Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Side 24
Slörf landsfundar
flokksins til núverandi ríkisstjórnar og
Jónas H. Haralz, Kópavogi.
Var nú gengið til afgreiðslu á stjórn-
málaályktun 24. landsfundar Sjálfstæðis-
flokksins og var fyrri hluti hennar
merktur I. samþykktur samhljóða. Um
þann hluta ályktunarinnar er fjallaði um
afstöðu flokksins til ríkisstjórnarinnar
merktur II var viðhöfð skrifleg atkvæða-
greiðsla og varð niðurstaða hennar sú, að
700 fundarmanna sögðu já og samþykktu
framlagða ályktun, nei sögðu 237, auðir
seðlar voru 32 og einn seðill ógildur. Pá
Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðherra, í ræðustól.
fyrirkomulag kosningar formanns og
varaformanns var vísað til miðstjórnar
og þingflokks.
Að lokinni afgreiðslu skipulagsmála
voru samgöngumál tekin fyrir. Ágúst
Hafberg, Reykjavík var framsögumaður
samgöngumálanefndar. Til máls tóku
Sigurður Sigurðarson, Reykjavík, Páll
Daníelsson, Hafnarfirði, Pétur J. Eiríks-
son, Reykjavík og Kristinn Andersen,
Reykjavík.
Að umræðum loknum var tillögu til
ályktunar um samgöngumál vísað til
miðstjórnar til afgreiðslu.
Þá var gengið til afgreiðslu á ályktun
um skattamál. Til máls tóku Arndís
Björnsdóttir, Garðabæ, Páll Daníelsson,
Hafnarfirði og Haukur Eggertsson,
Reykjavík.
Að loknum umræðum Iagði fundar-
stjóri til að ályktun um skattamál og fram-
komnum breytingartillögum yrði vísað
til miðstjórnar og þingflokks til af-
greiðslu. Var sú tillaga samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.
Matthías A. Mathiesen og Ellert B. Schram rœða málin.
var gengið til afgreiðslu á tillögum til
breytinga á skipulagsreglum flokksins
Fyrr er getið tillögu formanns Sjálf-
stæðisflokksins, Geirs Hallgrímssonar,
Reykjavík, um að tillögum um breyting-
ar á 10. og 55. gr. skipulagsreglna yrði
vísað til miðstjórnar. Var sú tillaga for-
manns samþykkt með öllum meginþorra
atkvæða. Tillaga um breytingu á 17. gr.
skipulagsreglna S jálfstæðisflokksins,
sem borin var fram af Ólafi G. Einars-
syni, Garðabæ, var samþykkt sam-
hljóða.
Tillaga um ferðakostnað miðstjórnar-
manna var jafnframt samþykkt sam-
hljóða, en öðrum tillögum, þar með
töldum tillögum Helenu Albertsdóttur,
Reykjavík, varðandi 20. gr. skipulags-
reglnanna og tillögum Einars H.
Ásgrímssonar, Garðabæ, um breytt
Hlýtt á umræður í Sigtúni.