Harmonikublaðið - 15.12.2019, Qupperneq 8

Harmonikublaðið - 15.12.2019, Qupperneq 8
 Þar skoða menn gjarnan Hvítserk. Það var nú ekki í boði því aur og mold á rúðum rútunnar lokaði fyrir allt útsýni svo nú varð eingöngu að treysta á leiðsögumanninn og hann brást ekki. Hvítserkur stendur við vestanverðan botn Húnaflóa, 15 m á hæð, líkist þrífættri ófreskju sem rekur trýnið niður í sjóinn. Þegar komið var inn fyrir botn Húnaflóa var ekið suður vestan við Sigríðarvatn. Við Þorfinnsstaði var stefnan tekin austur fyrir Vesturhópsvatn. Var þá fljótlega ekið fram hjá Vatnsenda, bæ Rósu. Var það tilefni nýtt af leiðsögumanni til að hnýta lausa enda í frásögn hans af henni. Ekið var fram hjá Borgarvirki og síðan rakleitt að Hótel Laugarbakka. Ferðinni var lokið og niðurstaðan sú að þetta hafi verið aflaurða skemmtileg og fróðleg ferð. lögum. Með þessari seinni törn ísfirðinganna lauk ballinu. Talsvert var dansað. Athygli vakti hve nokkur pör þarna dönsuðu mikið og vel. Menn fóru svo að safnast til rekkna sinna eftir einstaklega vel heppnaðan dag. 15. september Þegar við vöknuðum að morgni 15. september var sól á lofti og skyggni með ágætum, mikil umskipti frá gærdeginum. Eftir þægilega nótt í góðum rúmum neyttum við fjölbreytts morgunverðar. Klukkan tíu voru allir mættir í rútuna, einnig leiðsögumaðurinn Karl Ásgeir. Nú fór hann með okkur á sínar æskuslóðir að Bjargi í Miðfirði. Bjarg var líka æskuslóðir þeirra xiifaifrw: f. > ' * ' . V <■• heimsmælikvarða og fullyrða má að þegar þeir spila með Baldri þá sé flutningurinn á sama kvarða. Undirritaður flutti, að mestu sannar, sögur úr Dýrafirði og Lóa á Mýrum furðusögur um nokkra Mýrhreppinga. Kristján Gunnarsson sagði sannar sögur af Þingeyringum. Formaður okkar og fyrrverandi formaður Karitas Pálsdóttir fluttu okkur fróðleik og skemmtan af ýmsu tagi. Þegar kom að Steingrímsfjarðarheiði var á henni snjóhula og hált. Rútan var á sumardekkjum svo nú reyndi á bílstjórann. Með lempni kom hann rútunni klakklaust yfir. Var síðan ekið rakleitt að Reykjanesi. Þar átti að hafa stuttan stans en þegar fara átti af stað sagði rútan stopp. Hún er þeirrar náttúru að hægt er að láta hana síga niður að framan Greinarböfimdur til vinstri og Villi Valli íþungum þönkum Setið að snœðingi á Laugarbakka Þegar á hótelið kom fóru harmonikumenn að stilla upp græjunum og sumir tóku æfingu fyrir kvöldmatinn. Aðrir drifu sig strax í spariföt og fóru á barinn. Bauð Hafsteinn fararstjóri Karli leiðsögumanni að borða með okkur. Matseðillinn hljóðaði upp á sveppasúpu, lambafillet og desert. Var þetta fyrsta flokks í alla staði. Klukkan níu hófst ball í fyrrverandi leikfimissal Laugarbakkaskóla. Kom þar slæðingur af fólki úr Skagafirði og Húnavatnssýslu sem frétt hafði af ferð Harmonikufélagsins en ballið var ekki auglýst að öðru leyti. Fyrstir stigu Dýrfirðingar á svið, Harmonikukarlarnir, Líni, Lóa og Edda. Voru þau hálf vængbrotin því í hópinn vantaði oddvita þeirra og hljóm- sveitarstjóra Guðmund Ingvarsson. Þau sluppu þó bærilega frá sínu. Næst komu á svið margfrægir Isfirðingarnir B.G., Villi Valli og Magnús Reynir. Þeir klikka aldrei. Þeir sóttu piit út í sal og settu hann við trommurnar. Eftir Isfirðingunum kom til skjalanna Aðalsteinn Isfjörð frá Sauðárkróki og spilaði af snilld. Ekki var þó allt búið því nú komu heimamenn á svið og spiluðu af engu minni snilld. Svo komu Isfirðingarnir aftur á dekk og söng Edda með þeim í nokkrum 8 Grettis sterka Ásmundarsonar og Grettis Björnssonar hins landskunna harmoniku- leikara. Erindið að Bjargi var að skoða minnismerki um Ásdísi móður Grettis sterka. Þetta er konulíkneski sem stendur hátt á klapparhold ekki langt frá bæjarhúsum á Bjargi. Frá Bjargi var ekið upp með Miðfjarðará og inn að Barkarstöðum. Þar búa ung hjón, nýlega flutt þangað frá Vestfjörðum. Var þar snúið við, leiðsögumanni okkar, Karli Ásgeiri, skilað að Laugarbakka. Honum var þar þökkuð frábær leiðsögn. Síðan hófst heimferðin og var farin sama leið og við komum, um Laxárdal og Þröskulda. Það er venjan í harmonikuferðunum að menn fari fram í rútuna í míkrófóninn og fremji þar einskonar uppistand, flytji gaman- og grínsögur, Ijóð, vísur og fræðandi erindi. Hólmgeir Pálmason fyllti upp í frásagnir leiðsögumanns okkar um Vatnsnesið enda heimaslóðir hans. Engilbert Ingvarsson flutti fræðandi erindi um upphaf Reykjanesskóla og fleira úr Djúpinu. Bergur Torfason flutti frumort ljóð. Magnús Reynir fór að leggja heimsmælikvarða á hlutina. En segja má að uppistand hans og Villa Valla hafi verið á er hún stansar og auðvelda þannig fólki út- og uppgöngu. Nú neitaði hún að reisa sig aftur og því óökufær. Var þá sett ráðstefna spökustu manna á þessu sviði en það voru bílstjórinn Valdimar, Kristján Gunnarsson vélsmíða- meistari frá Þingeyri og Jón H. Guðjónsson hótelstjóri í Reykjanesi. Meðan þeir leystu úr málum fóru aðrir í kaffi á hótelinu. Er skemmst frá að segja að viðgerðarteymið fann bilunina og lagfærði á skömmum tíma. Var þá ekkert í vegi að halda aftur af stað. Ekið var í einum áfanga til ísafjarðar og komið þangað um sjöleytið. Hélt nú hver til síns heima eftir að hafa kvatt ferðafélaga og þakkað þeim skemmtilega samfylgd. Sérstakar þakkir fengu fararstjórinn og bílstjórinn fyrir ágæta frammistöðu í þessari vel heppnuðu ferð. Valdimar H. Gíslason Myndir: Hafsteinn Vilhjálmsson Undirritaður hefur auk þess að styðjast við frásagnir leiðsögumanns okkar gluggað í landakort, ritverkið Landiðþitt Island og Sögu Natans Ketilssonar og Skáld-Rósu eftir Brynjólf Jónsson frá Minna-Núpi. (V.H.G.)

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.