Harmonikublaðið - 15.12.2019, Síða 23

Harmonikublaðið - 15.12.2019, Síða 23
Starf Nikkólínu hefur verið nokkuð hefðbundnum hætti. Það er nú fyrst frá því að segja að harmonikuhátíðin á Laugarbakka síðasta sumar tókst afar vel, eins og venjulega leyfi ég mér að segja, vegna þess að þetta hefur alltaf verið alveg frábær helgi. Næsta sumar, landsmótsárið 2020, verður hátíðin á Laugarbakka haldin 12.-14. júní. Það eru eftirmeðferð að Vík. Þarna var veisluborð að vanda og gestir gátu líka skoðað húsnæðið og sumir rifjuðu upp skemmtilegar minningar frá kvennaskóladvölinni. Þá var nú líf og fjör á staðnum! Vonandi að einhver kaupi Staðarfell og hefji staðinn til vegs og virðingar á ný. Haustið var frekar rólegt hjá Nikkólínu en við höfum þó náð nokkuð reglulegum æfingum veitinganna. Svo var spilað á aðventuhátíð 1. des. á hjúkrunarheimilinu Fellsenda. Síðan spiluðum við á aðventustund og jólahlaðborði á dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum 7. des. og framundan er að heimsækja dvalarheimilið Silfurtún núna á jólaföstunni. Harmonikan er gleðigjafi hvar sem hún hljómar og það er vel. HUH og Nikkólína sem standa að þessari hátíð í góðu samstarfi. Nú í haust var svo ákveðið að félögin myndu sameiginlega bjóða til aðalfundar SIHU og verður hann haldinn í Hótel Laugarbakka í september 2020. I byrjun ágúst var árleg messa í Dagverðarnesi í Klofningshreppi hinum forna í Dalasýslu. Dagverðarnesið teygir sig fram á móts við eyjarnar í mynni Hvammsfjarðar, enda kom fólkið úr eyjunum sjóleiðis í messu þar áður fyrr. Dagverðarneskirkja var byggð 1934, er eiginlega vistvæn núna því þarna er ekkert rafmagn, engin upphitun og gólfið lagar sig bókstaflega að nánasta umhverfi, en þetta er falleg og sérstök kirkja. Sóknin er orðin afar fámenn, eyjabyggðin horfin og eina sóknarbarnið er Selma Kjartansdóttir frá Ormsstöðum, formaður sóknarnefndar og allt. Þarna hafa séð um tónlistina í allmörg ár Halldór Þ. Þórðarson á harmoniku, Ríkarður Jóhannsson á slagverk og Sigrún B. Halldórsdóttir á klarinett. Núna bættist við Hafliði Olafsson á gítar. Það er alltaf vel mætt í þessa athöfn, troðfull kirkja og eiginlega alltaf yndislegt veður. Þó man ég eftir messu þarna á votviðrisdegi, það var alveg úrhellisrigning og menn sáu vart handa sinna skil í gufumekkinum sem steig upp af rennblautum kirkjugestum. En þetta er samt alltaf afskaplega góð stund. Svo er boðið í messukaffi á eftir. Að þessu sinni var það á Staðarfelli í gamla húsmæðraskólanum sem nú stendur auður eftir að SAA flutti alla enda líður að landsmóti. Svo var farið yfir jólalögin enda er alltaf mörgu að sinna á aðventunni. Fyrstu aðventuhelgina var spilað á laugardaginn 30. nóv. á handverksmarkaði í Króksfjarðarnesi, mjög skemmtilegt eins og alltaf. Það var ungur maður í för með okkur sem tók eiginlega að sér hljómsveitarstjórn. Það var nefnilega boðið upp á heitt kakó og kökur og þegar hann Orri Freyr (og Halldór hljómsveitarstjóri) var orðinn svo „voðaiega svangur" lukum við spilamennsku og nutum Að lokum bestu jóla- og nýárskveðjur úr Dölum, megi nýtt ár færa öllum gæfu og gleði. SBH 23

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.