Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Side 8

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Side 8
Landsfundairæða Geirs Hallgnmssonar Vandi okkar nú verður því aðeins leystur að við ráðumst að rótum hans, þ.e. myndun núverandi ríkisstjórnar, stefnu hennar og störfum, sem skipt hefur stuðningsmönnum Sjálfstæðis- flokksins í stjórn og stjórnarandstöðu. Enginn má skilja orð mín svo, að ekki geti verið eðlilega skiptar skoðanir um, hvern skuli kjósa formann Sjálfstæðis- flokksins, einkum þess flokks sem leggur áherslu á valddreifingu um leið og sumir flokksmenn gera kröfu til að formaður ráði ferðinni, þegar þeim er það að skapi, en ella ekki. En nýr formaður í Sjálfstæðisflokkn- um sem væri trúr yfirlýstri andstöðu flokksins við ríkisstjórnina stæði í nákvæmlega sömu sporum og núverandi formaður. Góðir sjálfstæðismenn. Ef hins vegar þessi landsfundur lýsir fylgi Sjálfstæðisflokksins við núverandi ríkisstjórn, þá mun ég ekki gefa kost á mér til endurkjörs, því að það er skylda formanns að framkvæma vilja lands- fundar. Ef vandi okkar væri einungis sá, að hann yrði leystur með því að formaður Sjálfstæðisflokksins segði af sér, þá gæfi ég ekki kost endurkjörs í anda þeirra sanninda, að enginn maður er Sjálf- stæðisflokknum og hugsjónum hans meira virði. En ef Sjálfstæðisflokkurinn á að vera sú kjölfesta, sem þjóðin þarf á að halda, þá má hvorki flokkur, formaður hans, forystumenn og flokksmenn hrekjast fyrir veðri og vindi og láta undan hót- unum. Andstæðingar okkar skulu vita það, að formaður Sjálfstæðisflokksins er ekki valinn til að bogna eða brotna þegar á móti blæs og segja af sér eftir áskorun þeirra. Andstæðingar okkar skulu vita, að formaður flokksins er ekki valinn til að sniðganga lýðræðislega ákveðnar skipu- lagsreglur flokksins og meirihluta- ákvarðanir og þar með vilja og ákvörð- unarvald hins almenna flokksmanns. Það er trú mín og vissa, að 24. lands- fundur Sjálfstæðisflokksins muni árétta þessi orð með samtakamætti, styrk og stuðningi við formanninn, hver sem hann verður, andstæðingum Sjálfstæðis- flokksins til viðvörunar. Hin hefðbundna stefna Ég hef fyrr í ræðu minni fjallað um frjálslyndi og íhaldssemi, stjórnlyndi og þröngsýni. Ég er ekki sammála þeim stjórnarsinnum um að stefna og mál- flutningur Sjálfstæðisflokksins hafi verið að þrengjast. Ég er ekki sammála þeim um það, að þeir séu talsmenn hinna frjálslyndu afla, en ég t.d. talsmaður hinna íhaldssamari afla. Núverandi ríkis- stjórn ber vitni stjórnlyndri íhaldssemi eins og hvarvetna, þar sem kommúnistar ráða ferðinni. Hvað mig snertir er ég óhræddur að leggja þau verk, sem ég hef staðið að á stjórnmálaferli mínum undir dóm sjálfstæðismanna að þessu og öllu öðru leyti. En við skulum ekki deila um það, hver sé frjálslyndur og hver sé íhaldssamur, hver víðsýnn og hver þröngsýnn. Við skulum taka- höndum saman á þessum landsfundi sem fyrr um að ítreka og undirstrika hina hefðbundnu stefnu Sjálfstæðisflokksins, stefnu Jóns Þorlákssonar, Ólafs Thors, Bjarna Benediktssonar og Jóhanns Hafstein. Ég hef sagt það áður og get endurtekið það hér, að ég er þeirrar skoðunar, að við getum, sjálfstæðismenn hér á þessum landsfundi, verið sammála um ályktanir í hinum ýmsu málefnaflokkum og um almenna stjórnmálaályktun varðandi stefnumið Sjálfstæðisflokksins. Auð- vitað geta verið skiptar skoðanir um stefnu á mismunandi málaflokkum, en sá ágreiningur þarf ekki að fara eftir Iínum stjórnarandstæðinga og stjórnarsinna og hann er unnt að leysa eins og áður, ef til vill á stundum með því að draga úr ákveðnu orðalagi ályktana, meira en ýmsir kysu að gert væri. Við skulum gera lýðum Ijóst, að grundvallarstefna Sjálf- stæðisflokksins er hin sama og verið hefur og eining er um hana. F.ftir sem áður og samhliða hljótum við að ganga hreinlega til verks og láta atkvæði ganga um afstöðu til ríkisstjórn- arinnar, en við greinum þar á milli. Baráttan um Reykjavík Við skulum gera okkur grein fyrir því, hver staða Sjálfstæðisflokksins er nú og að óbreyttum aðstæðum í stjórn lands- ins. Næsta vor göngum við til sveitar- stjórnarkosninga. Það fer ekki á milli mála, að verði flokkurinn enn klofinn um ríkisstjórn þegar að því kemur, mun það valda frambjóðendum okkar og baráttuliði verulegum erfiðleikum. Höfuðbaráttan stendur um Reykjavík. Ég spyr: Eru ráðherrar og aðrir stuðn- ingsmenn ríkisstjórnarinnar reiðubúnir til að fórna góðum möguleikum Sjálf- stæðisflokksins á að endurheimta meiri- hlutann í Reykjavík á altari núverandi ríkisstjórnar? Er það svo mikið mál, að þessi stjórn sitji að þeir séu tilbúnir til að hætta hagsmunum Sjálfstæðisflokksins til þess að svo megi verða? Við skulum hugsa til frambjóðenda og trúnaðar- manna Sjálfstæðisflokksins í öllum sveitarfélögum á landinu, hvort sem þau eru fámenn eða fjölmenn. Alls staðar, á öllum þessum vígstöðvum munu þeir eiga við að etja stórfellda erfiðleika í kosningabaráttunni í vor, vegna þess að minnihluti þingflokks hefur gegn vilja meirihlutans gengið til samstarfs og styrkt andstæðinga Sjálfstæðisflokksins. Eru þessir menn tilbúnir til að taka á sínar herðar ábyrgð á þessari vígstöðu okkar manna í sveitarstjórnarkosning- um? Þingframboð Við skulum segja, að svo verði sem forsætisráðherra hefur lýst yfir, að ríkis- stjórn hans muni sitja út kjörtímabilið. Hver er aðstaða Sjálfstæðisflokksins þá í alþingiskosningum? Eigum við að ganga til kosningabaráttu, þar sem einn fram- bjóðandi ver gerðir ríkissjórnarinnar og annar gagnrýnir þær, þar sem einn fram- bjóðandi vill halda áfram núverandi stjórnarsamstarfi, en annar beitir sér gegn því? Halda menn, að það verði líklegt til árangurs í þingkosningum? Ef það er ekki í huga stjórnarsinna að ganga til kosninga með þeim hætti, hvernig þá? Er það kannski í huga þeirra, að bjóða fram sérstaka lista í næstu þingkosning- um? Geri þeir það, er hætta á, að klofningur Sjálfstæðisflokksins verði staðfestur og orðinn að veruleika, sem við verðum að horfast í augu við. Þær raddir hafa komið fram að æski- legt væri beinlínis, að sjálfstæðismenn byðu fram tvo lista, því að það mundi leiða til fylgisaukningar þeirra. Ég spyr: Er nú reynslan af tveim listum slík í síðustu kosningum, að leitt hafi fylgisaukningu í ljós? Síður en svo. Ég spyr: Ef vænlegt er að bjóða fram tvo lista í nafni sjálfstæðismanna til að öðlast fylgi, er þá ekki enn betra að list- arnir séu þrír eða fleiri? Hvar á að draga mörkin? Menn eru í sama flokki vegna þess að þeir fylgja sömu stjórnmálastefnu og kjósendur ætlast til þess, að menn innan sama flokks komi sér saman um það sam- kvæmt lýðræðislegum leikreglum, hvemig best er að koma stefnunni í fram- kvæmd og hverjum skuli sérstaklega falið að hafa þar forystu og vera í fram- boði. Að öðrum kosti er flokkur, stjórn- málasamtök ekki trúverðug.

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.