Harmonikublaðið - 15.12.2019, Qupperneq 15
wmlwWFzw
Pétur og Matthías VaUlimarsson, dóttursonur hans, spila saman á Bíldudal
SÍBS-bandið ígóSum flling ájólum 2013
Hvenær komstu suður?
Aldamótaárið urðu breytingar í starfinu hjá mér. Fræðslustjóraembættin
voru lögð niður með lögum 1996 og þá var stofnuð Skólaskrifstofa
Vestfjarða, sem sinnti sama umdæmi og Fræðsluskrifstofan hafði gert.
ísafjarðarbær klauf sig síðan út úr því samstarfi og þá var sjálfhætt. Um
það leyti hafði mér borist tilboð um að taka við starfi framkvæmdastjóra
SÍBS hér í Reykjavík og ég fór þangað til starfa. Þar var afar gott að
vera, yndislegt samstarfsfólk og skemmtileg verkefni. Þar vann ég til
starfsloka 2011, en hef verið í ýmsum verkefnum fyrir SÍBS og
Hjartaheill síðan. Greta hélt áfram að starfa hjá sýslumanni til starfsloka,
en við erum bæði löggilt heldra fólk fyrir löngu.
Hefúr Pétur Bjarnason samið eitthvað af tónlist?
Á Bíldudal hefur alltaf verið mikil gróska í menningar- og listalífi og
leiklist í hávegum höfð. Þar var alltaf samin revía af heimafólki í
desemberbyrjun og hátíðin gekk undir nafninu Desið. Við sömdum
líka söngleiki, þar sem bæjarskáldið Hafliði Magnússon var í
aðalhlutverki sem textasmiður en við Jón Ástvaldur sömdum oft lög,
hann þó miklu virkari í því. Eg samdi þó fáein lög, m.a. eitt við
söngleik eftir Davíð Oddsson, Eg vil auðga mitt Land. Lagið heitir
Söngur Rakelar. Annars hef ég ekki gert mikið af þessu. Lagið og
textinn Eg erfrjáLs hefur þó lifað lengi eða í fimmtíu ár. Þegar ég fór
í tónfræðinám einn vetur í Tónlistarskóla FIH vorum við látin semja
dálítið af lögum og eitt af lögum mínum rataði inn á lokatónleikana
um vorið. Það heitir Tónfrœðiraunir og er sársaukafullur blús eins og
tilefninu hæfði. Eg lít sem sé ekki á mig sem tónskáld.
Áttu margar góðar minningar tengdar harmonikunni?
Harmonikan hefur fylgt mér meira og minna síðan um fermingu og
við eigum alltaf gott samband. Ég hef áður getið um litla bárujárnshúsið
á Ströndinni og Fagrahvamm, en þaðan eru ljúfar minningar. Margar
góðar stundir eru tengdar ferðalögum og samkomum þar sem
harmonikuunnendur koma saman. Þetta er einstaklega glaðvær hópur
sem á gott með að skemmta sér af hófsemi og gleði.
Hver er þín sýn á firamtíð harmonikunnar og dansins á Islandi?
Ég er ekki vel heima á sviði danslistarinnar en er þess fullviss að hún
muni lifa. Það er útilokað annað. Það hefur oft verið spáð illa fyrir
harmonikunni og t.d. á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar héldu
margir að dagar hennar væru taldir, en hún átti sér blómaskeið eftir
það og er enn vinsæl á skemmtunum. Meðal eldri borgara er hún hátt
skrifuð, þrátt fýrir að í þeim hópi séu margir byltingarsinnar frá Bítla-
og Rolling Stones tímabilinu. Þannig virðist virðing harmonikunnar
vaxa með auknum þroska okkar. Það getur þó verið að það form sem
okkur harmonikuunnendum hentar núna muni láta undan síga, en
þá munu finnast nýjar Ieiðir. Því vil ég taka orð Mark Twain mér í
munn og segja fyrir hönd harmonikunnar: „Sögur af andláti mínu og
útför eru stórlega ýktar.“
Viltu segja eitthvað að lokum?
Takk fyrir Harmonikublaðið og þann myndarskap sem verið hefur í
útgáfu þess um árabil. Hlutverk blaðsins er meira en margur hyggur,
bæði í að halda sögu harmonikunnar á lofti og ekki síður að þjappa
unnendum hennar saman og vera vettvangur fyrir þá. Blaðið er
sameiningartákn okkar og ég óska því bjartrar framtíðar.
Það er orðið áliðið kvölds þegar ég býst til brottfarar, ég þakka Pétri
fyrir spjallið, sem hefur leitt okkur um víðan völl. Kaffikannan er tóm
og bakkelsið horfið. Það virðist ætla að hausta vel þetta árið á Stór-
Reykjavíkursvæðinu.
Friðjón Hallgrímsson
Myndir: Hinir ogþessir
GJAFAKÖRFUR!
Langar þig aó gefa gott i kroppinn?
RJOMABUIÐ
ERPSSTAÐIR
Rjómabúió Erpsstaðir býður
gjafakörfur með úrvali afurða
úr framleiðslu sinni.
körfurnar innihalda osta,
skyrkonfekt, berjadrykk og kex,
ósamt ýmsu öðru góðgceti.
Verð er frá 6.200.- til 9.900.-
Vinsamlega pantið tímanlega
í gegnum netfangið
erpur@simnet.is
eða í síma 8680357
'9'
15