Nýja skákblaðið - 01.04.1940, Blaðsíða 3
NÝJA
SKÁKBLAÐIÐ
I árg. Reykjavík, marz—apríl 1940. 2. tölubl.
Ritstjórar:
Óli
Valdimarsson
og
Sturla
Pétursson.
Skákþing Islands 1940.
Skákþing íslands fyrir árið
1940 var háð í Reykjavík og
stóð yfir frá 26. marz til 10.
apríl. Þátttakan í mótinu var
sæmileg eftir því sem við var að
búast, þar sem Skákmóti Rvík-
ur var nýlokið. Þátttakendur
voru alls 27. í meistaraflokki 9,
I. flokki 8 og II. flokki 10. Það
þótti þegar frá byrjun mjög ó-
víst hver yrði sigurvegarinn á
þessu móti, þar sem fjórir af
keppendunum voru löngu land-
kunnir skákmenn og yfirleitt
taldir mjög svipaðir að styrk-
leika. Eftir fyrstu umferðirnar
mátti líka sjá þese glögg merki,
að þessir menn höfðu verðskuld-
að þennan efa, þar sem þeir
höfðu mjög svipaða útkomu. —
Skákstíll þeirra bar þess líka
ljósan vott, að þeim var full-
komin alvara með að láta ekki
undan síga fyrr en yfir lyki.
Þannig hélst það allt þingið út,
að varla mátti í milli sjá, hver
Einar Þorvaldsson.
þeirra færi með sigur af hólmi.
í síðustu umferðunum tókst
Einari Þorvaldssyni samt að ná
forystunni og halda henni. Varð
hann þar með sigurvegarinn á
Skákþingi íslands og Skák-
meistari íslands 1940.
Hann var sá eini af meistur-