Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2022, Blaðsíða 28
28 | | 26. júlí 2022
Það var fjölbreytt dagskrá í
Eldheimum um Goslokahelgina
og hófst með frábærum tónleik-
um á fimmtudagskvöldinu þar
sem flutt voru sígild sönglög frá
Suður-Evrópu með íslenskum
textum. „Tónleikarnir þóttu svo
einstaklega skemmtilegir og hafa
spurst svo vel út að farið er að
skora á sveitina að endurtaka þá
á meginlandinu,“ sagði Krist-
ín Jóhannsdóttir forstöðukona
Eldheima.
Flytjendur áttu það sameiginlegt
að vera úr Eyjum eða með sterkar
Eyjatengingar. Þau eru Guðrún
Gunnarsdóttir, Hrafnhildur Helga-
dóttir, Silja Elsabet Brynjardóttir,
Eggert Jóhannsson, Þórarinn
Ólason, Kristinn Jónsson, Hannes
Friðbjarnarson, Guðný Charlotta
Harðardóttir og Magnús R.
Einarsson, sem stjórnaði, útsetti
og lék á gítar.
Á Goslokaföstudeginum kom
Sara Hafsteinsdóttir færandi
hendi með gjöf frá finnskri konu
að nafni Anne Solveig Melén.
„Þetta er mynd af stórmerkilegu
plakati. Hönnuður þess er Erik
Bruun, þekktur og virtur finnskur
hönnuður. Hann teiknaði plakatið
og lét fjölfalda það og selja
til styrktar Vestmannaeyingum
1973,“ segir Kristín.
Erik Bruun er fæddur 1926 og
hefur hannað mörg þekkt plaköt
m.m. Hann fæddist í Viborg sem
þá tilheyrði Finnlandi en kom til
Helsinki í seinni heimsstyrjöldin
þegar Rússar tóku Viborg.
Í byrjun Goslokahátíðar var
opnuð sýning á völdum ljósmynd-
um Kristins H. Benediktssonar,
sem hann tók í Heimaeyjargosinu
1973. En fyrir ári síðan færði
dóttir Kristins, Hildur Sigrún
safninu gosmyndasafn föður síns
til varðveislu.
„Á laugardeginum tókum við
á móti Sigrúnu og skoðuðum
með henni sýninguna. Kristinn
hafði einstakt auga fyrir að sjá
það listræna í annars nöturlegum
aðstæðum. Hvet ég alla sem ekki
hafa séð sýninguna til að láta hana
ekki fram hjá sér fara. Hún verður
opin fram í miðjan október nk.
og eru myndirnar til sölu,“ sagði
Kristín sem var ánægð með hvern-
ig til tókst og sagði aðsókn hafa
verið góða.
Lífleg Goslokahelgi í Eldheimum
Suðræn stemning sveif yfir vötnunum á fimmtudagstónleikunum.
Listafólkið. Guðrún, Hrafnhildur, Silja Elsabet, Tóti.
Íris bæjarstjóri, Þyrí Ásta Hafsteinsdóttir, Hildur Sigrún, Petur Lentz og Kristín.
Hildur Sigrún Kristinsdóttir, dóttir Kristins og eiginmaður hennar, Petur Lentz.
Kristín og Sara sem kom færandi hendi.