Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2022, Side 21
26. júlí 2022 | | 21
sinnum að útskýra þessa upp-
lifun fyrir fólki sem hefur ekki
komið. Þetta er svo falleg hátíð
og það eru bara alltaf einhverjir
óútskýranlegir töfrar í loftinu.
Föstudagurinn á alltaf stóran
stað í hjarta mínu þar sem amma
og afi kynntust á þeim degi og
brennan um kvöldið er uppá-
halds mómentið mitt. Annars eru
auðvitað blysin alltaf undraverð
en líka bara setningin sjálf og allt
í kringum uppbygginguna fyrir
hátíð.“
Oft komið fram á Stóra sviðinu
„Árið 2001 vann ég Söngva-
keppni barna á þjóðhátíð og fékk
að koma fram á stóra sviðinu í
fyrsta skipti fyrir brekkuna. Ég
var 11 ára og söng Út á lífið sem
er íslensk útgáfa af What a feeling
úr kvikmyndinni Footlose. Það
var ótrúlegt að fá að koma fram í
Dalnum á þessum tímapunkti með
ömmu og afa og alla áhorfend-
urna í brekkunni. Þetta ár söng
ég líka með goðsagnakenndu
hljómsveitinni Made in China
en þar kynntist ég Haraldi Ara,
en við höfum verið vinir æ síðar.
Hann bað mig um að syngja með
þeim Teenage Dirtbag á Stóra
sviðinu á sunnudeginum. Ég hef
verið svo heppinn að fá einnig
að koma fram með Spice Girls
cover bandinu GRL PWR og
einnig undir sólóprojectinu mínu
SURA.“
Hvernig byrjaði ævintýrið þitt
með Reykjavíkurdætrum?
„Ég byrjaði í hljómsveitinni árið
2016 sem plötusnúður sveitarinn-
ar en Sunna Ben samstarfskona
mín benti á mig fyrir Evróputúr
sem þær voru að fara í og ég
bókstaflega fékk 30 mínútur
til að ákveða mig. Ég sagði að
sjálfsögðu já, enda mikil jámann-
eskja og var fljótlega farin að
stíga framfyrir DJ borðið og gaf
út mitt fyrsta lag með þeim árið
2017. Hef aldrei séð eftir þessari
ákvörðun enda stór partur af mínu
hjarta sem tilheyrir Reykjavíkur-
dætrum, enda þær orðnar systur
mínar og bestu vinkonur eftir öll
þessi ár.“
Hvernig var tónlistarferillinn fyrir
Reykjavíkurdætur?
„Ég hef alltaf verið að syngja,
rappa og semja lög frá því ég var
lítil. Var í nokkrum hljómsveitum
og tók þátt í söngvakeppnum og
rappkeppnum þegar ég var ung-
lingur. Ég æfði á píanó þegar ég
var barn og var í söngskóla Maríu
Bjarkar og Siggu Beinteins í mörg
ár. Söng svo inn á Söngvaborg 1
fyrir þær og einhverja geisladiska
en var svo einnig DJ í 11 ár og
hef spilað á allskonar viðburðum,
tónleikum og skemmtunum sem
DJ SURA. Eins var ég í hljóm-
sveitinni CYBER að ógleymdri
eyjahljómsveitinni Analog.“
Aldrei að segja aldrei
Það var ansi eftirminnilegt í vor
þegar Íslenska þjóðin valdi lag
til að keppa fyrir Íslands hönd
í Eurovision söngvakeppninni.
Reykjavíkurdætur höfnuðu að
lokum í 2. sæti með kröftuga
laginu sínu Turn this around. Þura
Stína segir dæturnar ekki líklegar
til að gera aðra tilraun til að fara
út fyrir Íslands hönd: „Aldrei að
segja aldrei en við stefnum samt
ekki á það.“
„Að lokum vil ég segja að við
erum bara ótrúlega spenntar að
koma fram í ár á Þjóðhátíð og
getum eignlega ekki beðið. Það
verður eitthvað einstakt að mæta
aftur í Dalinn eftir þessa pásu og
ég hlakka mikið til að upplifa alla
töfrana með litlu dóttur minni í
fyrsta skipti.“
Þura Stína hlakkar til að upplifa þjóðhátíð með dóttur sinni.
Mikið stuð í sviðsframkomu hjá Reykjavíkurdætrum.
Eigðu stund með Ása í Bæ
„Hér gleðjast allir, takast hönd í hönd
með hýrri brá því það er gamall siður
að láta dægurþrasið lönd og strönd,
við leggjumst bara í grasið mjúka niður
og njótum þess að vaka og vera til,
í vina hópi, gista klettasalinn,
á meðan sólin gyllir þessi þil
og þjóðhátíðarstemning fyllir Dalinn.“
Herjólfsdalur 77 - Lag og ljóð: Ási í Bæ