Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1977, Page 79
69
byggingastarfsemi
Inngangur
Birtar eru tölur um árlegar byggingarframkvæmdir í Reykjavík samkvæmt
upplýsingum byggingafulltrúans þar, auk þess sem gerð er örstutt grein
fyrir lóðaúthlutunum og gatnagerð síðustu ára. Upplýsingar um heildar-
fjölda íbúða í Reykjavxk eru byggðar á gögnum Fasteignamats ríkisins
eins og þau voru í ársbyrjun 1970 að viðbættum árlegum fjölda fullgerðra
íbúða samkvæmt skýrslum byggingafulltrúans í Reykjavík. Upplýsingar um
fjölda íbúða og árlegar byggingarframkvæmdir annars staðar eru fengnar
úr skýrslum Framkvæmdastofnunar ríkisins og einstakra byggingafulltrúa.
Á liðnum árum hafa stjórnvöld reynt, með beinum eða óbeinum aðgerðum, að
hafa áhrif á það, hve mikið rými skuli ætla hverjum einstaklingi í nýju
húsnæði. Má þar nefna reglur húsnæðismálastjórnar við úrskurð um lánshæfni
umsókna, þar sem kveðið er á um hámarksstærð þess húsnæðis, sem lán eru
veitt út á. Miðað er við fjölskyldustærð og stærð íbúða í fermetrum.
Ákvæði sem þessi hafa mikil áhrif á gerð húsnæðis í nýjum hverfum og
þar með á íbúafjölda, en íbúðirnar ganga síðan kaupum og sölum án
nokkurra ákvæða um hámarksrými ætlað þeim, sem kaupa. Þannig hefur
bein og hlutfallsleg fækkun orðið x gömlum borgarhverfum á sama tíma
og ný hafa risið. Hagkvsemara er að byggja en kaupa sambærilegt húsnæði
fullgert, hvort heldur tekið er tillit til verðs eða lánsfjármöguleika.
Ungt fólk flyzt að heiman úr gömlu hverfunum og kemur sér upp húsnæði
í nýjum hverfum, en lítil sem engin endurnýjun á sér stað meðal íbúa
gömlu hverfanna. Húsrými á hvern einstakling vex yfirleitt eftir því
sem hverfin eldast og þykja nýtast ver.
Á heildina litið hefur ástand í húsnæðismálum í Reykjavík og á Höfuðborgar-
svæði farið mjög batnandi á síðustu árum sé miðað við húsnæðisrými á hvern
einstakling, en auknar kröfur valda því, að ekki hefur dregið úr
eftirspurn.
Á síðustu 5 árum hefur alls verið komið upp 805 þúsund rúmmetrum iðnaðar-
og verksmiðjuhúsnæðis í borginni auk 357 þúsund rúmmetra verzlunar- og
skrifstofuhúsnæðis. Að auki hafa íbúðarhús, einkum í kringum miðbæinn,
verið tekin undir skrifstofur og annað atvinnuhúsnæði.