Feykir


Feykir - 14.09.2022, Blaðsíða 12

Feykir - 14.09.2022, Blaðsíða 12
Í gagnaverinu Borealis Data Center við Blönduós er unnið að byggingu áttunda hússins undir tölvur með mjög öfluga reiknigetu. Í framtíðinni er stefnt að því að hýsa ofurtölvur sem gætu fundið lausnir á stórum vandamálum, t.d. umhverfisvá. RÚV sagði frá í síðustu viku. Rætt var við Björn Brynjólfsson forstjóra Borealis Data Center og nefndi hann dæmi um viðskipta- vini fyrirtækisins s.s. upplýsinga- fyrirtæki, banka, rannsakendur, bílaframleiðendur og þau sem vinna með gögn. Hann sagði að undirbúningur væri hafinn að innleiðingu ákveðinna ofurtölva í gagnaverið. „Það eru tölvur sem Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 34 TBL 14. september 2022 42. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Huldufé í Hvammi Kringum og eftir árið 1800 bjó í Hvammi í Fljótum bóndi sem Þorvaldur hét og var Gíslason. Eitt sinn á búskaparárum hans hvarf honum ein ær grákollótt um brundtíðina og vantaði hana í hálfan mánuð. Kom hún þá sjálfkrafa í féð aftur og varð aldrei blæsma þar um veturinn. Eitt sinn um sauðburðartímann um vorið gekk Þorvaldur þar ofan fyrir völlinn að hyggja að kindum. Var þá ær þessi þar hjá Geirshúsinu, sem kallað er, að bera og var lambið hennar alla vega litt, blátt, grænt, rautt og gult og með fleiri litum. Þorvaldi þókti þetta undarlegt og stóð yfir ánni meðan hún var að bera. Síðan gekk hann heim að fá kvenmann til að mjólka ána, en þegar þau komu ofan eftir var lambið horfið. Gekk Þorvaldur þá úr öllum skugga um það sem hann hafði grunað að ærin hefði verið hjá huldufólksfé um veturinn þegar hún hvarf, og fengið við hulduhrút. /PF Þjóðsögur Jóns Árnasonar Álfar Blönduós Ofurtölva í gagnaverinu Nýtt hús rís á gagnaverslóðinni. MYND: SKJÁSKOT AF RUV.IS Morgunblaðið greindi frá því í síðustu viku að Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra væri búinn að ákveða hvar sýslumaður Íslands verði staðsettur eftir boðaða sameiningu allra sýslumannsembætta landsins undir eina stjórn. Er ákvörðun ráðherra m.a. byggð á greiningu Byggðastofnunar. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra kynnti í sumar drög að frumvarpi um sameiningu sýslumannsembætt- anna níu undir eina stjórn, og segir í frétt Mbl.is að hann hafi strax lýst yfir að sýslumaður Íslands yrði staðsettur á landsbyggðinni. „Jafnframt var Byggðastofnun falið að leggja mat á staðina og svæðin. Ráðherra hefur nú sent erindi á þing- flokka stjórnarflokkanna um niðurstöðu sína. Hann staðfesti við Morgunblaðið að staðurinn væri Húsavík.“ / PF Sýslumaður Íslands Embættið verði á Húsavík geta reiknað mjög mikið. Þær eru með mikinn, við köllum það orkuþéttleika, þannig að þær reikna mikið á hvern fermetra sem þær standa á og eru til þess gerðar að reikna erfiðustu og flóknustu vandamálin sem við stöndum frammi fyrir í dag,“ sagði Björn. Fram kemur í umfjöllun Ríkis- sjónvarpsins að í dag starfi 20 manns í gagnaverinu og þar af um helmingur á Blönduósi. /Huni.is HÚNABYGGÐ Leikskóli Húnabyggðar óskar eftir að ráða leikskólakennara, leik- skólaliða eða starfsmenn með aðra menntun eða reynslu sem nýtist í starfið á starfsstöð leikskólans á Blönduósi. Í boði er spennandi og skemmtilegt starf með börnum og er um að ræða 100% stöður sem og hlutastörf, til framtíðar. Við leikskólann starfar reynslumikill hópur kennara og starfsmanna sem leggur áherslu á að gera góðan leikskóla betri alla daga. Menntunar og hæfniskröfur: • Leikskólakennaranám eða annað kennaranám sem veitir leyfisbréf til kennslu eða annarri háskólamenntun (BS, BA eða B.Ed.) sem nýtist í starfi. • Fáist ekki starfsmenn með kennararéttindi er heimilt að ráða leikskólaliða eða leiðbeinendur. • Starfsmaður geti sýnt frumkvæði, sjálfstæði og hafa faglegan metnað fyrir starfi sínu. • Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti. • Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi, stundvísi og áreiðanleika í starfi. • Góð íslenskukunnátta • Hreint sakavottorð skv. lögum um leikskóla. Leikskóli Húnabyggðar starfar í tveimur starfstöðvum á Blönduósi (Barnabær) og einni á Húnavöllum (Vallaból). Leikskólinn er 6 deilda með börn á aldrinum 12 mánaða til 5 ára, alls um 80 börn. ATH. Samþykktar hafa verið aðgerðir til að liðka fyrir ráðningum starfsfólks á leikskóla og verða þær kynntar á næstu dögum. Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2022. Sótt er um starfið á heimasíðu Barnabæjar https://barnabaer.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga. Allar nánari upplýsingar gefur Þórunn Ragnarsdóttir leikskólastjóri og Kristín Birgisdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 455-4740 eða með tölvupósti barnabaer@blonduos.is Viltu vinna skemmtilegasta starf í heimi? CMYK% Cyan = 100 / Magenta = 75 / Yellow = 2 / Black = 18 Cyan = 45 / Magenta = 14 / Yellow = 0 / Black = 0 GRÁSKALI Black = 40% Black = 100% PANTONE PANTONE 278 C PANTONE 287 C Logo / erki BJÖRGVIN SIGURÐSSON | GRAPHIC DESIGNER FÍT ÁSVEGI 17 | 104 REYKJAVÍK | ICELAND T: +354 588 3436 | M: +354 663 0677 | E: 2b@internet.is Bæjarskrifstofa Blönduósbæjar Hnjúkabyggð 33 540 Blönduós Sími: 455 4700 blonduos.is Húsavík. MYND AF VISITHUSAVIK.COM

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.