Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2022, Side 26
26 | | 26. júlí 2022
Hefð er fyrir því að vinahópar taki
sig saman og mæti í búningum í
Herjólfsdal á þjóðhátíð þetta er
skemmtileg hefð en ekki svo ýkja
gömul. Fyrsta formlega búninga-
keppnin var haldin fljótlega uppúr
1990 og síðan hefur einn búninga-
hópur á hverri hátíð hreppt verð-
launin um besta búninginn. Við
stiklum hér á stóru yfir búninga í
gegnum tíðina.
Hefur mætt á þær allar
Selma Ragnarsdóttir, kjólameist-
ari, hefur komið að hönnun og
saumaskap ótal búninga í gegnum
tíðina. Hún segir að toppurinn í
þjóðhátíðarbúningum í hennar
huga sé sjóliðabúningurinn sem
hún gerði fyrir hóp sem vann bún-
ingakeppnina snemma á níunda
áratugnum.
Selma er dóttir Ragnars Sigur-
jónssonar og Margrétar Klöru
Jóhannsdóttur sem ráku Eyjabæ
lengi og fékk því tísku og tónlist
beint í æð frá unga aldri.
Hún segist ekki missa af þjóðhá-
tíð og hefur mætt á þær allar. „Ég
hef verið á öllum hátíðum síðan
ég fæddist, nema einni þegar
ég fór í brúðkaup til vinafólks í
Englandi 2017 og svo duttu auð-
vitað covid-þjóðhátíðirnar út.“
Og þegar hún er spurð hvort hún
ætli að koma í Dalinn ár, þá liggur
ekki á svari. „Ó já! Ég missi sko
ekki af Þjóðhátíð. Ég hef verið
með mitt eigið hvíta tjald síðan
árið 2010, það er eitt elsta tjaldið
(og það minnsta) í Dalnum, en
alltaf yfirfullt af skemmtilegu
fólki, enda heitir það Sirkustjaldið
og hefur sérstakt þema á hverju
ári, það er yfirleitt staðsett aftast á
Þórs- eða Týsgötu.“
Hvernig finnst þér Þjóðhátíðar-
lagið í ár?
„Bara nokkuð gott og virkilega
vel sungið. Kannski ekki á topp
tíu listanum yfir þau bestu, en lag-
ið er grípandi og textinn auðveld-
ur að læra. Ekki skemmir fyrir að
her kvenna mun frumflytja það í
Dalnum í ár.“
Sjóliðarnir toppurinn
Aðspurð segist hún hafa komið
að hönnun og saumaskap búninga
fyrir að minnsta kosti 20 hópa
í Eyjum, hóparnir telja á bilinu
5-20 manns svo þetta er ansi mik-
ill fjöldi eintaka samanlagt. „Þetta
jókst smám saman, en eftirspurn
eftir sérsaumuðu dróst saman fyrir
um 10-15 árum, þegar auðveldara
varð að panta ódýra búninga á
netinu.“
„Eftirminnilegast er blái sjóliða-
búningurinn sem ég gerði á hóp
stelpna árið 1994, þetta var með
allra fyrstu keppnunum og þær sigruðu!“
„Uppáhalds búningurinn eru hvít
jakkaföt úr regngallaefni sem ég
saumaði á Mafíu Vestmannaeyja
árið 1997. Einnig pallíettusam-
festingar sem ég gerði á hóp
stelpa í mismunandi lit þrjú ár
í röð þegar Páll Óskar spilaði á
Stóra sviðinu.“
Bankastjórabúningurinn
eftirminnilegur
„Svo eitt árið bjó ég til búning á
ónefndan bankastjóra í Eyjum,
líklega eru 20 ár síðan. Bún-
ingurinn var þannig að þetta voru
jakkaföt með skyrtu og bindi
og alles, sem hann mætti í á
setninguna. Svo gat hann rifið sig
úr þeim með tveimur handtökum
í heilu lagi (það var franskur
rennilás sem opnaðist), og var
þá í lopapeysu og tilheyrandi
innanundir. Snilldarhugmynd frá
honum sem ég framkvæmdi,“
segir Selma og hlær.
En er Selma sjálf í búning á
þjóðhátíð?
„Já, ég byrjaði mjög ung að gera
búninga með og á vini mína. Svo
hef ég yfirleitt verið í einhverju
þematengdu ásamt vinahópnum.
Ég elska búninga og allt skraut,“
segir Selma að lokum.
Selma Ragnarsdóttir Búningar í Herjólfsdal
Skemmtileg en ekki svo gömul hefð
Hópur stelpna í sjóliðabúningum eftir Selmu sem vann keppnina snemma á níunda áratugnum.
Uppáhalds búningur Selmu. Mafía Vestmannaeyja í hvítum regnheldum
jakkafötum árið 1997.
Selma með hatt sem hún útbjó
úr gömlum þjóðhátíðarböndum,
flest böndin frá árinu 1987 eru í
hattinum.
Eftirminnilegar stelpur í pallíettu-
samfestingum í stíl við Pál Óskar
sem hélt þá uppi stuðinu á Stóra
sviðinu.