Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Qupperneq 19
Störf landsf undar
I. Fundarsetning
Tuttugasti og fjórði landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins var settur í Háskólabíói í
Reykjavík fimmtudaginn 29. október
1981 kl. 17.30. Fundarstörf fóru annars
fram í Valhöll og í Sigtúni.
Formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir
Hallgrímsson, setti fundinn og bauð full-
trúa og aðra fundargesti velkomna.
Hann minntist í upphafi Jóhanns Haf-
stein, fyrrverandi forsætisráðherra og
formanns Sjálfstæðisflokksins sem lést í
maímánuði 1980 og bað menn að rísa úr
sætum í virðingarskyni við minningu
hans.
Formaður flokksins, Geir Hallgríms-
son, flutti á þessum fundi ítarlega ræðu
um stjórnmálaþróunina í landinu frá
síðasta landsfundi og gerði grein fyrir
viðhorfum í íslenskum stjórnmálum og
málefnum Sjálfstæðisflokksins. Er
ræðan prentuð hér að framan.
Að lokinni ræðu formanns Sjálfstæðis-
flokksins hófst sérstök hátíðadagskrá
setningarfundarins. Par fluttu leikararn-
ir Helga Bachman og Helgi Skúlason,
Ijóð eftir skáldin Tómas Guðmundsson
og Matthías Johannessen. Tónlistar-
mennirnir Gunnar Kvaran, sellóleikari
og Gísli Magnússon, píanóleikari léku
samleik og íslenski dansflokkurinn
sýndi. í lok dagskrárinnar söng ein-
söngvarakvartett, skipaður þeim Garðari
Cortes, Guðmundi Jónssyni, Kristni
Hallssyni og Magnúsi Jónssyni við undir-
•eik Ólafs Vignis Albertssonar nokkur
lög og að endingu st jórnuðu þeir f jölda-
söng fundarmanna.
Frá setningarfundinum í Háskólabíói.
Helga Backman og Helgi Skúlason lásu Ijóð við setningu landsfundarins.
Listdansarar úr Þjóðleikhúsinu
sýndu dansa við setninguna.
Kveðja Geirs Hallgríms-
sonar til Jóhanns Hafstein
,,Síðan síðasti landsfundur var hald-
inn, hefur Jóhann Hafstein fyrrverandi
forsætisráðherra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins fallið frá, en hann lést í
maímánuði 1980.
í hópi sjálfstæðismanna skal ekki nú
hafa mörg orð um Jóhann Hafstein, störf
hans í þágu Sjálfstæðisflokksins, lífshug-
sjón hans sem féll svo vel að Sjálfstæðis-
stefnunni, og Jóhann átti svo mikinn þátt
í að móta og boða um áratuga skeið.
Jóhann var maður stór í sniðum og hafði
mikinn metnað þjóð sinni til handa,
hreinskiptinn drengskaparmaður, sem
mat ávallt heill flokks og þjóðar meira en