Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2022, Qupperneq 31
26. júlí 2022 | | 31
„Skólalúðrasveit Vestmannaeyja
skellti undir sig betri fætinum í
júní og skrapp til Spánar. Þar tók
hljómsveitin þátt í listahátíð sem
haldin er árlega í bænum Calella
rétt austan við Barcelona. Ferðin
var lengi í bígerð, átti að vera
árið 2019. Búið að kaupa alla
flugmiða með WOW og ganga frá
hótelgistingu. WOW lagði upp
laupana skömmu seinna og varð
því ekkert af ferðalaginu það árið.
Í kjölfarið fylgdi svo alheims-
faraldur sem gerði út um allar
ferðavonir árin 2020 og 2021.“
Þannig lýsir Jarl Sigurgeirs-
son, stjórnandi hljómsveitar-
innar aðdraganda ferðarinnar
sem loksins varð að veruleika í
sumar. Og sumir félagar komnir á
fullorðinsárin enda búnir að bíða
ferðarinnar frá því 2019, þá rétt að
detta í fullorðinsárin. „Í hópnum
voru 22 úr Lúðrasveitinni, níu til
átján ár, fjórir kennarar sem ýmist
spiluðu með eða stjórnuðu og svo
fjölskyldumeðlimir sem ferðuð-
ust með. Í allt taldi hópurinn 60
manns,“ sagði Jarl og ferðin gekk
vonum framar.
„Flogið var út 20. júní og gist á
ágætis hóteli í Calella. Veðrið var
eins og best verður á kosið, 25
til 29 gráður, allan tímann og sól
að mestu. Listahátíðin var með
smærra sniði þar sem eftirköst
Covid og stríðsátök í Evrópu
spiluðu inn í. Við vorum í raun
eina Lúðrasveitin sem tók þátt
og svo voru nokkrir danshópar.
Lúðrasveitin spilaði þrisvar í
miðbæ Calella. Stóðu krakkarnir
sig með stakri prýði og voru Tón-
listarskólanum til mikils sóma.
Vel var mætt á viðburðina og var
á áheyrendum að heyra að þeim
líkaði vel flutningurinn.“
Að öllu jöfnu tekur fjöldi hljóm-
sveita þátt í hátíðinni sem haldin
er árlega. Nokkrar sveitir frá
Íslandi og er þetta í þriðja skiptið
sem Skólalúðrasveitin mætir. „Það
er sérlega ánægjulegt að hátíðin
féll ekki niður og við mættum
enda hefði hún verið mjög fátæk-
leg án atriðis skólasveitarinnar.“
Stefnan er að sveitin taki þátt
í hátíðinni annað hvert ár. „Við
vonum svo sannarlega að gjald-
þrot flugfélaga, heimsfaraldur,
stríðsrekstur og aðrar hremm-
ingar setji ekki frekari strik í þær
áætlanir,“ sagði Jarl og segir þau
þakklát öllum sem stutt hafa við
bakið á þeim. Ekki síst dósasöfn-
uninni sem er grundvöllur þess
að ferðir sem þessar geti orðið að
veruleika.
„Við minnum í leiðinni á að við
tökum alltaf við dósum á milli
safnana og þarf ekki annað en
hafa samband við sveitina í síma
6901167 og við sækjum.“
Loksins til Spánar eftir þriggja ára bið
Ljótuskyrtukeppni í fullum gangi.
Hópurinn að lokinni spilamennsku.
Tónleikar á Kirkjutorginu í miðbæ Calella. Tónleikar sveitarinnar voru vel sóttir.