Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 24.02.2022, Qupperneq 6

Fréttir - Eyjafréttir - 24.02.2022, Qupperneq 6
6 | | 24. febrúar 2022 Sunna Kristrún Gunnlaugsdótt- ir fluttist til Vestmannaeyja í ágúst 2020 ásamt fjölskyldu sinni. Það stóð alltaf til að flytja til Eyja en Sunna Kristrún er gift eyjamanninum Elíasi Inga Björgvinssyni og saman eiga þau fjögur börn. Sunna Kristrún er djákni og leik- skólakennari en hún starfar á Kirkjugerði ásamt því að sjá um foreldramorgna í Landa- kirkju. Sunna Kristrún hefur búið víðsvegar um landið og áætlar hún að hafa flutt rúmlega tuttugu sinnum á ævinni. Á yngri árum stoppaði hún lengst við á Akureyri og kallar sig því Þorpara. Eftir að hafa lokið námi í Reykjavík flutti fjölskyldan norður þegar Sunnu Kristrúnu bauðst drauma- starfið í uppeldiskirkjunni sinni að starfa við hlið föður hennar sem djákni. ,,Foreldrar mínir eru Gunnlaugur Garðarsson sóknar- prestur kominn á eftirlaun og dr. Sigríður Halldórsdóttir prófessor í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Það má segja að ég hafi fetað í fótspor beggja foreldra því ég hef lokið tveim háskólagráð- um, annars vegar á sviði trúmála og hins vegar umönnunar, en ég er djákni og leikskólakennari. Áður en við fluttum til Eyja starfaði ég sem djákni við hlið pabba í kirkjunni sem ég ólst uppí og við pabbi segjum oft að það hafi verið hápunktur í lífi okkar, “ sagði Sunna Kristrún en á sumrin hefur hún starfað í kristilegum sumar- búðum í rúma tvo áratugi. Í dag starfar Sunna Kristrún á leikskól- anum Kirkjugerði. ,, Mér finnst mjög skemmtilega fyndið að hann skuli heita KIRKJUgerði. Það hefði toppað það hefði ég unnið á deildinni Prestavík í þokkabót,” sagði Sunna Kristrún og hló. Fjölbreytt og skemmtilegt starf Eins og áður sagði starfaði Sunna Kristrún sem djákni við hlið föðurs síns en blaðamanni lék forvitni á að vita í hverju það felst að vera djákni. ,,Ég fæ oft spurninguna hvað djáknar geri þegar það berst í tal að ég sé vígður djákni. En þó ég hafi lokið djáknanámi og starfsnámi Þjóðkirkjunnar verður maður ekki djákni fyrr en biskup vígir mann til starfa. Djáknar sinna því sem kallast kærleiksþjónusta. Þetta er mjög opið hugtak og það var eitt af því frábæra sem ég upplifi við starfið. Að finna þörfina fyrir slíka þjónustu í lífi kirkjunnar og reyna að mæta henni. Þegar ég starfaði sem djákni hélt ég utan um foreldramorgna, barna- og æskulýðsstarf frá 1-10 bekk sem og alla þá viðburði og ferðalögum sem því fylgja. Ég sá um leiðtoga og ungleiðtoga ásamt fræðslu til þeirra. Ég aðstoðaði í fermingar- fræðslu og eldriborgarasamverum. Sá um fjöl- skylduguðs- þjónustur í hverjum mánuði og sunnu- dagaskólann. Ég var með sálgæsluviðtöl og meðlimur í áfallaráðum í hverfinu. Ég setti á fót kyrrðartónleika í sam- starfi við grasrótartónlistarfólk bæjarins og starfaði með Barna- vernd, Hjálparstarfi Kirkjunnar og grunnskólum sóknarinnar að ýmsum málum. Það finnast djáknar í kirkjum, skólum, hjúkr- unarheimilum og fleiri stofnunum svo fátt eitt sé nefnt og hvert starf er sniðið að hverjum stað og fólk- inu. Kærleiksþjónusta er viðbót við þjónustu samfélagsins og er stunduð í samstarfi við en ekki samkeppni við hana. Fyrirmyndin er sjálfur Jesús Kristur,” sagði Sunna Kristrún. Vígðu nýju fæðingarstofuna Frá því að Sunna Kristrún og Elías Ingi fóru að vera saman hafa þau verið með annan fótinn hér í Eyjum og var alltaf planið að koma hingað á endanum, það varð svo að veruleika og fluttu þau hingað ásamt börnunum sínum þremur. Síðan þá hefur bæst í barnahópinn en þau vígðu nýju Orðin Eyjakona ” Mér finnst mjög skemmtilega fyndið að hann skuli heita KIRKJUgerði. Það hefði toppað það hefði ég unnið á deildinni Prestavík í þokkabót.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.