Feykir - 16.03.2022, Page 3
LÖGREGLUSTJÓRINN Á NORÐURLANDI VESTRA
Sumarafleysingar
Hjá lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra eru lausar til umsóknar stöður fjögurra lögreglumanna við embættið vegna
sumarorlofa. Um er að ræða tímabundnar ráðningar sem taka til tímabilsins 1. maí til 15. september.
Helstu upplýsingar um vinnustaðinn
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra er ríkisstofnun sem heyrir undir dómsmálaráðuneytið. Stofnunin er eitt níu lögregluumdæma landsins sem
ákveðin eru í lögreglulögum nr. 90/1996 og reglugerð um umdæmi lögreglustjóra nr. 1150/2014. Hjá embættinu starfa nú liðlega 20 starfsmenn,
þar af 17 lögreglumenn. Lögð er m.a. áhersla á opin og jákvæð samskipti, gagnsæi, frumkvæði, vönduð vinnubrögð, framúrskarandi þjónustu, vilja
til samvinnu og samstarfs og starfsþróun.
Í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi vestra eru sjö sveitarfélög. Aðalstöð lögreglustjóra er á Sauðárkróki. Einnig eru lögreglustöðvar á
Blönduósi og Hvammstanga.
Gert er ráð fyrir að tveir starfsmenn sem ráðnir verða hafi starfsstöð á Blönduósi og tveir á Sauðárkróki.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samkvæmt 11. gr. reglugerðar um starfsstig innan lögreglunnar nr.
1051/2006 er verksvið og ábyrgð lögreglumanns m.a. eftirfarandi:
• Löggæslustörf, þar á meðal forvarnarstörf og rannsóknir mála.
• Að halda uppi lögum og reglu í samræmi við lög, reglur og
fyrirmæli sem honum eru gefin.
• Að tryggja réttaröryggi borgaranna með störfum sínum og
framkomu, greiða götu þeirra eftir því sem við á og aðstoða
þegar hætta steðjar að eða slys ber að höndum.
Um verkefni og ábyrgð sem starfsstiginu fylgir fer einnig samkvæmt
lögreglulögum nr. 90/1996, öðrum ákvæðum reglugerðar um
starfsstig innan lögreglunnar nr. 1051/2006 og nánari fyrirmælum
lögreglustjóra.
Hæfniskörfur
Leitað er eftir einstaklingum með eftirfarandi menntun,
reynslu og hæfni:
Menntun
• Hafa lokið próf frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi
í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum
námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar.
Reynsla
• Hafa starfað í lögreglu með farsælum hætti.
Persónulegir eiginleikar/hæfni
• Samskiptafærni og vilji til þess að vinna með fólki, bæði innan
og utan lögreglu.
• Skipulagsfærni og nákvæmni í vinnubrögðum.
• Frumkvæði og jákvæðni.
Lögreglustjóri áskilur sér að nýta heimild í lögreglulögum til að ráða mann sem ekki hefur lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í
lögreglufræðum, að því gefnu að menntaður lögreglumaður sæki ekki um og/eða uppfylli ekki kröfur um hæfni.
Frekari upplýsingar um starfið
Um vaktavinnu er að ræða. Næsti yfirmaður er vakthafandi varðstjóri eða staðgengill hans.
Ráðningarkjör eru skv. kjarasamningi Landssambands lögreglumanna og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um.
Umsóknum skal skilað rafrænt inni á vef Starfatorgs, www.starfatorg.is, þar sem staðan er enn fremur auglýst. Með umsókn skal
fylgja starfsferilskrá.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Vakin er athygli á því að samkvæmt 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið
fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem
starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 28. mars 2022.
Nánari upplýsingar veitir
Pétur Björnsson yfirlögregluþjónn í síma 444-0700 eða í tölvupóstfangið pb01@logreglan.is.
11/2022 3