Feykir


Feykir - 24.08.2022, Blaðsíða 6

Feykir - 24.08.2022, Blaðsíða 6
Byggðasafn Skagfirðinga hefur á undanförnum árum verið í samstarfi við Vísindasjóð Bandaríkjanna með verkefni dr. Kathryn A. Catlin sem snýr að fornleifaskráningu víðsvegar um Hegranes til að rannsaka alla þá smærri staði sem nefndir eru í Jarðabók Árna Magnússonar og í Byggðasögu Skagafjarðar eftir Hjalta Pálsson. Verkefnið er styrkt af Vísinda- sjóði Bandaríkjanna og er unnið í samstarfi við Byggða- safn Skagfirðinga. Meðstjórn- andi verkefnisins er dr. Douglas Bolender frá Háskólanum í Massachusetts Boston. Aðrir sem koma að verkefninu eru dr. Grace Cesario (Háskóli Ís- lands), dr. Karen Milek (Dur- ham University), Melissa Ritchey (Washington Univers- ity í St. Louis), Lísabet Guð- mundsdóttir (FSÍ) og nokkrir nemendur frá Jacksonville State University og Memorial Uni- versity of Newfoundland. Þegar Feykir spurði Dr. Catlin út í verkefnið sagði hún að á flestum þessum stöðum væru búfjárinnviðir, oftast einn eða fleiri stekkir frá 19. öld eða fyrr, ofan á litlum hól. Með því að taka jarðvegskjarnasýni og 1x1 metra könnunarskurði komst hún að því að á nær öllum þessum stöðum væru öskuhaugar frá því seint á 9. öld eða snemma á 10. öld. Kotið (á Hellulandi) var með þeim minnstu og elstu sem fannst. Sýni frá neðstu lögum öskuhaugsins gaf til kynna að um var að ræða mannvistar- leifar frá því um 880. Þar fyrir ofan fundust einnig dýrabein og mikið magn af sjávar- dýrabeinum (úr fuglum, fisk- um og spendýrum, þ.m.t. úr hvölum og höfrungum). Flest fiskbeinin voru úr höfðinu sem bendir til þess að fólkið hafi komið að vinnslu og þurrkun á fiski sem borðaður var annars staðar. Það virðist hafa sinnt flestum þeim verkefnum sem búast mætti við að hafi verið unnin á sveitabæ, auk sér- hæfðari starfsemi sem venju- lega sést á veiðistöðvum eða seljum, en staðurinn er of lítill til þess að ætla megi að þar hafi verið farsæll búskapur og Gersemar úr öskuhaugum Uppgröftur í fullum gangi í Hegranesi. MYNDIR AÐSENDAR Fornleifar í Skagafirði ekkert benti til þess að stað- urinn væri virkur tímabundið eða árstíðabundið, líkt og í seljabúskap. Því verkefni lauk án þess að svör fengjust við mörgum spurningum um hvað nákvæmlega þessir litlu staðir væru og hvernig þeir pössuðu inn í byggðamynstur land- námsins. Mjög lítill bústaður er ekki það sem við gerum almennt ráð fyrir að finna sem hluta af landnámi – flestir fyrstu staðir eru stórbýli með stórum skála, þannig að tilvist svo margra smásvæða sem eru tiltölulega fjarlægir stórbýlum er að breyta því hvernig hugsað er um landnám Íslands. Til að byrja að svara þessum spurn- ingum þurfti að finna íbúðarhúsið Þegar Feykir spurði um fram- vindu verkefnisins sagði dr. Catlin: „Þetta verkefni er að byrja að svara spurningum á borð við; Af hverju bjó fólk þarna úti svo snemma í landnámssögunni? Var þetta fámennur hópur sjálfstæðra bænda sem gafst upp eftir fá ár? Voru þetta nýkomnir land- námsmenn sem biðu þar til betra býli bauðst annars staðar í Skagafirði? Var þetta heimilis- fólkið á nærliggjandi stórbýli eins og á Hellulandi sem nýtti auðlindir á stóru landsvæði eins og þjónar Skallagríms í Egils sögu, eða var það kannski eitthvað í líkingu við einföld sel þegar allt kom til alls? Til að byrja að svara þessum spurn- ingum þurfti að finna íbúðar- húsið sem var nálægt ösku- haugnum. Og það tókst! Undir stekkn- um í Kotinu var afhjúpað það sem virðist vera mjög lítill skáli frá 9. eða 10. öld. Innri málin virðast aðeins vera um 5x2 metrar, sem er pínulítið! Auð- vitað er mögulegt að það sem grafið var upp á þessu ári sé aðeins eitt herbergi sem fylgir stærri byggingu. Að finna út úr því er eitt af markmiðum næsta árs. Í ár voru veggirnir aðeins afhjúpaðir og svo huldir aftur til að verja svæðið gegn vetrarveðrinu. Árið 2023 verð- ur húsið grafið alveg upp og stærra svæði opnað til að sjá hvort það haldi áfram til norðurs eða suðurs. Einnig er ætlunin að grafa upp meira af öskuhaugnum og skera úr um hvort mögulega hafi verið fleiri en ein bygging á staðnum. Karen Milek í Durham og einn af nemendum hennar munu gera örmyndagreiningu til að komast að því hvort byggingin og öskuhaugurinn hafi verið notuð árstíðabundið og þá verður jarðefnafræði nýtt til að læra meira um virkni víðsvegar um svæðið. Einnig er ætlunin að taka fleiri sýni úr jarðvegi og grafa smávegis upp á tveimur öðrum stöðum, Þrælagerði í Keflavík og Grænagerði á Huldulandi, til að kynna sér hvort bústaðirnir á þessum stöðum séu svipaðir því sem við sjáum við Kotið.“ Enn mörgum spurningum ósvarað um þessa staði og mikið verk óunnið Teymi dr. Catlin hefur einnig fundið mjög áhugaverða gripi í haugnum. Árið 2016 fundu þau beinpinna með útskurði á dýri eða drekahaus og í ár fundu þau annan beinpinna, þennan með „t“ eða krossformi efst. Fundu þau einnig svarta stein- perlu sem á þessum tíma taldist mjög fínt skraut. Þegar Feykir spurði um hvað væri framundan sagði dr. Catlin að það væri enn mörgum spurningum ósvarað um þessa staði og mikið verk óunnið, sem væntanlega yrði unnið næsta sumar. Hún sagði einnig að fram- vinduskýrsla yrði gefin út í lok árs eða byrjun þess næsta. Spennandi verður að fylgjast með á næsta ári hvað þetta teymi afhjúpar og hvort það varpi frekara ljósi á búsetu- mynstur á svæðinu. Beinprjónn sem fannst í sumar. Útveggir grafnir upp. UMFJÖLLUN Ingólfur Örn Friðriksson 6 31/2022

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.