Harmonikublaðið - 15.12.2019, Page 4
Af Héraðsbúum
Föstudagskvöldið var notað til að stilla saman strengi. Jón Sigfusson, Héraðsbúar sáu umjjörið
Guðbjartur Björgvinsson, Jónas Þór og Þóróljúr Þorsteins
Harmonikufélag Héraðsbúa tók að sér að
halda aðalfund S.I.H.U. í ár. Hann var haldinn
í Valaskjálf á Egilsstöðum 28. september sl.
Fundarmenn mættu á föstudagssíðdegi 27.
september, H. F. H. bauð upp á léttan kvöld-
verð og í framhaldi af honum var spjallað og
spilað fram eftir kvöldi.
Laugardagurinn rann upp bjartur og fagur og
fyrirhuguð makaferð hófst með því að Hreinn
Halldórsson kom á rútu að hótelinu og
makarnir drifu sig um borð, auk fararstjórans
Einars Rafns Haraldssonar. Farinn var
Fljótsdalshringurinn, inn með Lagarfljóti að
norðanverðu. Fyrsti viðkomustaður var
Fljótsdalsstöð, sem er inni í fjalli. Þar er allri
orku Kárahnjúkavirkjunar stjórnað. Næst var
farið í KlausturkafFi til að nærast. Þá var komið
við í húsi Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem er
mögnuð sýning sem gefur innsýn í starfsemi
þjóðgarðsins. Að lokum var ekið til Egilsstaða,
austan fljóts.
Aðalfundur var settur af formanni Filippíu J.
Sigurjónsdóttur um sama leyti og makaferðin
hófst.
Fyrir fundinum lágu venjuleg aðalfundarstörf
og ein lagabreyting. Breytingin var sú að
Þingeyingar komnir ígírinn
hlutfallinu af hagnaði landsmóts var snúið við
þannig að félagið sem heldur landsmót fær
sextíu prósent og S.I.H.U. fjörutíu prósent.
Um kvöldið var hátíðarkvöldverður að venju
með skemmtidagskrá, þar sem
flutt voru lög eftir heiðursfélaga H.F.H. þá
Guttorm Sigfússon og Hrein Halldórsson.
Dansað var til miðnættis. Hljóðfæraleikarar
voru úr röðum fundarmanna. Harmonikufélag
Héraðsbúa þakkar öllum fúndarmönnum og
mökum þeirra fyrir komuna og ánægjulega
helgi.
Fyrir hönd H.F.H.
Jón Sigfiísson
Ljósmyndir: Sigurður Ólafison
TIL SÖLU
þessi gullfallega Victoria, 4 kóra cassotto
hnappaharmonika, 11 ára gömul með sænskum gripum,
úrvalshljóðfæri.
Verð kr. 480.000.-
Upplýsingar gefur Jón Sigurjónsson
á Húsavík, sími 464 3148.
4