýju heimafólks í Vestmanna-
eyjum. Ég reyndi að setja mína
upplifun af Eyjum í lagið - sem
hefur alltaf verið jákvæð og ég
upplifi alltaf smá nostalgíu þegar
ég kem þangað aftur eða hlusta á
lög sem minna mig á þessa hátíð.
Þjóðhátíðin í ár er sú fyrsta í 3 ár,
þetta hafa verið ótrúlega erfið og
skrítin ár fyrir okkur öll og ég veit
að það mun verða dásamlegt að fá
að upplifa þessa langþráðu helgi
aftur öll saman.“
Var þetta verkefni frábrugðið
þínum hefðbundu verkefnum?
„Fyrir utan hvað það er einstakt
tækifæri að fá að semja og flytja
lagið fyrir Þjóðhátíð, þá er þetta
ekkert ósvipað því sem ég vinn
við í tónlist að öllu jöfnu. Ég
sem mikið af tónlist fyrir aðra
listamenn og hef samið mikið af
tónlist fyrir sjónvarp. Lögin eru þá
samin sérstaklega með ákveðinn
stíl í huga, er til dæmis oft beðin
um að semja fyrir raunveruleika-
sjónvarp. Þá eru lögin oft glaðleg
popplög með upplífgandi og
sterka valdeflandi stelputexta. Þau
hafa verið notuð í nýju Kar-
dashians seríunni, Love Island,
Queer Eye for the straight guy og
Love is blind. En það að semja
Þjóðhátíðarlagið var talsvert
skemmtilegra verkefni.“
Herbert Guðmundsson
söngvara þarf vart að
kynna, enda er hann búinn
að vera lengi í tónlist-
arbransanum við góðan
orðstír. Þrátt fyrir líflegan
og góðan feril hefur hann
þó aldrei spilað á stóra
sviðinu á þjóðhátíð. Við
fengum þennan litríka og
skemmtilega mann á spjall
til okkar.
Herbert er með nokkuð sterka
tengingu til Eyja, hann á tvo
bræður sem eru búsettir í Eyj-
um, þá Sigga Gúmm og Ragga
rakara. Sjálfur bjó hann í Eyj-
um á árunum 1978-80, meðan
hann var afleysingakokkur á
þremur bátum frá Eyjum, Gull-
berginu, Huginn og Berg.
Tónlistarferill hans byrjaði á
sjöunda áratugnum með hljóm-
sveitinni Tilveru sem starfaði á
árunum 1969 til 1972, en þegar
Herbert gekk til liðs við hljóm-
sveitina var hann einungis 17
ára gamall. Þegar Tilvera lagði
upp laupana, tók sólóferillinn
við með fyrsta stórsmellinum
árið 1985, og síðan þá hefur
hann gefið út alls 17 plötur.
Hann á um 10 lög sem hafa
náð verulegum vinsældum á
Íslandi og lifa með þjóðarsál-
inni. Þetta eru lög eins og
Can’t walk away, Hollywood,
Eilíf ást og I believe in love
og Í þér býr það besta. Hann
er enn að gefa út lög sem
ná töluverðri spilun eins og
nýjustu lögin I follow you og
Með stjörnunum, sem fór beint
í fyrsta sætið við útgáfu í fyrra
haust. Þrátt fyrir farsælan feril,
hefur hann þó aldrei komið í
Dalinn, hvorki til að spila né
skemmta sér.
Ótrúlega heillandi
En hvað ætli sé eftirminnileg-
ast hingað til á ferlinum?
Og það þarf ekki að bíða eftir
svari: „Að koma lagi í fyrsta
sæti og komast á þjóðhátíð
í Vestmanneyjum!“ segir
Herbert og bætir við að hann
sé mjög spenntur að koma í
Dalinn, að upplifa þjóðhátíð í
fyrsta sinn og þakklátur fyrir
tækifærið. Hann verður í góð-
um félagsskap á Stóra sviðinu
enda er engu til sparað í vali á
listamönnum þetta árið.
En hvað finnst honum mest
heillandi við þjóðhátíð?
„Sameiningin, gleðin,
stemningin, tjöldin, lundinn,
allur maturinn og sú stað-
reynd að margar kynslóðir
geti komið saman og notið
þess að skemmta sér. Ótrúlega
heillandi,“ segir Herbert og
bætir við. „Ég trúi því að þetta
verði með betri þjóðhátíðum,
sem mun heppnast vel, fara
vel fram, og verða Vestmann-
eyingum til sóma um ókomin
ár! Ég hef það í bænum mínum
kvölds og morgna.“
Klara hóf feril sinn í stúlknabandinu Nylon árið 2004.
Klara kom fyrst fram á Stóra
sviðinu í fyrra, þegar hún söng
fyrir tómum Dal.
Herbert Guðmundsson
Aldrei komið á
þjóðhátíð í Eyjum
Herbert kemur loksins fram í Dalnum í ár.