Almanak skólabarna - 01.01.1934, Side 34
Mundu, að ef þú temur þér einfaldar
hreinlætis- og heilbrigðisreglur, frá biautu
barnsbeini, eru meiri líkur til þess en
annars, að þú verðir sterkbyggður og
dugandi maður.
Athugaðu það einnig, að ef að þú ert
hreinlátur og aðgætinn um þitt eigið
heilsufar, hefur þú áhrif með breyttni
þinni á starfs- og leiksystkini þin, og
verður því á þann hátt þess valdandi,
að þau verða einnig hraustari og starfs-
glaðari en elia.
Á þann hátt hjálparðu til þess að
skapa almenna hollustuhætti og gerir
þjóðina hraustari og þrifnari en hún
nú er. —
Hefirðu nokkurn tíma athugað, hvað
þú ert lengi að þvo þér og greiða, bursta
tennurnar, hreinsa neglurnar, klœða þig
og borða.
Athugaðu nákvæmlega, hve langan
tíma þetta tekur, og gættu þess ávallt