Harmonikublaðið - 15.12.2019, Side 21

Harmonikublaðið - 15.12.2019, Side 21
A ^ •*: * * —n ^ ' 1 v' v - * • •• • ' ., Guðmundur Oli Sigurgeirsson Höfundur Borgarpolkans heitir Guðmundur Oli Sigurgeirsson, er fæddur að bænum Móeiðarhvoli í Hvolhreppi þann 27. ágúst 1949. Hann ólst síðan upp í Eystra Fróðholti, handan við Þverá, en sú byggð tilheyrði Rangárvallahreppi. Þegar Guðmundur Óli var um tíu ára gaf frændi hans honum 120 bassa Scandali nikku, en áður hafði hann gefið honum munnhörpu. Það tók ekki langan tíma að ná lagi á nikkuna, þó hún væri í það þyngsta fyrir svo ungan dreng og áhugi fyrir tónlist var vakinn hjá unga manninum. Um þetta allt má lesa í bókinni „Við ána, sem ekki var,“ sem bókaútgáfan Sæmundur gaf út 2016. Eftir landspróf hóf hann nám við Kennaraskóla Islands, en áður hafði hann lært á harmóníum í Tónlistarskólanum á Hvolsvelli. Það kom sér vel, því þar með varð hann gjaldgengur á rafmagnsorgel í skólahljómsveitinni Altó í Kennaraskólanum. Sú sveit lifði aðeins einn vetur, en upp úr rústum hennar stofnaði hann ásamt vinum sínum hljómsveitina Classic, sem hafði heimavöll í gamla Glaumbæ og lék þar alloft á föstudagskvöldum veturna 1967 og '68. Hin kvöld vikunnar voru svo notuð til æfinga í Glaumbæ. Var honum meðal annars treyst fyrir að hafa lykil að Glaumbæ og var hann aldrei misnotaður. Eftir námið í Kennaraskólanum skildu leiðir og Guðmundur Óli hélt til starfa í sinni heimasveit. Lauk þar með hljómsveitar- ævintýrum um langa hríð. Guðmundur Óli var ekki gamall þegar fyrstu tónsmíðarnar urðu til en eins og hjá mörgum fleiri hélt hann þeim ekki til haga. Það var ekki fyrr en síðar að tónsmíðarnar fengu varanlega geymslu. Við fimmtugsaldurinn tók hann sér frí frá kennslunni og hóf nám í raftónsmíðum við Tónlistarskóla Kópavogs. Þegar svo tónlistarsagan bættist við opnaðist nýr forvitnilegur heimur og síðan hafa margar tónsmíðar Iitið dagsins ljós. Þær munu brátt verða aðgengilegar á vef Islenskrar tónverkamiðstöðvar. Guðmundur Óli hefur starfað sem kennari á Kirkjubæjarklaustri frá 1978, en hefur nú látið af störfum og telst, skv. Iögum, til lögbundinna iðjuleysingja. Eiginkona hans í gegnum sært og súrt er Ester Anna Ingólfsdóttir og eiga þau tvær dætur. Mynd: Lárus Bjarnason Heimsókn að Westan Undanfarin ár hafa heimsóknir erlendra harmonikuleikara aðallega verið frá norður- löndunum, með örfáum undantekningum. Síðastliðið sumar komu hins vegar tveir Bandaríkjamenn til tónleika og skemmtana- halds. Þetta voru þeir Kevin Solecki og Cory Pesaturo. Hingað voru þeir félagar komnir í samstarfi við Inga Karlsson, aðallega til að taka þátt í Harmonikuhátíð Reykjavíkur í Árbæjarsafni, sem fram fór sunnudaginn 14. komist fyrir. Þeir félagar léku ýmist saman eða í sitt hvoru lagi og var þetta allt á mjög léttum nótum, Kevin leikur hefðbundið, en Cory aftur meira í frjálsri spilamennsku. Ekki fór á milli mála að þeir félagar kunnu til verka. Laugardagurinn var þéttbókaður hjá þeim félögum. Strax eftir hádegi voru þeir komnir í Skyrgerðina í Hveragerði, en þar léku þeir fyrir gesti og gangandi góðan dagspart. Ekki var til setunnar boðið lengi þar, því um kvöldið y' trommur. Var ágætis þátttaka í dansinum. Sunnudeginum eyddu þeir félagar á Arbæjarsafninu, ásamt mörgum öðrum harmonikuleikurum og léku þar fyrir gesti safnsins. Kevin Solecki er fyrst og fremst dansspilari og það af betri gerðinni og hefur unnið til fjölmargra viðurkenninga og verið tilnefndur til Grammy verðlauna. Cory Pesaturo er hins vegar á heimsmælikvarða. Hann hefur unnið til fjölmargra verðlauna og Þeirfélagar tóku lagið áferð sinni um Vestfiríi Ingi Karbson, Kevin og Cory á ballinu i Húnabúð júlí. Áður en til tónleikahalds kom fóru þeir félagar ásamt eiginkonu Kevins í ferðalag um landið og komu víða við. Fyrstu tónleikarnir fóru fram í Hannesarholti. Þokkaleg aðsókn var að samkomunni, þó mun fleiri hefðu var boðið til dansleiks í Húnabúð. Því miður vantaði mikið á að aðsókn þar væri ásættanleg, en þeir sem mættu skemmtu sér hið besta, enda framúrskarandi tónlistarmenn á ferðinni og lék Ingi Karlsson með þeim félögum á varð heimsmeistari aðeins 16 ára gamall árið 2002. Það var ótrúlegt að fylgjast með honum leika og sátu áheyrendur oft agndofa. Friðjón Hallgrímsson Myndir: Shelley Chauby 21

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.