Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Page 18
Ályktun um utanríkismál
útlendinga í orkufrekum iðnfyrirtækjum
hér á landi. Þessi stefna tryggir, að ekki
verði reistar óeðlilegar hindranir gegn
eðlilegri samvinnu við útlendinga, þar
sem það er talið æskilegt með hliðsjón af
skynsamlegri nýtingu orkulinda. Þau
mörgu stórverkefni, er bíða úrlausnar í
orkumálum, verða ekki fullunnin nema
með víðsýnni samvinnu við útlendinga -
raunsæ byggðastefna verður ekki fram-
kvæmd nema hún sé beinn þáttur í skyn-
samlegri og hleypidómalausri utanríkis-
stefnu.
Samskipti austurs og vesturs
- afvopnunarmál
Sjálfstæðisflokkurinn varar eindregið
við þeim háværu röddum, sem segjast
tala í nafni friðar og kref jast þess, að með
einhliða yfirlýsingu skuldbindi Vestur-
lönd sig til að búast ekki til varnar gegn
hernaðarmætti Sovétríkjanna. Þeir, sem
slíkar kröfur gera, eru að kalla á hinn
sovéska frið, þar sem kjamorkuveldið í
austri fær öllu sínu framgengt með því
einu að færa til eldflaugar sínar og ógna
með þeim.
Eina skynsamlega leiðin út úr vígbún-
aðarkapphlaupinu er að samkomulag
náist um gagnkvæma takmörkun á víg-
búnaði og afvopnun stig af stigi undir
nákvæmu eftirliti. Oftar en einu sinni
hefur sýnt sig að þjóðir Atlantshafs-
bandalagsins hafa ekki getað þokað
Sovétmönnum að viðræðuborðinu fyrr
en þær hafa sýnt staðfestu og tekið til við
að svara hinum sovéska vígbúnaði í sömu
mynt. Ákvörðun um slíkt var einmitt
tekin af utanríkisráðhermm Atlantshafs-
bandalagsríkjanna í desember 1979,
þegar ákveðið var að snúast gegn SS-20
kjamorkueldflaugum Sovétmanna, sem
einvörðungu er miðað á Evrópuríkin.
Hinir svonefndu talsmenn friðar í
Vestur-Evrópu hafa einmitt lagst gegn
þessari ákvörðun Atlantshafsbandalags-
ins og reyna að hnekkja henni, þótt hún
hafi leitt til þess að Sovétmenn segjast nú
tilbúnir til að taka upp viðræður um
Evrópueldflaugar sínar. Hitt er eins víst
að Sovétstjómin ætli sér það eitt að
draga viðræður á langinn í von um að hin
svokallaða friðarhreyfing fái því fram-
gengt að með einhliða yfirlýsingum afsali
vestrænar ríkisstjórnir sér því sem þær
myndu annars ekki láta af hendi nema
gegn sambærilegu skrefi af hálfu Kreml-
verja.
Á undanfömum tíu ámm sem kennd
hafa verið við slökun í samskiptum
austurs og vesturs hafa Sovétmenn verið
að færa út kvíamar með öllum tiltækum
ráðum bæði fyrir tilstyrk annarra (Kúbu-
manna og Víetnama) og grímulaust í
Afganistan. Það er því fyllsta ástæða til
að sýna fulla varúð þegar viðræðuþráð-
urinn er tekinn upp að nýju.
Yamar- og öryggismál
Með aðildinni að Atlantshafsbanda-
laginu og varnarsamningnum við Banda-
ríkin hefur ísland skipað sér í sveit þeirra
þjóða, sem em tilbúnar til að verja frelsi
sitt og þjóðskipulag. Aðstaðan, sem
Atlantshafsbandalagið hefur á íslandi,
er ómetanleg sameiginlegum vömum
bandalagsins. Frá íslandi er fylgst með
ferðum herskipa Sovétríkjanna ofan-
sjávar og neðan og umsvifum flughers
þeirra á norðurslóðum. Allt er þetta gert.
í samvinnu við sams konar stöðvar í
Noregi og á Stóra-Bretlandi. Sú þekk-
ing, sem með þessu fæst, er ómetanleg.
Enn mikilvægara er þó sú skýra við-
vömn, sem ísland og Atlantshafsbanda-
lagið fá um hugsanleg árásaráform
Sovétríkjanna vegna þessa eftirlits. En
slík viðvörun mundi fást, þegar vart yrði
við breytingar og aukningu á ferðum her-
skipa og kafbáta Norðurflotans. Við-
vörunin mundi gefa Atlantshafsbanda-
laginu ráðrúm til gagnaðgerða, sem
gætu, ef vel tækist til, komið í veg fyrir
styrjöld en það er að sjálfsögðu höfuð-
markmið Atlantshafsbandalagsins.
Eftirlitið sem rekið er frá íslandi er
einnig mikilvægur þáttur í að viðhalda
jafnvæginu milli stórveldanna. Óvissa
annars um athafnir hins getur leitt til
rangra ákvarðana sem ekki verða aftur
teknar. Varnar- og eftirlitsstörfin sem
unnin eru frá íslandi, em því mikilvægur
þáttur friðargæslunnar í heiminum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ávallt haft
það að markmiði að íslendingar fái að
lifa á íslandi án afskipta eða yfirgangs
annarra. Með þetta að leiðarljósi hefur
Island tekið afstöðu í átökum austurs og
vesturs og skipað sér í flokk frjálsra
þjóða. Þessari afstöðu fylgir ábyrgð.
Sjálfstæðisflokkurinn skorast ekki
undan þessari ábyrgð heldur vill að undir
henni sé staðið með því að sameina Is-
lendinga enn betur en hingað til
andspænis þeirri hættu er leiðir af
auknum hemaðarumsvifum á Atlants-
hafi. Andstæðingum landvarna á íslandi
hefur alltof lengi verið þolað að móta
umræður um öryggi og sjálfstæði þ jóðar-
innar. Þessir landvarnaandstæðingar eru
nú einangraðri en oft áður og þá afstöðu
eiga talsmenn íslenskrar varnarstefnu að
nýta til hins ýtrasta.
íslensk varnarstefna hlýtur fyrst að
taka mið af hagsmunum íslands og því
næst af hagsmunum frænda og góðra
granna. Ef ísland yrði gert varnarlaust
mundi verða herfræðilegt tómarúm á
einhverju hemaðarlega mikilvægasta
svæði jarðarinnar. Raunar mætti hugsa
sér að varnarlaust íslandi gæti beinlínis
leitt til styrjaldar ef einhver aðili gerði
tilraun til að hremma landið. íslensk
vamarstefna felst í því að íslendingar
geri sínar eigin tillögur um varnirnar,
meti varnarþörfina og fyrirkomulag
vamanna. Efla þarf almannavarnir, m.a.
með bættum samgöngum, og auka
skilning á nauðsyn þeirra. Jafnframt þarf
að huga að örygginu inn á við og gera
nauðsynlegar ráðstafanir til að erlend
ríki eða útsendarar þeirra, útlendir eða
innlendir, grafi ekki undan öryggi ríkis-
ins og sjálfstæði þjóðarinnar innan frá.
Ný kynslóð er að hefja virka þátttöku í
íslensku stjómmálalífi, kynslóð sem
fædd er eftir að ísland varð lýðveldi og
hefur alist upp við þær aðstæður að land-
ið sé aðili að Atlantshafsbandalaginu og í
vamarsamstarfi við Bandaríkin. Þessi
kynslóð vill ekki að ísland sé öllum opið,
hún vill frið með frelsi og að gerðar séu
ráðstafanir til að tryggja friðinn og
frelsið. Hún vill ekki óbreytt ástand
heldur kýs að þjóð sín verði virkari þátt-
takandi í vömum landsins og varnarsam-
starfi vestrænna þjóða.