Harmonikublaðið - 15.12.2019, Qupperneq 22

Harmonikublaðið - 15.12.2019, Qupperneq 22
> : Ólafur Th. Ólafsson Ljúfmenni með mikið listfengi er fallinn frá. Óli Th eins og hann var ætíð kallaður af flestum kvaddi þennan heim 16. nóvember síðastliðinn. Mörg skörð hafa verið höggvin í hóp okkar harmonikuunnenda undanfarin ár m.a. þann hluta okkar sem ruddu brautina hér á landi fyrir uppgangi hljóðfærisins. Hann var einn þeirra er stuðlaði að stofnun Félags harmonikuunnenda á Selfossi og nágrenni 1991, var fyrsti formaður þess og teiknaði einkennismerki félagsins. Óla kynntist ég í gegnum harmonikustarfið, en aðallega nokkru eftir útkomu blaðsins Harmonikan og á harmonikumótunum á vegum blaðsins. Hann sýndi blaðinu og mótunum mikinn áhuga, sendi inn fjölda teikninga til skreytinga fyrir blaðið auk þess að skrifa margar greinar í blaðið. A þessum tíma voru myndir og greinar sendar í pósti og bréfin sem Óli sendi báru alltaf skreytiteikningu í vinstra horni og lít ég á þau sem safngripi. Ein af þeim myndum er hann teiknaði fyrir blaðið er sérlega minnisstæð (3-tbl 1994- 95) er í A4 stærð og tileinkuð mótinu í Þrastaskógi. Myndin túlkar stemninguna á mótssvæðinu og má þekkja flestar persónurnar er komu þar við sögu. Síðar færði hann mér umrædda teikningu stækkaða í lit og prýðir hún nú heimili mitt. Hann hefur teiknað fjölda mynda af fólki úr hópi harmonikuunnenda. Oft var leitað til hans frá FHUR, þegar afhenda átti fallegt heiðursskjal. Fyrir félagið gerði hann mynd af Braga Hlíðberg í tilefni 70 ára afmælis hans 26. nóvember 1993. Myndin er glæsileg og svo lifandi að maður næstum heyrir Braga spila. Hún prýðir forsíðu Harmonikunnar frá þessum tíma. Þá vann Óli keppni um merki fyrir Samband íslenskra harmonikuunnenda árið 1990 sem er bæði lýsandi og túlkandi fyrir sambandið. Óli kunni líka að handleika harmonikuna og var opinn fyrir allslags tónlistarformi. Ekki er hægt að ljúka þessum skrifum án þess að minnast á hans yndislegu eiginkonu, Sigrúnu Gyðu Sveinbjörns- dóttur, er ávallt stóð við hlið manns síns. Hún er í minningunni ákaflega hreins- kiptin kona, glæsileg og hafði gefandi nærveru sem er gott að minnast. Eftir fyrra lands- mótið á Isafirði sameinuðumst við nokkrir aðilar, þar með Öli og Gyða, um að heimsækja mína heimabyggð á Ströndum, Norðurfjörð og Trékyllisvík. Þar áttum við góða glaða daga öll saman er við minnumst með hlýju. Ólafi Th var veitt menningarviðurkenning Árborgar á Selfossi 24. apríl 2014 fyrir myndlistina. Skemmtilegt er að hugsa til samverustunda með Óla, gamanseminnar og gefandi návistar, málaralistar og harmonikuleiks. Fjölskyldu og vinum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur, með þökk. Minningin um hæfileikaríkan mann lifir meðal okkar. Hilmar Hjartarson Þann 16. nóvember 2019 lést á Hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði vinur okkar og félagi ÓlafurTh. Ólafsson og er hans saknað af félögum hans í HFS. Okkar fyrstu alvöru kynni urðu sumarið 1991. Það var haldin sumarhátíð á Selfossi, en það var í forsetatíð Vigdísar Finnbogadóttur. A þessari skemmtun hafði Vigdís ákveðið að gróðursetja trjáplöntu í reit sem staðsettur var austan við Ölfusárbrú, norðan árinnar. Það var haldið af stað frá Hótel Selfoss í skrúðgöngu yflr brúna. Þegar við erum stödd á miðri brúnni, er bankað í öxlina á mér, ég lít við og þá sé ég Óla Th., en ég þekkti hann lítið sem ekkert. Hann kastaði á mig kveðju og segir: Spilar þú ekki á harmoniku? Það er nú varla segi ég, en segi svo við hann að ég eigi nikku inni í skáp, en að hún sé nú lítð notuð. Upp úr þessu hófst okkar kunningsskapur og Óli setti allt í gang og hafði samband við alla þá sem hann vissi að spiluðu eða höfðu spilað á harmoniku. Margir höfðu áhuga og félagið varð til í október 1991. A stofnfund Harmonikufélags Selfoss mættu milli 15 og 20 áhugamenn og var Óli Th. kosinn formaður, sem allir töldu sjálfsagt og sinnti hann því starfi í mörg ár og hélt vel utan um hópinn með ýmsu, svo sem skemmtunum og kafifi með veitingum í Tryggvaskála ofl. Þetta þjappaði hópnum saman svo úr varð góður félagsandi. Árið 1993 var haldið landsmót á Egilsstöðum og Óla fannst að við ættum að fara þangað, en þá voru tæp tvö ár frá stofnun félagsins og ekki verið langur tími til æfmga, en það gekk. Óli ferðaðist eftir stofnun félagsins á hin ýmsu harmonikumót og kynntist þar mörgu fólki, sem við félagarnir höfúm haft góð kynni af í gegnum árin. Minning hans liflr með okkur félögunum. Við félagarnir í FHS vottum ættingjum innilegustu samúðar. Blessuð sé minning hans. F.h. Harmonikufélags Selfoss Þórður Þorsteinsson - formaður 22

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.