Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2022, Síða 22
22 | | 26. júlí 2022
Ólgan sem hefur ríkt
innan ÍBV undanfarið,
hefur líklegast ekki
farið framhjá mörgum, enda verið rakin á
flestum miðlum. En um hvað snýst málið
eiginlega?
Ég persónulega hnaut um það, að hvergi
var minnst á áhrif þessarar skiptingar á
barna- og unglingastarf félagsins. Er ÍBV
íþróttafélag bara meistaraflokkarnir?
Nú hef ég engra hagsmuna að gæta, hvern-
ig sem skipting aðalstjórnar er, að öðru
leyti en því að vera með þrjú börn, sem
stunda eina til tvær íþróttir með félaginu og
greiði þar af leiðandi há gjöld til félagsins.
Ber þungann af öllum aukakostnaði sem
fellur til, vegna íþróttaiðkunnar minna
barna.
Foreldrar bera orðið meiri kostnað af
öllum ferðum barna sinna og heyrir maður
því miður oftar af börnum sem þurfa að
velja á milli íþrótta eða tómstunda vegna
hárra gjalda. Og það þrátt fyrir hækkun á
frístundastyrk, sem hefur þó hjálpað þeim
gífurlega sem geta nýtt sér hann.
Þjálfarar eru margir hverjir með marga
flokka sem bitnar á krökkunum sem leggja
á sig ferðir á mót eða í leiki. Eru svo
jafnvel ekki með þjálfara á hliðarlínunni.
Einnig er það ekki óalgengt að leikjum sé
frestað, vegna annarra verkefna þjálfara, og
ekkert heyrist. Möguleg röskun á fram-
tíðarkaupum leikmanna, eða eyðslugetu
meistaraflokkanna fá alla til að standa
saman og berjast gegn óréttlætinu.
Hvar er baráttan fyrir barnastarfinu? Hverj-
ir eiga að taka slaginn, aðrir en foreldrar
iðkenda? Eru það kannski stjórnarmenn- og
konur handboltans og fótboltans? Hvað
er félagið án yngri flokkanna? Hver er
tilgangurinn með að reka félag sem þetta ef
ekki til að halda börnum og ungmennum í
íþróttum?
Það hefur sýnt sig nú að baráttan er til
staðar! Þarf bara að beina henni í rétta átt,
og þjálfa upp íþróttafólk til framtíðar!
Er ÍBV íþróttafélag bara meistaraflokkarnir?
Bjartey
Hermannsdóttir
FASTIR PENNAR:
„Það er létt yfir okkur þessa
dagana og stemningin góð nú
þegar við sjáum fyrstu þjóðhátíð-
ina í þrjú ár verða að veruleika.
Undirbúningur gengur vel og allt
verður tilbúið þegar hátíðin verður
sett á föstudaginn, 29. júlí og allir
komnir í þjóðhátíðargírinn eina
sanna,“ segir Haraldur Pálsson,
framkvæmdastjóri. Hann er í
framvarðasveit ÍBV-íþróttafélags
sem hefur siglt félaginu í gegnum
kóvid- skaflann. Í tvö ár, 2020 og
2021 var allt tilbúið í Dalnum en
á síðustu metrunum var hátíðin
slegin af vegna samkomutakmark-
ana sem vonandi eru að baki.
„Það er uppsöfnuð eftirvænting
fyrir þjóðhátíð sem maður finnur
fyrir hér í Vestmannaeyjum og hjá
fólki ofan af landi sem ætlar að
koma á hátíðina. Veðurspáin lofar
góðu og stefnir í svipaðan fjölda
og 2019, í kringum 14.000 gesti
sem er mjög viðráðanlegt. Við
erum eins og áður í mjög góðu
samstarfi við lögreglu, heilbrigði-
yfirvöld, þá sem sjá um gæslu í
Dalnum, slökkviliðið og aðra sem
vinna að því tryggja öryggi gesta
á þjóðhátíðinni.“
Haraldur segir þjóðhátíðarnefnd
funda reglulega með lögreglu og
öðrum viðbragðsaðilum. „Ör-
yggismálin eru í brennidepli núna
eins og alltaf. Það er alltaf verið
að gera betur og verður ekkert
gefið eftir í ár. Við reiknum því
með að þetta verði mjög góð hátíð
og allir sem ætla að vera glaðir
eru velkomnir,“ segir Haraldur.
Brekkusöngur um allan heim
Það er alltaf eftirsótt hjá skemmti-
kröftum að koma fram á þeirri
einstöku skemmtun sem þjóðhátíð
er. Haraldur segir að það hafi ekki
breyst. „Við erum með nýnæmi á
sunnudagskvöldinu, dagskráin og
Brekkusöngurinn verður í beinni
á streymi sem fólk getur keypt af
félaginu. ÍBV er framleiðandi og
allar tekjur renna til félagsins,“
segir Haraldur.
Þetta er samstarfi við Senu
sem mætir með fullkominn
tækjabúnað og þekkingu í að
halda stóra tónleika. „Þeir sjá
um allar tengingar við miðlana
og farsímafyrirtækin og sjá til
þess að útsendingin verði í hæsta
gæðaflokki. Tekjurnar eru góð
viðbót við aðrar tekjur okkar af
þjóðhátíð og veitir ekki af.“
Þetta var gert fyrir tómum Dal
í fyrra og mæltist vel fyrir en nú
verður öllu tjaldað til að fanga
hinn eina sanna þjóðhátíðaranda
og koma honum til skila á skjái
landsmanna og um allan heim.
„Flutningur takmarkar þann
fjölda sem við getum tekið á móti
og þetta er okkar leið til skila
þessu til ennþá fleiri. Það er sér-
staklega vandað til dagskrárinnar
á sunnudagskvöldinu og verða
æfingar alla vikuna. Þar koma
fram Birgitta Haukdal, Herbert
Guðmundsson, Jóhanna Guðrún,
Ragga Gísla og Clara, höfund-
ur þjóðhátíðarlagsins. Halldór
Gunnar mætir með Albatros og
á eftir er Brekkusöngurinn. Við
seljum þetta sem Brekkusöng en
þú færð alla dagskrána á sunnu-
dagskvöldinu sem bónus,“ segir
Haraldur og þeir búa að reynsl-
unni frá því í fyrra.
„Það hefði verið hagstæðara að
halda tónleikana í Reykjavík en
við fluttum allt dótið hingað og
héldum flotta tónleika og enginn í
Dalnum. Eftirminnilegt og magn-
að atriði en að sjá þetta núna með
fullkomnum búnaði og fullan Dal
af fólki verður stórkostlegt. Eru
allir velkomnir á Brekkusönginn,
í Herjólfsdal, um allt Ísland og
allan heim.“
Haraldur framkvæmdastjóri bjartsýnn á góða Þjóðhátíð:
Uppsöfnuð eftirvænting
eftir þriggja ára hlé
Brekkusöngur og kvölddagskráin í beinni á netinu.
Haraldur mættur í Dalinn. Brúin hefur aldrei verið litskrúðugri en í ár og í
anda nútímans.