Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2022, Síða 30
Alexandra Ósk
Viktorsdóttir
Foreldrar þínir og fjölskylda: foreldrar mínir
heita Hrafnhildur og Viktor, svo á ég tvö syst-
kyni sem heita Viktoría Dís og Kristófer Daði.
Hvenær byrjaðir þú að æfa handbolta: í 1.
Bekk.
Hvar myndir þú helst vilja búa í framtíðinni:
Reykjavík eða Danmörku.
Fyrirmynd: Mamma mín og Rut Jónsdóttir.
Mottó: Dream until your dreams come true.
Síðasta hámhorf: Jane the virgin.
Aðaláhugamál: Handbolti.
Uppáhalds app: Snapchat.
Uppáhalds hlaðvarp: Teboðið.
Hvað óttast þú mest: Draugahús.
Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Pepp lög.
Hverju þakkar þú þinn góða árangur í hand-
boltanum: góðum liðsfélögum og þjálfurum.
Framtíð þín í boltanum: A-landsliðið og at-
vinnumenska er draumurinn.
Góð ráð til yngri leikmanna: að vera dugleg að
æfa sig og setja sér markmið.
Herdís Eiríksdóttir
Foreldrar þínir og fjölskylda: Foreldrar mínir
heita Eiríkur og Adda, svo á ég tvö eldri systk-
ini sem heita Svanhildur og Palli.
Hvenær byrjaðir þú að æfa handbolta: Byrjaði
að æfa 6 ára.
Hvar myndir þú helst vilja búa í framtíðinni:
Ég myndi vilja prófa að búa annaðhvort í Sví-
þjóð, Noregi eða Danmörku.
Fyrirmynd: Mamma mín.
Mottó: Ekki hafa áhyggjur af því sem þú getur
ekki breytt.
Síðasta hámhorf: Love island.
Aðaláhugamál: Vinir, fjölskylda og handbolti.
Uppáhalds app: Instagram.
Uppáhalds hlaðvarp: Þarf alltaf að vera grín,
það klikkar seint.
Hvað óttast þú mest: Ég er skíthrædd við
sprautur.
Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Allt með
BlazRoca og Palla.
Hverju þakkar þú þinn góða árangur í hand-
boltanum: Hef verið að æfa upp fyrir mig í 3-4
ár og hef lært mikið af eldri leikmönnunum
og svo þakka ég einnig fólkinu sem hefur stutt
mig og haft trú á mér.
Framtíð þín í boltanum: Hafa gaman og njóta.
Góð ráð til yngri leikmanna: Verið ákveðin og
ekki vera hrædd við að gera mistök því maður
lærir alltaf af þeim.
Eitthvað að lokum: Vil þakka þeim fyrirtækj-
um og einskalingum sem styrktu mig í þessu
verkefni.
Eva Gísladóttir
Foreldrar þínir og fjölskylda: Mamma mín
heitir Guðrún Lena Eyjólfsdóttir og stjúppabbi
minn Lárus Long, og systkini mín heita Rúrik
Heiðar, Valdimar og Ásta Bína. Pabbi minn
heitir Gísli Valur Gíslason og stjúpmamma mín
Eygló Dís Alfreðsdóttir, systkini mín þar heita
Jóel Dan og Ísabella Sara.
Hvenær byrjaðir þú að æfa handbolta: Fyrir
þremur árum.
Hvar myndir þú helst vilja búa í framtíðinni:
Hér á Íslandi.
Fyrirmynd: Nora Mørk.
Mottó: Lifðu lífinu eins og dauðinn sé á næsta
leiti.
Síðasta hámhorf: Chicago Med.
Aðaláhugamál: Handbolti og tíska.
Uppáhalds app: Snapchat.
Uppáhalds hlaðvarp: Hlusta ekki á hlaðvörp.
Hvað óttast þú mest: Flugvélar.
Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Ég fíla
nánast alla tónlist, en hlusta mikið á Duster og
Mitski.
Hverju þakkar þú þinn góða árangur í hand-
boltanum: Ég hef verið samviskusöm og
dugleg að æfa frá því ég byrjaði í handbolta.
Framtíð þín í boltanum: A landsliðið og það
væri gaman að prófa að spila erlendis.
Góð ráð til yngri leikmanna: Ekki gefast upp
þótt að eitthvað verði erfitt.
Eitthvað að lokum: Áfram Ísland!
Eyjastúlkurnar í U16 landsliðinu
U16 kvennalandslið Íslands í handbolta fór í keppnisferð til
Gautaborgar á Opna Evrópurmótið í byrjun júlí. Liðið náði ágæt-
um árangri og endaði í 13. sæti á mótinu.
Hvorki meira né minna en þrjár Eyjastúlkur voru í liðinu, tvær
þeirra spila með ÍBV, en sú þriðja með FH.
Eva með foreldrum sínum, Guðrúnu og Lárusi.Herdís og Alexandra Ósk.
30 | | 22. júní 2022