Feykir - 14.09.2022, Blaðsíða 1
34
TBL
14. september 2022
42. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 4
BLS. 8–9
BLS. 6-7
Spjallað við Örn Ragnarsson
framkvæmdastjóra lækninga
við HSN
Stærsta ógn heilbrigð-
iskerfisins í dreifbýlí
er mönnunarvandinn
Steinn Kárason gefur út bók
Glaðlega leikur
skugginn í sólskininu
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
2
TBL
19. júní 2019
39. árga
l lað
tr
BLS. 3
BLS. 4
Marín Lind Ágústsdóttir
körfuboltakona er íþrótta-
garpur Feykis að þessu sinni
Fullt framundan
BLS. 4
1238: The Battle of Iceland
tekur til starfa á Sauðárkróki
Lilja opn ði
sýninguna með
sverðshöggi
Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Stórprent í toppgæðum
Við prentum strigamyndir, auglýsingaskilti og
plaggöt í hinum ýmsu stærðum og gerðum
BORGARTEIGI 5 550 SAUÐÁRKRÓKUR & 571 5455 / 899 5227 / 691 6227
Smurþjónusta – Dekkjaþjónusta – Bremsuviðgerðir
Pústviðgerðir – Almenn bifreiðaþjónusta
BORGARFLÖT 19 550 SA ÐÁRKRÓKUR & 8 9 5 27
Meirapróf - Vinnuvélanámskeið
Ökunám - Endurmenntun
Birgir Örn Hreinsson
Ökukennari
S: 892-1790
bigh@simnet.is
www.facebook.com/velavalehf
www.facebook.com/velavalehf
& 453 88 88 velaval@velaval.is
HEIMILISMATUR Í HÁDEGINU
Heitur matur kr. 1.490 | Súpa og brauð kr. 1.100
www.ommukaffi.is
Heimilisiðnaðarsafnið
á Blönduósi
Sýning um íslensku
lopapeysuna á
safninu í sumarSjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram
í þrítugasta sinn á laugardaginn
var, þann 15. júní, í blíðskaparveðri
um allt land. Frábær þátttaka var
í hlaupinu og gera má ráð fyrir að
um 10.000 konur hafi tekið þátt
á yfir 80 stöðum um allt land og
víða erlendis, að því er fram kemur
í fréttatilkynningu frá Íþrótta- og
Ólympíusambandi Íslands.
Íbúar á Norðurlandi vestra létu sitt ekki
eftir liggja. Á laugardaginn var hlaupið
á Borðeyri, Blönduósi, Sauðárkróki,
Hólum og Hofsósi eftir því sem
Feykir kemst næst. Á Hvammstanga
var tekið forskot og ræst til hlaups
á miðvikudag en í Fljótum verður
hlaupið frá Sólgarðaskóla nk. föstudag
klukkan 10:30. Íbúar Dvalarheimilisins
á Sauðárkróki og notendur Dagdvalar
tóku nú þátt í hlaupinu í fyrsta sinn og
eftir góða upphitun fór myndarlegur
hópur í gönguferð, hver við sitt hæfi,
og fengu þátttakendur að launum
verðlaunapening úr hendi þeirra Árna
Bjarnasonar á Uppsölum og Halldórs
Hafstað í Útvík. /FE
Kvennahlaupið í þrítugasta sinn
Góð þátttaka í hlaupinu
Algengt er að ættliðir fari saman í Kvennahlaupið. Þessar þrjár konur komu samtímis í mark á Hofsósi. Ester Eiríksdóttir, lengst t.h. var elsti þátttakandinn þar, 75 ára gömul, en
hún hljóp léttilega í markið ásamt nöfnu sinni og sonardóttur, Ester Maríu Eiríksdóttur, og tengdadóttur, Kristínu Bjarnadóttur. MYNDIR: FE
Góð þátttaka var hjá íbúum Dvalarheimilisins og notendum Dagdvalar.
S roptimistaklúbbur
Skagafjarðar
Umhverfisviðurkenn-
ingar í Skagafirði
31
TBL
19. ágúst 2020
40. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS . 6–7
BLS. 4
Olíutankarnir á Króknum
teknir niður
Nýttir se meltu-
geymar á Vestfjörðum
BLS. 10
Hrafnhildur Viðars hefur
opnað sérhæfða naglasnyrti-
tofu á Sauðárkróki
Game of Nails
Hera Birgisdóttir læknir segir
frá degi í lífi brottflutts
aknar ísle ska
viðhorfsins
„þetta reddast“
Bjó um alhliða lag ahreinsun á sérútbúnum bíl
Losum stíflur úr salernum, niðurföllum, frárennslislögnum, regnvatns- og skólplögnum.
Hreinsum trjárætur úr lögnum. Myndum lagnir sé þess óskað og og afhendum verkkaupa
á minnislykil. Sjáum um tæmingar á rotþróm. Bíll okkar er einnig útbúinn til hreinsunar
á sandföngum, fitu- og olíugildrum.
Holræsa- og stífluþjónusta
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 29 8 • Oddagata 18 • 545 Skagaströnd • terra.is • nordvesturland@terra.is
i j st íli i !
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
eirapróf - Vinnuvélaná skeið
kuná - Endur enntun
irgir rn reinsson
kukennari
S: 892-1790
bigh si net.isHÁEYRI 1 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 455 4400
www.facebook.com/velavalehf
www.facebook.com/velavalehf
& 453 88 88 velaval@velaval.is
Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Stórprent í toppg ðu
Við prentum strigamyndir, auglýsingaskilti og
plaggöt í hinum ýmsu stærðum og gerðum
Veðrið hefur leikið við landsmenn
undanfarna daga með hita upp á
20 stig og jafnvel meira og að
sjálfsögðu stillu norðanlands sem
er ávísun á næturdögg. Á mánu-
dagsmorgun mátti sjá hvernig
áfallið baðaði umhverfið a.m.k. í
og við Sauðárkrók. Á Borgarsand-
inum höfðu maurköngulær
spunnið breiðu af fallegum vefjum
svokölluðum vetrarkvíða sem
Ingólfur Sveinsson, sá er tók
meðfylgjandi mynd, segir
sjaldgæfa sjón.
Matthías Alfreðsson, skordýrafræð-
ingur hjá NÍ segir vetrarkvíða vera
náttúrufyrirbrigði sem voðköngulær
eru þekktar fyrir að spinna og leggist
eins og silki yfir gróður. Blökkuló
(Erigone arctica) er dæmi um tegund
sem skilur eftir sig slíka þræði.
Á vef Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands kemur fram að maurkönguló sé
tiltölulega sjaldgæf en fundin í öllum
landshlutum, e.t.v. algengari um
norðanvert landið en á landinu
sunnanverðu, á miðhálendinu í
Fróðárdal við Hvítárvatn.
Maurkönguló finnst í runnum og
trjám, einnig í klettum og skriðum,
ekki eins hænd að vatni og frænka
hennar sveipköngulóin (Larinioides
cornutus). Vefurinn er hjóllaga,
tengdur milli greina inni í runnum eða
utan í þeim eða á milli steina. Hér á
landi hafa maurköngulær fundist
kynþroska í júlí og ágúst.
Almennt
Maurkönguló er lítt áberandi þar sem
lítið er af henni og hún dylst vel í
kjörlendi sínu. Auk þess er vefurinn
fíngerður og óáberandi, varla nema um
hálfur metri í þvermál ef aðstæður
leyfa.
Maurkönguló er mjög lík sveip-
könguló, þó heldur minni, og er
stundum vissara að aðgæta kynfæri til
að aðgreina þessar frænkur með vissu.
Oftast er afturbolur þó dekkri á
maurkönguló og ekki ljós rönd aftur
eftir honum miðjum. Miðbakið er að
mestu dökkt en ljóst þverbelti sker
dökka flekkinn í tvo hluta rétt framan
miðju á kvendýrum. Þetta getur þó
verið breytilegt. Neðan á afturbol eru
tveir svigalaga ljósir blettir eins og á
sveipkönguló, og fætur eru sömuleiðis
rauðleitir eða rauðgulir með dökkum
beltum.
Í heiminum eru þekktar um 44.000
tegundir köngulóa, á Íslandi 91 tegund
auk slæðinga. /PF
Köngulóin sveipar melgresið silki
Áfall næturinnar í sólargeislum árdagsins
Þessa skemmtilegu mynd tók Ingólfur Sveinsson sl. mánudagsmorgun af maurkönguló sem hafði strengt vef milli melgresisstráa. Sagði hann vefina hafa
verið fjölmarga á svæðinu og sagði slíka breiðu vefja sem baðaðir eru næturdögginni kallaða vetrarkvíða. Sáust þeir vel í morgunsárinu áður en döggin hvarf
með hækkandi sól. MYND: INGÓLFUR SVEINSSON
.f . / l l f
l l l l.i
VÉLAVAL
VARMAHLÍÐ
Veður setur strik í smalamennsku
Ýmist lamandi hiti eða svarta þoka
Einmuna blíða var á heiðum Norðanlands í síðustu viku svo rólega gekk að koma sauðfénu til byggða. Hér gengur Kristján Víðir Kristjánsson á eftir þremur kindum en
hann segir féð hafa verið latrækt í hitanum. En í Stafnsrétt komust þær um síðir. MYND: GIULIA WEITZ
Um helgina fóru göngur og réttir víðast
hvar fram á landinu og fara æði
misjafnar fréttir af gangi máli
sérstaklega á Norðurlandi. Sums staðar
gekk allt eftir áætlunum en annars
staðar hafði veður mikil áhrif og tafði
framgöngu þeirra, þá einkum þoka sem
umlék fjöll og dali um helgina eða sól
og einmunablíða fyrir helgi.
Þannig háttaði til að vegna „óvið-
ráðanlegra aðstæðna“, eins og tilkynnt
var á heimasíðu Húnabyggðar, seinkaði
réttum í Auðkúlurétt sl. laugardag. Að
sögn Helga Páls Gíslasonar, fjall-
skilastjóra á Höllustöðum, var seink-
unin tilkomin vegna of mikillar blíðu.
„Þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag
vorum við í 20 stiga hita og logni nánast
og þetta var farið að snúast um það að
ná hvíld á skepnur og menn. Þær voru
uppgefnar og þetta gekk hægt,“ sagði
Helgi þegar Feykir sló á þráðinn til
hans. Hann segir þó að honum hafi ekki
fundist ganga illa, það hafi bara ekki
verið nógu margir birtutímar í deg-
inum.
„Þetta var fyrst og fremst þessi
gríðarlegi hiti í þetta marga daga.
Maður hefur alveg fengið heitan dag en
þetta snerist um þetta orðið. Við
komum degi seinna, hvíldum féð eina
nótt en vorum komin um hádegi
daginn eftir niður í rétt.“
Á Auðkúluheiði er lagt af stað með
smalahross á sunnudagsmorgni, komið
í Hveravelli kvöldið eftir og byrjað að
smala á þriðjudegi. Helgi segir að komið
sé með safnið niður í rétt á föstu-
dagskvöldi við ljósaskiptin en nú hafi
verið brugðið á það ráð að hvíla féð yfir
nótt. „Aldrei lent í þessu áður. Ég ætla
nú ekki að bölva sumrinu en ég kann á
hitt,“ segir hann og á þá við að ganga í
kaldara veðri. „Þetta er alveg nýtt fyrir
manni, heiðskýrt og glampandi sól.
Bara smá gola hefði bjargað miklu fyrir
okkur en henni var bara ekki til að
dreifa á heiðinni hjá okkur núna.“
Þetta kemur allt saman
Þær göngur sem taka bara einn dag fóru
flestar fram á laugardeginum og
snemma leit út fyrir að smalar fengju
ágætis veður og skyggni til smölunar.
En fljótlega eftir að flestir voru komnir
á sínar göngur og farnir að hóa lædd-
ist þoka um dali og fjöll og skyggði út-
sýnið svo mjög að hvarvetna smalaðist
illa eða hreinlega að hætt var við smala-
mennsku þann daginn.
„Það var svo tilgangslaust að fara.
Það var svartaþoka,“ segir Steinn Rögn-
valdsson á Hrauni, gangnastjóri á Út-
Skaga, en þar var göngum frestað fram
á mánudag. „Við fórum á föstudag-
inn innst á svæðið, Sandfellið og
Hafragilsfjall og smöluðum fram eins
og við höfum alltaf gert fyrir Hún-
vetninga og fengum fínt veður þá en
svo var dimmt á laugardeginum.
Bjarnarfellið er eftir en ég held að það
verði farið í það á morgun, [í dag
miðvikudag] ef það verður bjart. Þetta
kemur allt saman en hún er búin að
tefja okkur þokan, það er ekkert við því
að gera,“ segir Steinn. /PF