Harmonikublaðið - 15.12.2019, Qupperneq 3

Harmonikublaðið - 15.12.2019, Qupperneq 3
Harmonikublaðið ISSN 1670-200X Ábyrgðarmaðiin Friðjón Hallgrímsson Espigerði 2, 108 Reykjavík Sími 696 6422, fridjonoggudny@internet. is Prentvinnsla: Héraðsprent, Egilsstöðum, www.heradsprent.is Prentgripur Forsíða: Eorsíðumyndin var tekin af fulltrúum á aðalfundi SIHU á Egilsstöðum 28. september s/. Meðal efnis: - Af Héraðsbúum - Tíbrá í Salnum - Skemmtiferð Harmonikufélags Vestfjarða - Fréttir frá Harmonikufélagi Þingeyinga - Viðtal við Pétur Bjarnason - Aðalfundur SÍHU 2019 - Haustið 2019 hjá FHUR - Minning - Haraldur Reynisson - Lag blaðsins eftír Guðmund Ola Sigurgeirsson - Heimsókn að Westan - Minning - Olafur Th. Olafsson - Smápistill úr Dölunum - Jólakveðjur - Frostpinnar að vestan Auglýsingaverð: Baks/ða 1 / / síða kr. 28.000 1/2 síða kr. 18.000 Innsíður 1/1síða kr. 22.500 1/2 síða kr. 14.000 1/4 síða kr. 8.500 1/8 síða kr. 5.500 Smáaugjtjsingar kr. 3.500 Skilafrestur efnis fyrir næsta blað er 25. apríl 2020. Ritstjóraspjall Þegar skrifa á pistil í blað um harmoniku getur manni vafist tunga um tönn. Um hvað á maður að skrifa. Það að halda úti blaði um eitt ákveðið hljóðfæri er í sjálfu sér dálítið undarleg hugmynd. Þetta blað er málgagn og hlutverk þess er að miðla fróðleik og upplýsingum um harmonikufélögin í landinu. Það er ekki alveg sjálfgefið að þetta liggi á lausu. Harmonikulífið er eins og annað líf, gengur í bylgjum, upp og niður. Þegar þeir félagar Hilmar Hjartarson og Þorsteinn Þorsteinsson ákváðu árið 1986 að hefja útgáfu á harmonikublaði var það fyrir áeggjan sænska harmonikuleikarans góðkunna Lars Ek. Með þessu móti yrði auðveldara að tengja saman þau tólf harmonikufélög sem störfuðu á landinu. Þeir félagar stukku af stað fullir af ákafa og vonum. Og viti menn, þetta gekk! Það varð strax mikill áhugi á blaðinu og fjölmargir gerðust áskrifendur á fýrstu árunum. Þarna var kominn tengiliður sem fólk gat sameinast um og ritstjórarnir ótrúlega öflugir að afla efnis í blaðið. Hvorugur hafði komið að þess háttar áður, en af brennandi áhuga tókst þeim að gera blaðið áhugavert, með skemmtilegum greinum og viðtölum. A þessum tíma voru ritstjórarnir rétt skriðnir á fimmtugsaldurinn og eljan í samræmi við það. Eftir tíu ára frumkvöðlastarf fannst Þorsteini komið nóg og fimm árum síðar vorið 2001 var svo útgáfunni hætt en þá voru harmonikufélögin í landinu orðin 20. Voru nú góð ráð dýr. Eftir nokkrar vangaveltur innan stjórnar SIHU, þar sem möguleikinn á að kaupa blaðið af Hilmari var skoðaður, var ráðist í að gefa út nýtt blað. Þar með hófst nýr kafli í starfi SIHU. Fyrsta blaðið af þessu nýja málgagni harmonikuunnenda leit dagsins ljós í apríl 2002. Það hefur gengið á ýmsu við að afla efnis í blaðið. Nokkur félög hafa alla tíð verið mjög dugleg að segja frá starfmu og þar með gefið öðrum unnendum tækifæri að fylgjast með. Sérstaklega er ástæða til að nefna Þingeyinga, sem alla tíð hafa tíundað sitt skemmtilega starf í blaðinu. Ekki langt á eftir koma Eyfirðingar og Vestfirðingar. Dalamenn hafa yfirleitt séð ástæðu til að segja fréttir úr Dölum og sama á við Héraðsbúa og Reykvíkinga. Oft hafa borist góðar fréttir af Rangæingum. Af öðrum félögum er því miður lítið að frétta. Ekki er gott að segja hvað veldur fréttaskorti, en sá grunur læðist að manni að aldur sé farinn að segja til sín og fækkun í félögunum bætir ekki úr skák. í fréttum var þetta helst rr - : ~ b Stjórn S.I.H.U. nöfn, netföng, heimilisföng og símanúmer: Formaður: Filippía Sigurjónsdóttir 8208834@internet.is Hólatúni 16, 600 Akureyri S: 462 5534 / 820 8834 Varaformaður: Haraldur Konráðsson budarhoIl@simnet.is Sólbakka 15, 861 Hvolsvöllur S: 487-8578 / 893-4578 Ritari: Sigrún B. Halldórsdóttir sigrunogvilli@gmail.com Breiðabólstað, 371 Búðardalur. S: 434-1207/ 861-5998 Gjaldkeri: Anna Guðrún Vigfúsdóttir smarabr3@simnet.is Smárabraut 3, 540 Blönduós S:452 4266 / 862 4266 Meðstjórnandi: Pétur Bjarnason peturbjarna@internet.is Geitlandi 8, 108 Reykjavík S: 456-4684 / 892-0855 Varamaður: Sigurður Olafsson sandur2s@magnavik.is Sandi 2, 641 Húsavík S: 464-3539 / 847-5406 Varamaður: Sólveig Inga Friðriksdóttir bolstadarhlid2@gmail.com Bólstaðarhlíð 2, 541 Blönduós S: 452-7107/ 856-1187 Kt. SÍHU: 611103-4170 Næsti aðalfundur SÍHU verður haldinn að Hótel Laugarbakka í Miðfirði haustið 2020, í boði Nikkólínu og Félags harmononikuunnenda í Húnavatnssýslum. Flemming Viðar Valmundsson mun leika með Sinfóníuhljómsveit Islands í Hörpu fimmtudaginn 16. janúar nk. Þar leikur hann harmonikukonsert eftir Arne Nordheim. Flemming er einn af fjórum ungum einleikurum, sem koma fram með hljómsveitinni þetta kvöld. Jónas Ásgeir er með mörg járn í eldinum þessa dagana. Hann er að fara í meistaraprófið 11. desember þar sem hann mun leika ma. verk eftir Atla Ingólfsson og Þuríði Jónsdóttur. Þá er hann með geisladisk í smíðum þar sem eingöngu verða íslensk verk, ma. eftir Atla Heimi Sveinsson og Þorkel Sigurbjörnsson. Þá mun hann ásamt sellistanum Andrew Power, frumflytja verk eftir Aslaugu Rún Magnúsdóttur á Myrkum músikdögum í Reykjavík í lok janúar. Þær stöllur í Stormduo, Ásta Soffía Þorgeirsdóttir og Kristina Farstad Björdal munu koma fram á „Trekkspilltreff pa Savalen" um miðjan janúar. Þarna er um að ræða harmonikumót sem fram fer á glæsilegu fjallahóteli við vatnið Savalen í Noregi. I mars munu þær síðan frumflytja í Osló nýtt verk, „Traces og tradition", eftir Jo Asgeir Lie, sem hann samdi sérstaklega fyrir þær. Þær munu fylgja þessu eftir með tónleikaröð um Noreg. Homfirðingar stefna að þátttöku í landsmótinu 2020 í fyrsta skipti í sögu félagsins. Annars er hugur þeirra bundinn við að skipuleggja hagyrðingakvöld og dansleik 18. apríl eins og kemur fram í auglýsingunni frá þeim. Þeir ætla að koma saman eftir áramót og vera með dansæfíngar eins og síðasta vetur. Ekki er loku fyrir það skotið að Skagfirðingar taki þátt á komandi landsmóti. Það yrði í fyrsta skipti í langan tíma og mikið fagnaðarefni. Leiðrétting vegna Sagnabelgs I Sagnabelgnum í september urðu ritstjóra á séstaklega neyðarleg mistök. Þar sagði hann að textinn um Þórð sjóara væri eftir Svavar Benediktsson. Ekki er honum kunnugt um skáldskapargáfu Svavars, en textinn um Þórð sjóara, er að sjálfsögðu eftir ljóðskáldið ástkæra Kristján frá Djúpalæk. Lesendur eru beðnir velvirðingar á þessu. í : t Heiðursfélagar SÍHU Aðalsteinn Isfjörð, Baldur Geirmundsson og Reynir Jónasson. v__________________:___________________y1 3

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.