Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Side 23
Landsfundur 1981
Emilsson, Grundarfirði. Fleiri tóku ekki
tilmáls.
Næst á dagskrá var ályktun um vinnu-
markaðsmál og hafði Magnús L. Sveins-
son, Reykjavík, framsögu um hana. Að
lokinni ræðu Magnúsar var fundi slitið
kl. 20.00.
Síðasta hluta fundarins hafði Pétur
Hansson, Reykjavík, látið af fundar-
ritarastörfum, þar eð hann þurfti að yfir-
gefa fundinn, en Málhildur Angantýs-
dóttir, Reykjavík, tekið við störfum
fundarritara.
Jóhanns Hafstein
var minnst á landsfundinum. En hann
léstímaí 1980.
Sjöundi fundur
Sjöundi fundur landsfundarins hófst í
Sigtúni sunnudaginn 1. nóvember, kl.
10.(X). Fundarstjóri var Árni Emilsson,
Stykkishólmi og fundarritarar þau Anna
Hertevig, Siglufirði og Arnþór Ingólfs-
s°n, Kópavogi.
Á dagskrá þessa fundar voru umræður
°g afgreiðsla stjórnmálaályktunar og
álitsgerða starfshópa.
Fyrst var tekin fyrir ályktun um vinnu-
rr>arkaösmál, sem framsaga hafði verið
flutt um daginn áður, og var ályktun um
vinnumarkaðsmál samþiykkt samhljóða.
Þá tók til máls Olafur B. Thors,
Reykjavík, og hafði framsögu fyrir
skipulagsnefnd landsfundarins. Ólafur
kynnti þær breytingartillögur sem fram
voru lagðar innan skipulagsnefndarinnar
og tillögur nefndarinnar á afgreiðslu á
þeim.
Til máls tóku formaður Sjálfstæðis-
flokksins, Geir Hallgrímsson, Reykja-
vík, sem lagði til að breytingartillögum
merktum B og C á framlögðu fjölriti frá
skipulagsnefnd yrði vísað til miðstjórn-
ar. Þessar tillögur voru um breytingar á
10. og 55. gr. skipulagsreglnanna.
Einar H. Ásgrímsson, Garðabæ, lagði
fram langar og ítarlegar tillögur um kjör
og kosningareglur vegna formanns og
varaformannskjörs og lagði Einar til að
tillögum sínum yrði vísað til miðstjórnar.
Pá tóku til máls Baldur Guðlaugsson,
Reykjavík, Páll Daníelsson, Hafnar-
firði, Þorvaldur Mawby, Reykjavík, sem
kynnti breytingartillögu við 20. grein
skipulagsreglnanna, undirritaða af
Helenu Albertsdóttur. Tillagan gerir ráð
fyrir að formaður og varaformaður
flokksins verði kjörnir almennri leyni-
legri kosningu meðal allra flokksbund-
inna Sjálfstæðismanna.
Jón Ásbergsson, Sauðárkróki, Geir
H. Haarde, Reykjavík, sem Iýsti því yfir
að fiutningsmenn þeirrar tillögu er hann
hafði gert grein fyrir á öðrum fundi
Iandsfundarins, 29. október, gætu vel
sætt sig við að henni yrði vísað til mið-
stjórnar, Gísli Jónsson, Akureyri, Guð-
mundur Gíslason, Kópavogi, Ólafur B.
Thors, Reykjavík, Haraldur Blöndal,
Reykjavík, Guttormur Einarsson,
Reykjavík, Júlíus Sólnes, Seltjarnarnesi,
Benedikt Bogason, Reykjavík, Árni
Johnsen, Vestmannaeyjum, Friðjón
Þórðarson, dómsmálaráðherra, Reykja-
vík, Auður Auðuns, Reykjavík.
Er hér var komið var ákveðið að fresta
umræðum um skipulagsmálin þar til eftir
hádegi, en taka til við umræður um
stjórnmálaályktun, sem stjórnmála-
nefnd fundarins hafði nú afgreitt og lá
fyrir landsfundinum.
Framsögu fyrir stjórnmálanefnd
landsfundarins hafði Jónas H. Haralz,
Kópavogi. Jónas gerði grein fyrir því að
niðurstaða stjórnmálanefndar hefði
orðið sú, að leggja fram stjórnmálaálykt-
un í tvennu lagi, annars vegar almenna
st jórnmálaályktun og hins vegar sérstaka
ályktun um afstöðu flokksins til ríkis-
stjórnarinnar. Til máls tóku Sigurgeir
Sigurðsson, Seltjarnamesi, Stefán A.
Jónsson, Kagaðarhóli og Erlendur
Eysteinsson, Stóru-Giljá, A-Hún.
Fundi varslitið kl. 12.30.
Áttundi fundur
Áttundi fundur landsfundanns hófst í
Sigtúni sunnudaginn 1. nóvember kl.
14.00. Fundarstjóri var Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, Reykjavík, en
fundarritarar Kjartan Jónsson, Reykja-
vík og Sigurður Þ. Jónsson, Vestmanna-
eyjum.
Á dagskrá þessa fundar var afgreiðsla
st jórnmálaályktunar, en ekki vannst tími
til að afgreiða hana fyrir hádegi þennan
dag, framhald á afgreiðslu á nefndarálit-
um og kosning formanns og varafor-
manns Sjálfstæðisflokksins og kosning
miðst jórnarmanna.
Gunnar Thoroddsen, forsœtisráðherra.
Fyrstur tók til máls Jónas H. Haralz,
Kópavogi, og fjallaði um drög að stjórn-
málaályktun. Þá tóku til máls Matthías
Á. Mathiesen, Hafnarfirði, forsætisráð-
herra, Dr. GunnarThoroddsen, Reykja-
vík, Gísli Jónsson, Akureyri, Davíð Sch.
Thorsteinsson, Garðabæ. Fundarstjóri
tilkynnti nú að hann takmarkaði ræðu-
tíma við tvær mínútur (þessari ákvörðun
sinni framfylgdi fundarstjóri síðan af
mikilli lipurð), Birgir ísleifur Gunnars-
son, Reykjavík, Sverrir Hermannsson,
Reykjavík, Þorgeir Ibsen, Hafnarfirði,
Ragnhildur Helgadóttir, Reykjavík,
Skúli Johnsen, Garðabæ, Halldór
Blöndal, Akureyri, forsætisráðherra Dr.
Gunnar Thoroddsen, Reykjavík, sem
óskaði eftir skriflegri atkvæðagreiðslu
um þann kafla stjórnmálaályktunarinn-
ar, sem fjallaði um afstöðu Sjálfstæðis-