Feykir - 16.03.2022, Blaðsíða 9
SÖFNIN OKKAR | Gunnar Rögnvaldsson hjá Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði skrifar
Hákarlaskipið Ófeigur
Einn merkasti safngripur sem Íslendingar eiga er
hákarlaskipið Ófeigur sem hefur verið í eigu Þjóð-
minjasafnsins síðan 1940 en varðveittur í Byggða-
safninu á Reykjum við Hrútafjörð.
Ófeigur á sér merka sögu, allur smíðaður úr inn-
lendu efni af Jóni Jónssyni á Krossnesi í Árneshreppi
árið 1875 fyrir Guðmund Pétursson í Ófeigsfirði sem
þá var rétt rúmlega tvítugur. Guðmundur mun hafa
efnað niður rekavið í skipið og allan saum og önnur
járn smíðaði hann sjálfur. Segir sagan að Jón, við
annan mann, hafi lagt eitt umfar borða á dag og lokið
þannig við byrðinginn á hálfum mánuði.
Ófeigur er tíróinn áttæringur, súðbyrðingur með
breiðfirsku bátalagi, 11,9 metrar að lengd og 3,3
metrar á breidd, bar um fimmtíu og fimm tunnur
lifrar eða um sjö tonn. Var honum haldið úti til
hákarlaveiða í 33 vertíðir, en eftir það notaður til
viðarflutninga á Húnaflóa í tuttugu ár. Ófeigur kom á
safnið 1961 þegar lokið var að byggja yfir hann hús
sem var fyrsti áfangi Byggðasafnsins. Ástand bátsins
er gott og var hann gerður upp að hluta s.s. lifrar-
kassinn og pallar og er hann í öndvegi í húsi sínu
ásamt skemmtilegri og fræðandi sýningu um
hákarlaútveg. Mikil verðmæti voru í lifrinni sem
brædd var í lýsi og flutt út, m.a. sem ljósgjafi.
Ófeigur var happafleyta en harðdrægt hefur verið
að liggja úti á opnum báti dægrum saman við
misgóðan kost og veður. Þó ekki hafi það verið um
borð í Ófeigi þá bar það til í febrúar 1848 að kona ól
barn um borð í báti sem róið var í hákarl úr
Árneshreppi. Fæddi einn hásetanna, Jófríður Hans-
dóttir þá stúlkubarn sem skírð var Guðrún. Fæðing-
in gekk vel en Guðrún litla lést engu að síður ríflega
ársgömul.
Mikinn fróðleik er að finna um hákarlaútveg í
ýmsum bókum og má þar nefna Íslenska sjávarhætti, Í
verum eftir Theódór Friðriksson og skemmtilega
grein eftir Gunnstein Steinsson frá Ketu í Skag-
firðingabók 6. bindi 1973.
Ófeigur á byggðasafninu. Efst til hægri: Ófeigur undir seglum (mynd af Sarpi). Fyrir neðan: Ófeigur, væntanlega þegar hann kom að Reykjum 1961. Hjá honum stendur Kári B Helgason AÐSENDAR MYNDIR
Á Melum í Hörgárdal sýnir Leikfélag
Hörgdæla frumsamið verk Péturs
Guðjónssonar Í fylgd með fullorðnum
sem jafnframt leikstýrir verkinu. Verkið
byggir á lögum og textum Bjartmars
Guðlaugssonar og fjallar um ævi Birnu
sem er komin að ákveðnum kaflaskilum í
lífi sínu og rifjar upp líf sitt allt frá bernsku
til fullorðinsára. Leikkonurnar eru fjórar
sem skipta hlutverki Birnu á milli sín og
ein þeirra er Skagfirðingurinn Matthildur
Jónsdóttir á Flugumýri. Feykir hafði
samband við leikkonuna ungu og for-
vitnaðist um þátttöku hennar í þessu
skemmtilega leikriti.
Í fylgd með fullorðnum var frumsýnt
sl. fimmtudag fyrir fullu húsi og
stemningin var hreint út sagt mögnuð.
Hver kjaftur þekkir lögin sem lifað hafa
með þjóðinni í áratugi og ekki hafði
undirritaður áttað sig á hve vel þau lýsa
tíðarandanum á lífshlaupi Birnu og
hennar samferðafólks. Sagan er súrsæt,
oft skemmtilegt hjá Birnu en hver
ákvörðun og gjörðir hennar og þeirra
sem í kringum hana eru hefur afleiðing-
ar sem horfast verður í augu við. Ekki er
það ætlunin að skrifa einhverja leik-
húsgagnrýni hér en óhætt er að mæla
með leikhúsferð í Hörgárdalinn og
hverfa aftur til hinna dásamlegu daga
þegar bjórinn var bannaður en vodki í
kók og sígó var málið og vinnan hafði
forgang á stúdentshúfuna.
Leikurinn var ansi skemmtilegur en
alls stigu 17 leikarar á svið, sumir alvanir
en aðrir að stíga sín fyrstu skref, eins og
segir í kynningu. Einn þeirra er ung og
efnileg leikkona, Matthildur Jónsdóttir,
Ingimarssonar og Margrétar Óladóttur á
Flugumýri í Blönduhlíð. Hún leikur 13
ára Birnu sem er að kynnast ástinni og
fara í gegnum unglingaveikina í
leikritinu. Matthildur segist alltaf hafa
verið spennt fyrir leikhúsinu og að taka
þátt í uppsetningu á söngleik eða leikriti.
„Svo ég fór bara í prufu og fékk hlutverk.
Þó ég eigi heima á Flugumýri þá bý ég
líka á Akureyri og er þar í skóla. Ég fæ
alltaf far með einhverjum því við búum
Ung skagfirsk leikkona í Í fylgd með fullorðnum
Hefur alltaf verið
spennt fyrir leikhúsinu
Brugðið á leik; Matthildur t.v. ásamt Særúnu Elmu Jakobsdóttur, sem leikur Birnu 21 árs. AÐSEND MYND.
eiginlega öll á Akureyri sem erum í
leikritinu,“ segir Matthildur aðspurð um
aðkomu sína að leikritinu.
„Við byrjuðum að æfa seinnipartinn í
janúar og mér finnst gaman hvað
hópurinn nær vel saman. Það eru búnar
að vera mjög margar æfingar en það er
alltaf jafn gaman hjá okkur.
Á frumsýningunni var ég pínu
stressuð en svo gekk þetta bara allt vel.
Mér líður bara alltaf vel á sviði. Það var
góð stemning og allir voru spenntir og
glaðir,“ segir hún.
Það er mikið um að vera hjá Matthildi
því auk þess að leika æfir hún á píanó,
söng og blak og þess á milli er hún mikið
fyrir það að fara á snjóbretti.
En hvað er framundan? „Nú eru bara
sýningar framundan á föstudögum og
laugardögum og svo ætla ég að fermast
24. apríl. Svo er bara að reyna að komast
á bretti upp í fjall inn á milli. Svo verðið
þið bara öll að koma og horfa ef þið viljið
vita eitthvað meira!“ segir hún í lokin.
Í fylgd með fullorðnum er sýnt á
föstudags- og laugardagskvöldum og
miða er hægt að nálgast á Tix.is svo er
hægt að fylgjast með framvindunni á
Facebook-síðu Leikfélags Hörgdæla.
/PF
11/2022 9