Feykir - 16.03.2022, Qupperneq 4
M I N N I N G
Jóhanna Ásta Þórarinsdóttir
fædd 10. janúar 1934 – látin 16. janúar 2022
Við lát Jóhönnu Þórarinsdótt-
ur, fyrrum húsfreyju á Æsu-
stöðum, leitar hugurinn aftur
til ársins 1981 er undirritaður
réðist sem sóknarprestur að
Bólstað í A- Húnavatnssýslu.
Á Æsustöðum steig ég fyrst
inn fæti um páskana, það var
er ég kom norður til að prédika
í Bólsstaðarhlíðarkirkju og
kynna mig fyrir sóknarbörn-
unum. Komum við hjóna-
kornin norður með Norður-
leiðarrútunni, sem stansaði
nánast við bæjardyrnar á Æsu-
stöðum, en þá lá vegurinn þar
í gegnum hlaðið. Þarna var
okkur tekið tveimur höndum
af húsráðendum, hjónunum
Sverri Halldórssyni og
Jóhönnu Þórarinsdóttur. Er
mér minnisstætt, hve hlýjar og
rausnarlegar móttökur við
fengum. Daginn eftir, páska-
dag, að lokinni messu í Ból-
staðarhlíðarkirkju, var svo
haldið vestur í Svínavatns-
hrepp. Sverrir og Jóhanna
höfðu keypt Æsustaði, hið
gamla prestsetur í Bólstaðar-
hlíðarprestakalli, skömmu
eftir 1960, er prestsetrið var
lagt niður þar og flutt að
Bólstað, þar sem reist hafði
verið nýtt og rúmgott prest-
seturhús, og þangað skyldum
við flytjast. Æsustaðir eru hæg
bújörð, og þangað er einkar
hlýlegt heim að líta. Þar bjuggu
þau hjón góðu blönduðu búi
ásamt börnunum sínum
þremur, Þórönnu Sigurbjörgu,
Haraldi Bjarnþór og Sverri
Þór. Einnig höfðu þau alið upp
tvö fósturbörn, sem voru
flogin úr hreiðrinu, er hér var
komið sögu. Nálægt miðju
sumri fluttum við svo á
Bólstað, og þar með hófst
ríflega tveggja ára dvöl okkar
meðal góðs sóknarfólks í
Bólstaðarhlíðarprestakalli. Þar
eignuðumst við fljótt góða
kunningja og vini, og í þeim
hópi voru sannarlega þau hjón
á Æsustöðum. Þangað var
alltaf gott að koma, þar mætti
manni jafnan sönn gestrisni
og hlýlegt viðmót. Og ætíð um
nóg að spjalla. Sverrir bóndi
ræðinn og hress í máli,
húsmóðirin kannski hæglátari,
greind kona og fróð og hafði
sínar skoðanir á mönnum og
málefnum, sem hún fór hvergi
leynt með. Jóhanna var mikil
fjölskyldumanneskja, að ann-
ast börn og bú var hennar
starfsvettvangur sem hún
sinnti af alúð og umhyggju, en
sjálf þekkti hún sveitalífið frá
bernsku, enda alin upp í
torfbæ í Norðurárdal og hafði
sterkar taugar til bernsku-
stöðvanna þar sem hún
minntist stundum á. Hún var
AÐSENT | Margrét Alda Magnúsdóttir skrifar
Lögreglustarfið hefur lengi
heillað mig. Starfið getur bæði
verið krefjandi og gefandi og
þú veist aldrei hvað bíður þín
þegar þú mætir á vaktina.
Verkefnin sem upp koma eru
fjölbreytt. Þú getur enn
fremur þurft að hafa afskipti
af fólki á þeirra verstu
stundum en einnig aðstoðað á
góðum stundum.
Að vinna í lögreglunni er því
fjölbreytt starf og innan
hennar er margt sem hægt er
að sérhæfa sig í. Þú getur
unnið í almennri deild þar
sem þú sinnir fjölbreyttum
verkefnum og þú getur farið í
rannsóknardeild og sérhæft
þig á þeim vettvangi. Sviðin
eru einnig fleiri.
Ég sjálf starfa í almennu
deildinni hjá mínu embætti en
einnig er ég búin að sérhæfa
mig sem leiðbeinandi með
fíkniefnahund. Þar liggur
minn áhugi og því fannst mér
tilvalið að sérhæfa mig í því
þegar ég fékk tækifæri til þess.
Námið í lögreglufræði er
mjög áhugavert nám. Það er
sett upp þægilega, að mínu
mati, þar sem þú getur tekið
bóklega hluta þess í fjarnámi
frá Háskólanum á Akureyri og
svo er verklega kennslan hjá
Mennta- og starfsþróunarsetri
lögreglu (MSL) kennd í lotu-
formi í Reykjavík. Þar af leið-
andi getur þú stundað námið
hvar á landi sem er. Hjá MSL
er þér kennt margt af því sem
tengist starfinu þar sem þú
þarft að leysa úr krefjandi
verkefnum við krefjandi að-
stæður.
Námið í MSL er kennt í
bekkjarkerfi og því kynnist þú
hópnum þínum vel.
Eftir námið gefst þér
tækifæri til að starfa í lögreglu
þar sem þú heldur áfram að
læra þar sem upp geta komið
verkefni af fjölbreyttum toga
sem þurfa mismunandi úr-
vinnslu. Svo býður MSL upp á
alls konar námskeið sem þú
getur sótt og aukið þekkingu
þína á ýmsum sviðum.
Ég hvet þig, hafir þú áhuga
á áskorunum og fjölbreytileika
í starfi og að vinna í góðum og
samheldnum hópi samstarfs-
manna, að skrá þig í lög-
reglufræði við Háskólann á
Akureyri.
Opið er fyrir umsóknir í
lögreglufræði við Háskólann á
Akureyri til 31. mars. Kynntu
þér málið á www.mennta-
seturlogreglu.is
Margrét Alda Magnúsdóttir
lögreglumaður
Lögreglustarfið dýravinur, hlúði að öllu lífi,
en einnig að fallegum
trjágarði á Æsustöðum, sem
Sigríður Stefánsdóttir, kona
sr. Gunnars Árnasonar, er
síðast sat Æsustaði, hafði
ræktað upp. Greiðvikni og
hjálpsemi voru ríkir eigin-
leikar í fari Jóhönnu. Sum-
arið 1983 var mér veitt
Mælifell í Skagafirði og þurfti
þá að flytja mína fyrstu
messu þar, sem var um
verslunarmannahelgina í
Ábæjarkirkju í Austurdal.
Þangað var talsvert löng leið
frá Bólstað, sem ég hafði
raunar ekki hugmynd um,
hversu löng og torsótt var. Ég
var einn heima með eins og
hálfs árs gamla dóttur mína,
sem ég þurfti að koma í
fóstur á meðan. Ég hringdi í
Jóhönnu, sem kvað meira en
sjálfsagt að taka barnið, ef
hún gæti við unað. Byrjaði ég
messudaginn á að skjóta
telpunni niður í Æsustaði, en
hélt síðan fram á Austur-
dalinn. Þangað náði ég í tæka
tíð og gekk allt slysalaust. Var
ég kominn aftur í Æsustaði
um tíuleytið og dóttirin alsæl
með dvölina. Þannig var
Jóhanna á Æsustöðum, heilli
og traustari manneskja var
vandfundin. Árið 1994 seldu
þau hjón Æsustaði og fluttust
suður í Kópavog. Þar lést
Sverrir árið 2002. Síðast
dvaldi Jóhanna á hjúkrunar-
heimilinu Skógarbæ, og þar
lést hún 16. janúar sl. 88 ára
að aldri. Útför hennar fór
fram frá Breiðholtskirkju 28.
janúar. Einlægar samúðar-
kveðjur sendum við börnum
hennar, fjölskyldum þeirra
og öðrum aðstandendum.
Björt lifir minning mætrar
konu.
Ólafur Hallgrímsson
Mælifelli
Textílmiðstöð Íslands fékk fína heimsókn
í byrjun mars þegar nemendur á öðru ári í
vöruhönnun í Listaháskólanum komu í
vettvangsferð í TextílLab – stafrænu
textílsmiðjuna í Textílmiðstöðinni á
Blönduósi.
Fengu þau kynningu á starfseminni sem
þar fer fram en TextílLab er rými sem
útbúið er stafrænum tækjum sem
tengjast textílvinnslu, eins og vefnaði,
prjóni, þæfingu og útsaumi.
Í frétt á Húna.is segir að nemendurn-
ir hafi verið í áfanganum „staðbundin
framleiðsla“ og voru að kynna sér tæki
og möguleika sem hægt er nýta sér til
nýsköpunar og þróunar í tengslum við
textíl og hönnun. Fengu þau að prófa
þæfingarvél með ull úr ullarþvottastöð-
inni og afgangsgarn til prufugerðar. /ÓAB
TextílLab á Blönduósi
Listaháskólanemar
í heimsókn
Brosmildir nemendur Listaháskólans í vettvangsferð í TextílLab. MYND: TEXTÍLMIÐSTÖÐ ÍSLANDS
4 11/2022