Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Qupperneq 6
Landsfundarræða fieirs Hallgrtmssonar
Geir Hallgrímsson hylltur að loknu formannskjöri.
Hvort er það frjálslyndi eða stjórn-
lyndi að þykjast frysta innlent sparifé, en
vísa svo opinberum stofnunum og einka-
fyrirtækjum á erlend lán og flytja þannig
bankastarfsemina að þessu leyti út úr
landinu eins og heildverslunina áður
vegna óraunhæfra verðlagshafta? Gera
stjómarherramir sér þess ekki grein eins
og aðrir, að innlend bankastarfsemi og
verslun voru og eru forsendur sjálfstæðis
þjóðarinnar?
Hvort er það frjálslyndi eða stjórn-
Iyndi að móta þá stefnu í húsnæðismálum
að ungu sem eldra fólki er gert ókleift að
byggja yfir sig og sína? Um leið eru
landsmenn dregnir í dilka. Sumir fá 90%
lán, en mega ekki einu sinni hafa meðal-
tekjur verkamanna, svo að þeir geta ekki
staðið undir láninu. Hinir fá lán innan
við20% af byggingarkostnaði.
Hvort er það frjálslyndi eða stjórn-
lyndi að hverfa enn frekar frá því tak-
marki að hver fjölskylda eigi eigin íbúð
með því að hækka fasteignaskatta og
eignaskatta og setja ný lagaákvæði um
leiguhúsnæði, sem leitt hafa til húsnæðis-
kreppu á höfuðborgarsvæðinu á 3 ára
valdatíma vinstri st jórna í landi og borg?
Þarf frekar vitnanna við, þegar
kommúnistinn í forsæti höfuðborgarinn-
ar kallar á leigunám, húsnæðisskömmt-
un eins og fulltrúi Framsóknar fyrir 30
árum?
Hvort er það frjálslyndi eða stjórn-
lyndi að stöðva virkjun fallvatna, hindra
eigin fjármagnsmyndun orkufyrirtækja,
reka þau með tapi og erlendum lántök-
um og huga alls ekki að sölu orku til
stóriðju heldur þvert á móti spilla fyrir
þróun þeirra mála til bættra lífskjara og
fleiri starfa fyrir landsmenn eins og
iðnaðarráðherra hefur gert og ríkis-
stjórnin lagt blessun sína yfir?
Hvort er það stjórnlyndi eða frjáls-
lyndi að beita leyfum og bönnum, höft-
um og hömlum til þess að vinna bug á
verðbólgu að sovéskri og pólskri fyrir-
mynd að skapa einstaklingum og fyrir-
tækjum skilyrði til að láta hendur standa
fram úr ermum, auka framleiðslu, fram-
leiðni og fjölbreytni og vinna sig þannig
út úr vanda og verðbólgu?
Allar eru þessar spurningar byggðar
annars vegar á stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins og hins vegar gerðum núverandi ríkis-
stjómar og annarra vinstri stjórna sl. 3
ár.
Þátttaka sjálfstæðismanna í núverandi
ríkisstjórn samrýmist því ekki stefnu
Sjálfstæðisflokksins eins og hún hefur
verið mótuð á 23 undanförnum lands-
fundum.
Þótt ég hafi hér sérstaklega vitnað í
ummæli Jóns Þorlákssonar um frjáls-
lyndi og stjómlyndi, þá er enginn vafi á
því, að Ólafur Thors, Bjarni Benedikts-
son og Jóhann Hafstein tóku að þessu
leyti undir og fylgdu fram í orði og verki
sömu stefnu.
Forystuhlutverkið
Auðvitað hafa orðið miklar breytingar
á hálfri öld bæði hér og annars staðar í
heiminum, ekki síst frá lokum seinni
heimsstyrjaldar. Hagvöxtur hefur aukist í
kjölfar frjálsari viðskipta þjóða á millh
frumkvæðis, framtaks og frelsis í
atvinnumálum vestrænna ríkja. í krafti