Harmonikublaðið - 15.12.2019, Síða 18

Harmonikublaðið - 15.12.2019, Síða 18
Haustið 2019 Hjá Félagi harmonikuunnenda í Reykjavík Stjórn félagsins hélt fund í byrjun september og fór yfir starfsemi vetrarins framundan. Akveðið var að dansleikir yrðu með hefðbundnu sniði og sá fyrsti í október. Hljómsveitaræfingar áttu líka að byrja í október að vanda. Reyndar frestuðum við fyrstu æfingu vegna harmonikutónleika Ástu Soffíu og meðleikara, sem var norskur saxofónleikari, í Sigurjónssafni. Fjórir félagar starfsári svo við sáum ástæðu til að halda þessu áfram. Landsmótið í Stykkishólmi er ofarlega í huga og viljum við vinna það í samvinnu við heimamenn. Mótið verður tileinkað Hafsteini Sigurðssyni heitnum, harmonikuleikara og kennara í Stykkishólmi. I vor hittum við undirrituð og Friðjón, eiginkonu Hafsteins heitins, Sigrúnu Ársælsdóttur og bauð hún á tónleikana og í dansspilið af kostgæfni og að óskum félaganna. Við fregnuðum það í fyrra að dansleikir FHUR voru oft á sama tíma og hjá öðrum félagasamtökum. Friðjón hafði því samband við ýmsa samkeppnisaðila um dansara um fyrirkomulag þeirra til að lenda ekki aftur í þeirri aðstöðu. Dansleikirnir hafa gengið vel, mæting mætti vera betri en það hefur verið Polki í Breiðfirðingabúð FHUR mættu á þessa nútímalegu tónleika. Hljómsveitarstjóri FHUR er Hannes Baldursson eins og á síðasta starfsári. Við ákváðum að hafa hljómsveitaræfmgarnar þannig að annan hvern miðvikudag yrði létt dansprógramm í gangi en hinn miðvikudaginn viðameiri tónverk með nákvæmari nótnalestri. Hljómsveitarmeðlimir voru nokkuð sáttir við þetta fyrirkomulag. Eg fékk leyfi hjá Hollendingnum Paul de Bra, að nota hans útsetningar fyrir nákvæma nótnalesturinn. Og auðvitað er nánast búið að ákveða prógramm fyrir landsmótið enda þurfum við að hafa dagskrána tilbúna um miðjan janúar nk. Við förum svo í jólafrí eftir 27. nóvember en þann dag höfum við opna æfingu þar sem almennir félagar og aðrir harmonikuunnendur geta mætt og spjallað yfir kaffibolla og tekið sporið. Þetta fyrirkomulag naut vinsælda á síðasta Rœllinn svíkur engan okkur að líta á nótnasafn Hafsteins. Við fengum Sigurð Alfonsson til að yfirfara nóturnar sem hann og gerði og þar reyndust vera lög er Hafsteinn hafði samið. Á stjórnarfundum er rætt um landsmótið og gengið hefúr verið frá bókunum á íþróttahúsinu og ýmsu sem tilheyrir svona mótshaldi. Við vitum ekki stöðuna á gisdmöguleikum af því húsnæði sem er í boði. Benda má á að mörg stéttarfélög og einkaaðilar leigja líka húsbíla eða húsvagna. Stór hluti af tjaldsvæðinu verður tekinn frá vegna mótsins. Dagskráin verður hefðbundin þ.e.a.s. það verða tónleikar föstudag og laugardag um miðjan dag og dansleikir fimmtudag í hótelinu og í íþróttahúsinu föstudag og laugardag. Við vorum sátt við hversu mörg harmonikufélög eru tilbúin að taka þátt í tónleikum og dansleikjaspili. Friðjón hefur raðað félögunum rúmt um dansarana. Á ballið í október, vantaði tilfinnanlega dömur. Sigurður Alfonsson hóf leikinn fýrir dansi og Páll Elíasson og Þorleifur Finnsson leystu hann af áður en Erlingur Helgason lauk ballinu ásamt meðspilurunum sem stóðu sig vel allt kvöldið, þeim Hauki Ingibergs á gítar, Hreini Vilhjálmssyni á bassa og Eggerti Kristinssyni á trommur. Það var betra kynjajafnvægi á dansleiknum í nóvember og þá léku fyrir dansi Harmonikufrænkurnar Gyða og Elísabet ásamt Hannesi Baldurssyni. Hildur Petra og Guðný Kristín tóku við af þeim ásamt Jónasi Pétri og trommuleikaranum Árna Áskelssyni. Lokatörnina tóku svo Hilmar Hjartarson og Linda Guðmundsdóttir á harmonikur, auk þess sem Linda söng með hljómsveitinni. Með þeim lék og Rósa Jóhannesdóttir á fiðlu. Meðleikarar með fyrsta og síðasta bandinu voru Fróði Oddsson á gítar, Hannes Baldursson á bassa og Eggert Kristinsson á trommur. Næsti dansleikur verður svo 11. janúar, þorrablótið í febrúar og dansleikir í mars og apríl. Við höldum skemmtifund í Breiðfirðingabúð þann 14. mars með ungum nemendum líkt og í fyrra og vonumst til sjá sem flesta harmonikuunnendur þar. Með bestu óskum um gleðilega jólahátíð og farsælt landsmótsár 2020. Elísabet H Einarsdóttir formaður FHUR Ljósmyndir: Siggi Harðar Hljómsveit Hilmar Hjartarsonar á nóvemberballinu. Fróði, Rósa, Hilmar, Eggert, Linda og Hannes 18

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.