Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Síða 25
Landsfundur 1981
Pálmi Jónsson óskar Geir Hallgrímssyni til hamingju rned sigurinn íformannskjörinu.
Ragnhildur Helgadóttir og Friðrik Sophusson þegar úrslit lágufyrir í varaformannskjörinu.
Jón Gauti Jónsson, Garðabæ, hafði
framsögu fyrir sveitarst jórna- og byggða-
málanefnd. Engar umræður urðu um
ályktunina og var hún samþykkt sam-
hljóða.
Fór nú fram kjör formanns Sjálf-
stæðisflokksins. Kosning fór þannig fram
að fundarmenn fengu afhenta atkvæða-
seðla skv. skrá miðstjórnarskrifstofu
yfir þá landsfundarfulltrúa, sem mættir
voru til fundar.
Geir Hallgrímsson, alþingismaður
Reykjavík, var kjörinn formaður Sjálf-
stæðisflokksins með 637 atkvæðum.
Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðherra
Reykjavík, hlaut 209 atkvæði, Ellert B.
Schram, ritstjóri, Reykjavík, hlaut 79
atkvæði. Sex aðrir menn hlutu 5 eða færri
atkvæði, alls voru þannig greidd 11
atkvæði. Auðir seðlar voru 26 og ógildir
4. Alls tóku því 966 landsfundarfulltrúar
þátt í kjöri formanns Sjálfstæðisflokks-
ins.
Formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir
Hallgrímsson, Reykjavík, tók nú til máls
og þakkaði það traust sem honum hefði
verið sýnt, en landsfundarfulltrúar risu úr
sætum og hylltu hinn nýkjörna formann
með langvinnu lófataki.
Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðherra
tók til máls og óskaði nýkjörnum for-
manni til hamingju með úrslitin og
þakkaði þann stuðning er sér hefði verið
sýndur af fundarmönnum.
Þá var gengið til kjörs varaformanns
Sjálfstæðisflokksins og miðstjórnar-
manna. Fór sú kosning fram á sama hátt
og kjör formanns, en eftirtaldir höfðu
gefið kost á sér til miðstjórnarkjörs.
Albert K. Sanders, Njarðvík, Arndís
Björnsdóttir, Garðabæ, Björg Einars-
dóttir, Reykjavík, Bjöm Þórhallsson,
Reykjavík, Davíð Sch. Thorsteinsson,
Garðabæ, Edgar Guðmundsson,
Reykjavík, Einar K. Guðfinnsson,
Bolungarvík, Ellert B. Schram, Reykja-
vík, Gísli Jónsson, Akureyri, Guðmund-
ur Ingólfsson, ísafirði, Gústaf Níelsson,
Reykjavík, Halldór Jónsson, Kópavogi,
Jón Ásbergsson, Sauðárkróki, Jónas
Elíasson, Reykjavík, Jónas H. Haralz,
Kópavogi, Kjartan Rafnsson, Njarðvík,
Magnús Jónsson, Vestmannaeyjum,
Óðinn Sigþórsson, Einarsnesi, Borgar-
firði, Pétur H. Blöndal, Reykjavík,
Pétur J. Eiríksson, Reykjavík, Rúnar
Pálsson, Egilsstöðum, Sigurlaug Bjarna-
dóttir, Reykjavík, Soffía Karlsdóttir,
Keflavík, Porsteinn Pálsson, Reykjavík.
Meðan kjör varaformanns og mið-
stjómar fór fram, var lokið afgreiðslu
ályktunar um íþrótta- og æskulýðsmál,
sem var samþykkt samhljóða. Jafnframt