Feykir


Feykir - 14.09.2022, Blaðsíða 2

Feykir - 14.09.2022, Blaðsíða 2
 „Var nokkuð synningur í Barðinu?“ spyr ein persóna aðra í grínatriði Fóstbræðra sem sýnt var fyrir margt löngu. Sá sem spurður er kannast ekki við orðið og hikar: „Synningur? Kannski!“ „En það hefur verið skúmslegt þar?“ spyr annar. Viðmælandinn er engu nær um hvað er verið að spyrja en þarna var að sjálfsögðu verið að inna eftir veðri og veður- útliti. Ég rakst á gamalt blogg Sigurðar nokkurs Sigurðarsonar þar sem hann veltir fyrir sér orðaforða margra þeirra sem starfa í fjölmiðlum og telur reyndar ansi rýran og tekur dæmi af ungum veðurfræðingi sem sagði að á landinu væri vindasamt. „Þeir eldri hefðu líklega sagt að víða væri hvasst enda fjölmörg orð og orðasambönd til sem lýsa veðri, ekki síst „vindasemi“. Raunar eru til á annað hundrað orð sem lýsa vindi,“ skrifar hann og birtir þau. Reyndar eru ekki synningur né skúmslegt í þeirri fróðlegu upptalningu. Útnyrðing og útsynning er aftur á móti hægt að finna á vef Veðurstofunnar. Ég myndi líka standa á gati ef ég yrði spurður um hvort það væri útsynningur í barðinu. Góðar stundir! Páll Friðriksson, ritstjóri LEIÐARI Synningur í barðinu Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 649 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 795 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. AFLATÖLUR | Dagana 4. – 10. september á Norðurlandi vestra Landað 52 sinnum í síðustu viku SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SAUÐÁRKRÓKUR Drangey SK 2 Botnvarpa 149.923 Greifinn SK 19 Handfæri 1.644 Hafborg SK 54 Þorskfisknet 6.813 Hafey SK 10 Handfæri 3.674 Helga María ER 1 Botnvarpa 161.463 Kristín SK 77 Handfæri 1.736 Lundey SK 3 Þorskfisknet 18.551 Málmey SK 1 Botnvarpa 166.372 Már SK 90 Handfæri 2.302 Viðey ER 50 Botnvarpa 129.577 Samtals á Sauðárkróki 642.055 SKAGASTRÖND Arndís HU 42 Handfæri 1.248 Daðey GK 777 Lína 58.784 Dúddi Gísla GK 48 Lína 7.101 Elfa HU 191 Handfæri 2.808 Gulltoppur BA 84 Landbeitt lína 23.358 Hrund HU 15 Handfæri 3.711 Hulda GK 17 Línutrekt 23.198 Jóhanna Gíslad. GK 357 Botnvarpa 71.201 Hópsnes GK 77 Landbeitt lína 22.862 Óli á Stað GK 99 Línutrekt 16.784 Páll Jónsson GK 7 Lína 66.310 Sigurfari HU 9 Handfæri 2.442 Sæfari HU 212 Landbeitt lína 2.401 Viktor Sig HU 66 Handfæri 4.895 Samtals á Skagaströnd 307.103 Á Króknum lönduðu tíu bátar/togarar alls 642.055 kg í alls 20 löndunum. Aflahæst var Málmey SK 1 með rúm 166 tonn. Á vef fisk.is segir að uppistaða aflans hafi verið þorskur og ufsi og segir Hermann Einarsson, skipstjóri, að þeir hafi verið fjóra sólarhringa á veiðum, þrjá á Þverálshorni og einn á Horni. Veiðin var góð allan tímann og gott veður. Aflalægsta báturinn var að þessu sinni Greifinn SK 19 sem var við veiðar með handfæri og landaði 1644 kg. Á Skagaströnd voru 14 bátar við veiðar og var heildarafli þeirra alls 307.103 kg sem komu að landi í 32 löndunum. Aflahæstur var línubáturinn Páll Jónsson GK 7 með 66.310 kg. Enginn bátur landaði á Hofsósi né Hvamms- tanga og var því alls landað 949.158 kg á Norðurlandi vestra í síðustu viku í 52 löndun- um. /SG Vatnsnesvegur Erindi umboðsmanns barna tekið til umfjöllunar Í kjölfar ábendinga um ástand Vatnsnesvegar, sem þjónar meðal annars skólaakstri, sendi Salvör Nordal, umboðsmaður barna, þann 24. ágúst, bréf til Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra, þar sem meðal annars var bent á mikilvægi þess að stjórnvöld forgangsraði fjármagni til verkefna sem varða réttindi og hagsmuni barna með beinum hætti. Er ráðherra hvattur til að „bregðast við því ófremdar- ástandi sem myndast hefur á Vatnsnesvegi og standa við fyrirheit um uppbyggingu öruggra og barnvænna samgönguinnviða um land allt. Eins og margoft hefur komið fram í fjölmiðlum landsins hefur bágt ástand Vatnsnesvegar valdið vanlíðan hjá nemendum grunnskóla héraðsins sem um hann fara nær daglega með skólabíl. Í bréfi umboðsmanns má lesa að brýnt sé að hafa í huga að skólaakstur þjóni þeim tilgangi að tryggja öllum börnum jafnan aðgang að menntun, óháð búsetu, en sveitarfélög eiga að skipuleggja skólaakstur í samræmi við þarfir nemenda með hliðsjón af öryggi þeirra, velferð og umhverfisaðstæðum. „Til þess að sveitarfélög geti uppfyllt þær skyldur verða vegir þar sem skólaakstur fer fram að vera í viðunandi ásigkomulagi, með tilliti til Vatnsnesvegur á slæmum degi. MYND: GRUNNSKÓLI HÚNAÞINGS VESTRA öryggis og líðan barna,“ segir meðal annars í bréfinu. Við eftirgrennslan um við- brögð við bréfinu til innviða- ráðherra segir Salvör að svar hafi borist þann 7. sept. og þar greint frá því að erindið verði tekið til umfjöllunar við undir- búning tillögu að nýrri sam- gönguáætlun, m.a. á vettvangi samgönguráðs. Vegabætur hafnar „Vandamálið er fyrst og fremst alltof mikil umferð ferðamanna, sérstaklega í svona vætutíð eins og var í sumar,“ segir Birgir Þór Þorbjörnsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Hvamms- tanga, um ástand vegarins. Hann segir að ekki hafi orðið mikil breyting á þjónustu af hálfu Vegagerðarinnar þar sem haldið sé áfram að gera eins og hægt er til að viðhalda vegin- um. „Við berum efni í veginn og heflum þegar þörf er á og færi gefst, þó er ekki gott að eiga við það þegar rignir eins og gert hefur í sumar,“ segir hann. Mjög hefur verið kallað eftir vegabótum á Vatnsnesi undan- farin ár og vakti það því mikla athygli snemma árs að ekkert tilboð barst í vegabætur þar sem byggja átti 17 metra langa brú yfir Vesturhópshólaá og nýbyggingu vegar á um 1,0 kílómetra kafla og endurbygg- ingu á um 1,2 km löngum kafla milli Vesturhópshóla og Þor- finnsstaða. Nú sér fyrir endann á þeirri bið þar sem ákveðið var að taka brúarsmíðina úr útboð- inu og bjóða vegaframkvæmd- ina út sér. „Boðið var út aftur í vor og bárust þrjú tilboð. Búið er að semja og verktakinn er byrjaður á vegframkvæmdunum. Brúar- flokkurinn sem gerður er út héðan frá Hvammstanga sér um brúarsmíðina og eru þeir að undirbúa sig fyrir það, hefjast handa væntanlega á næstu dögum,“ sagði Birgir Þór er Feykir hafði samband fyrir helgi. / PF Höfuðdagur 29. ágúst bar þó nokkuð á góma á fundi Veðurklúbbs Dalbæjar, sem að þessu sinni var haldinn 6. september sl., en hann mun hafa eitthvað að segja um veðurfar komandi vikna. En eins og segir á Vísindavefnum: „Höfuðdagur- inn er samkvæmt gildandi tímatali 29. ágúst. Þann dag á Heródes konungur að hafa látið eftir konu sinni að Jóhannes skírari skyldi hálshöggvinn. Vitað er til að minningardagur um aftökuna hafi þekkst þegar á 5. öld bæði í Samaríu og Gallíu. Það var hins vegar páfastóll sem ákvað dagsetn- inguna 29. ágúst á 7. öld og nefndi daginn Decollatio Johannis sem merkir „afhöfðun Jóhannesar“. Latneska nafn- orðið decollatio er leitt af sögn- inni decollare „hálshöggva“, en collum á latínu er notað um háls á manni. Sú þjóðtrú hefur lifað lengi að veður breytist á höfuðdag og haldist þannig næstu þrjár vikur. Árið 1700 var tímatali breytt. Þá fluttist „gamli“ höfuðdagurinn yfir á 9. september og trúðu ýmsir á veðrabreytingar þann dag. Nú er dagurinn ávallt tengdur 29. ágúst. Trúnni á höfuðdaginn fylgdi bæði von og ótti. Mikilvægt þótti að hafa lokið heyskap fyrir höfuðdag ef tíð var góð en einnig lifðu margir í þeirri von að úr rættist við höfuðdag ef sumarið hafði verið vætusamt.“ Og þar sem síðastliðinn höfuðdagur var nokkuð mildur og góður hér fyrir norðan þá eru spámenn Dalbæjar bjartsýnir á að september verði áfram mildur og góður. „Um aðra landshluta þorum við ekki að spá að þessu sinni,“ segir í skeyti þeirra til fjölmiðla. Í ágúst slá menn engið og börnin tína ber. Í september fer söngfugl og sumarljóminn þver. /PF Veðurklúbbur Dalbæjar September áfram góður 2 34/2022

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.