Feykir


Feykir - 24.08.2022, Side 2

Feykir - 24.08.2022, Side 2
Nú nálgast veturinn óðfluga og þá taka við tómstundir og dægrastyttingar innandyra frekar en sú útivera sem oftar en ekki einkennir sumardagana. Þá er gott að sitja með góða bók, glápa á heila sjónvarps- seríu á óhóflega stuttum tíma, prjóna eða stunda aðrar hannyrðir. Svo er hægt að gera það sem mér finnst nauðsynlegast á veturna og það er að spila gott borðspil í góðra vina hópi. Hvort það er vegna góðra borðspila eða góðra vina er ómögulegt að segja. Undanfarinn áratug hefur verið augljós áhugaaukning á borðspilum á Íslandi og úrval borðspila aukist gríðarlega. Fyrst í hinni frábæru verslun Nexus og svo spruttu upp fleiri góðir sölumenn gleði og góðra stunda, líkt og Spilavinir. Þegar ég var ungur vorum við nokkrir bjánar sem völdum okkur stundum að spila frekar borðspil heldur en að fara út að djamma og vera fullir og þótti það vægast sagt furðulegt að við gætum setið við borð og spilað löngum kvöldum á meðan jafnaldrar okkar fylgdu Bakkusi langt fram á nótt. Nú finnst manni eins og þessi menning hafi hér um bil snúist við og unglingarnir séu ekki jafn mikið að djamma allar helgar og haldi sig frekar heima að spila borðspil. Kannski eru unglingar ekki upp til hópa að spila borðspil en það að þessi menning að hanga of ungur fyrir utan skemmtistaði með áfengi sé ekki lengur til staðar hlýtur að teljast jákvætt. Ég velti fyrir mér hvort það sé staðreyndin að unga fólkið í dag sé skynsamara og reglusamara en við gamla kynslóðin vorum hérna fyrir aldamót. Hvort þau séu hreinlega betri í að vera ung en við vorum. Er það málið? Eru unglingar betri í dag? Ingólfur Friðriksson, blaðamaður LEIÐARI Borðspil, Bakkus og betri æska AFLATÖLUR | Dagana 7. til 20. ágúst á Norðurlandi vestra Arnar HU 1 með tæp 378 tonn SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG Sæunn HU 30 Handfæri 1.756 Valur ST 43 Handfæri 593 Viktor Sig HU 66 Handfæri 7.774 Von HU 170 Lína 10.553 Alls á Skagaströnd 166.486 SAUÐÁRKRÓKUR Arnar HU 1 Botnvarpa 377.738 Álborg SK 88 Handfæri 692 Fannar SK 11 Handfæri 2.320 Gammur SK 12 Handfæri 275 Gammur SK 12 Þorskfisknet 2.594 Gjávík SK 20 Handfæri 5.104 Greifinn SK 19 Handfæri 1.731 Hafborg SK 54 Þorskfisknet 10.184 Hafey SK 10 Handfæri 9.030 Lundey SK 3 Þorskfisknet 23.620 Maró SK 33 Handfæri 3.631 Már SK 90 Handfæri 6.274 Skotta SK 138 Handfæri 1.749 Steini G SK 14 Handfæri 3.873 Særif SH 25 Lína 2.656 Þytur SK 8 Handfæri 4.433 Alls á Sauðárkróki 455.904 HVAMMSTANGI Harpa HU 4 Dragnót 23.120 Steini HU 45 Handfæri 2.093 Alls á Hvammstanga 25.213 HOFSÓS Þorgrímur SK 27 Handfæri 2.132 Alls á Hofsósi 2.132 SKAGASTRÖND Blíðfari HU 52 Handfæri 8.123 Dúddi Gísla GK 48 Lína 9.971 Elfa HU 191 Handfæri 8.472 Eskey ÓF 80 Línutrekt 19.054 Dagrún HU 121 Þorskfisknet 13.144 Fengsæll HU 56 Handfæri 6.493 Fengur ÞH 207 Handfæri 3.772 Guðrún Petrína HU 107 Handfæri 12.900 Hafrún HU 12 Dragnót 36.861 Hjalti HU 313 Handfæri 7.391 Hrund HU 15 Handfæri 7.391 Húni HU 62 Handfæri 3.332 Loftur HU 717 Handfæri 1.043 Ólafur Magnússon HU 54 Þorskfisknet 3.854 Sigurfari HU 9 Handfæri 4.009 Á Króknum lönduðu 15 bátar í alls 66 lönd- unum síðustu tvær vikurnar. Aflahæstur var Arnar HU 1 með 377.738 kg í einni löndun. Þá voru ellefu bátar að veiðum með handfæri, þrír með þorskfisknet og einn með línu og var heildarafli á Króknum 455.904 kg. Á Skagaströnd lönduðu 19 bátar í 53 löndun- um samtals 166.486 kg á tímabilinu. Aflahæst var Hafrún HU 12 sem var á dragnótarveiðum með tæp 37 tonn en hún landaði sex sinnum. Þá voru 13 bátar við veiðar með handfæri, tveir með línu og tveir með þorskfisknet. Tveir bátar lönduðu á Hvammstanga alls 25.213 kg í sex löndunum, annar var við drag- nótarveiðar og hinn með handfæri. Einn hand- færabátur landaði á Hofsósi, Þorgrímur SK 27, 2.132 kg í einni löndun. Heildarafli á Norðurlandi vestra var 649.735 kg í 126 löndunum. /SG Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Ingólfur Örn Friðriksson, bladamadur@feykir.is | Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 649 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 795 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Matvælastofnun varar enn við hættu á fuglaflensusmiti frá villtum fuglum yfir í alifugla en stofnunin lítur svo á að smit með skæðum fuglaflensuveir- um sé viðloðandi í villtum fugl- um víða á landinu. Þó hafi færri veikir eða dauðir villtir fuglar verið tilkynntir til Matvæla- stofnunar í júlí og það sem af er ágúst en mánuðina á undan. Á heimasíðu MAST segir að kríur hafi bæst á lista þeirra tegunda sem hafa greinst með fuglaflensu en í júlí fundust veikar kríur á Höfn í Hornafirði. Feykir greindi frá dauðum lundum sem fundust í fjörunni við Sauðárkrók í síðasta blaði en ekki hefur Feykir upplýs- ingar um hvort sýni hafi verið tekin úr hræjunum. „Ég hef bless-unarlega ekki orðið var við fugladauða af fuglaflensu í sumar á Norðurlandi vestra,“ segir Einar Ó. Þorleifsson, náttúrufræðingur hjá Náttúru- stofu Norðurlands vestra. „Það getur verið margt sem orsakar dauða lunda á fjörum í Skagafirði enda mjög stór lundavörp í Drangey, Málmey og Lundey. Ég hef ekki heyrt um örugg tilfelli fuglaflensu í lunda eða öðrum svartfuglum þó að slíkt sé ekki hægt að útiloka. Sem stendur er töluvert að drepast af helsingjum og álftum í Skaftafellssýslunum. Fyrr í sumar var nokkuð um að súlur væru að veikjast og drepast af flensunni og sama á við um skúm.“ Einar segir að til að fá úr því skorið hvort um fugla- flensu sé að ræða þurfi að senda sýni til Matvælastofnunar/ MAST og líkt og í þessu sam- bandi væri líklega einfaldast að hafa samband við héraðs- dýralækninn. / PF Ekki orðið var við fugladauða af fuglaflensu á Norðurlandi vestra Kríur bætast á fuglaflensulista >> „Á sunnudaginn breyttist líf okkar til fram- búðar og verður aldrei aftur eins. Við syrgjum móður okkar og faðir okkar er alvarlega særður á spítala. Okkur hafa borist hlýjar kveðjur og stuðningur úr öllum landshornum. Fyrir það erum við þakklát,“ segir m.a. í yfirlýsingunni en undir hana rita Sandra, Hilmar, Pétur og Karen. Konan sem lést hét Eva Hrund Pétursdóttir en eiginmaður hennar, Kári Kárason, liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi og er líðan hans eftir atvikum og ljóst að áverkar hans eru alvarlegir. Árásarmaðurinn, Brynjar Þór Guðmundsson, lést á vettvangi árásarinnar en á Facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra segir að til rannsóknar sé meðal annars hvernig andlát hans bar að en talið sé víst að réttarkrufning muni leiða dánarorsök í ljós. „Sonur okkar og bróðir tók hræðilegar ákvarðanir sem urðu til þess að hann lét lífið, kunningjakona okkar einnig og eiginmaður hennar liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Við syrgjum bróður og son. Við getum ekki svarað fyrir gjörðir hans og hann ekki heldur,“ segir í yfirlýsingu sem foreldrar og systkini Brynjars sendu frá sér í gær en þar er beðið fyrir því að Kári nái heilsu og fjölskyldunni, vinum og öðr- um sem eiga um sárt að binda sendar innilegar samúðarkveðjur. /ÓAB og PF Háskólinn á Hólum Fær húsnæði FISK í Hjaltadal Gengið hefur verið frá samkomulagi á milli Háskólans á Hólum og FISK Seafood ehf. á Sauðárkróki um nýtt húsnæði fyrir Fiskeldis- og fiskalíffræðideild skólans. Í sameiginlegri tilkynningu fyrirtækisins og skólans segir að starfsemin hafi um langt árabil verið rekin með stuðningi FISK Seafood í húsnæði félagsins á Sauðárkróki en mun á næsta ári færast á tæplega tvö þúsund fermetra í nágrenni skólans í Hjaltadal. Húsnæðið sem var áður í eigu FISK Seafood hefur nú verið gefið skólanum ásamt myndarlegum fjárstyrk til þess að flytja búnað deildarinnar og koma honum fyrir í nýjum húsakynnum. „Með þessu undirstrikar FISK Seafood vilja sinn til þess að styðja áfram við bakið á þeirri mikilvægu starfsemi sem háskólinn starfrækir á sviði rannsókna og kennslu,“ segir í tilkynningunni. 2 31/2022

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.