Harmonikublaðið - 15.12.2019, Page 19
Haraldur Reynisson
f. 1. desember 1966 - d. 15. september 2019
en minningin lifir um góðan dreng.
Við sendum innilegar samúðarkveðjur til
Steinu Möggu og fjölskyidunnar.
Finna varir, finna hönd,
fœrastyfir ókunn lönd.
Fá sér hvíld á draumaströnd.
(Halli Reynis)
Halli minn, líði þér vel í sumarlandinu á
vængjum tónlistar með gítar í hönd, en
þín er sárt saknað.
Deyr fé,
deyja fiændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Ur Hávamálum)
Kveðjafrá Nikkólínufélögum
Undir Dalanna sól á fallegum haustdegi
kvaddi okkur góður drengur og félagi í
Nikkólínu, Haraldur Reynisson eða Halli
Reynis eins og hann var alltaf kallaður.
Hann Halli var tengdasonur Melkorku
Benediktsdóttur formanns Nikkólínu.
Fyrir þónokkrum árum síðan vantaði
okkur tilfinnanlega bassaleikara.
Melkorku datt í hug að nefna það við
Halla, sem var snöggur að bregðast við,
bruna vestur og bjarga málum. Aðalhljóð-
færið hans var reyndar gítar. A lands-
mótinu í Reykjanesbæ spilaði hann með
Nikkólínu á gítar en honum fannst gaman
að grípa í bassann líka og eftir fyrsta
Nikkólínuball varð ekki aftur snúið og
Halli orðinn bassaleikarinn okkar. Síðan
eru margar skemmtilegar samverustundir
að baki. A síðasta landsmóti gistu
allnokkrir Nikkólínufélagar í „Húsinu“ á
Isafirði. Þarna áttum við alveg frábæra
landsmótshelgi, mikið spilað og spjallað.
Þar voru herbergisfélagar Halli og
Ríkarður slagverksleikari Nikkólínu, en
þeir voru miklir vinir og félagar þrátt fyrir
40 ára aldursmun. Þannig var Halli hlýr
og mannlegur, viidi öllum vel og var
mikill vinur vina sinna. Lífið er hverfult
/
OaÁunti Aa/i/>rumdbiA(/)vne/ri^^
&Ý ^//Ksel^ írmria/ncU ó/iá>.
VeAdO VAMdMYU/ny ó 'IMOóÁipÁÁ.
HÉRAÐSPRENT
Miðvangi 1, 700 Egilsstaðir
Sími 471 1449 I www.heradsprent.is
print@heradsprent.is
19